Dagblaðið - 29.06.1981, Blaðsíða 12
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 29. JÚNÍ 1981.
BIAÐIB
fijálst,áháð dagblað
Útgafandi: DagblaflM hf. ^ “
Framkvnmdastjóri: Sveinn R. EyjöHsson. Ritstjöri: Jönas Kristjánsson.
Aöstoöarrhstjöri: Maukur Helgason. Fréttastjöri: Ómar Valdimarsson.
Skrifstofustjóri rttstjómar. Jöhannes Reykdal.
tþröttin Haflur Slmonarson. Menning: Aflaisteinn IngöHsson. Aflstoflarfréttastjóri: Jönas Haraldsson..
Handrit: Ásgrimur Pálsson. Hönnun: HUmar Karisson.
Blaflamenn: Anna BJamason, Adi Rönar HaUdörsson, Atii Steinarsson, Ásgeir Tómasson, Bragi Sig-
urflsson, Döra Stefánsdóttk, Elin Albertsdóttir, Gunnlaugur A. Jónsson, Inga Huld Hákonardóttir,
Kristján Már Unnarsson, Sigurður Sverrisson.
Ljósmyndir. BjamleHur BjamleHsson, Einar Ólason, Ragnar Th. Sigurflsson, Sigurflur Porri Sigurðsson
og Sveinn Þormöflsson.
Skrifstofustjóri: ólafur EyjóHsson. Gjaidkeri: Práinn PorieHsson. Auglýsingastjóri: Már E.M. Hall-
dörsson. DreHingarstjórí: Valgerflur H. Sveinsdóttir.
Ritstjöm: Siflumúla 12. Afgreiflsla, áskriftadeild, auglýsingar og skrifstofun Þverhoiti 11.
Aflalsimi blaflsins er 27022 (10 Unur).
Setning og umbrot Dagblaflifl hf., Siflumúla 12.
Mynda- ogplötugerð: HHmir hf., Siflumúla 12. Prentun: Árvakur hf., SkeHunni 10.
Askrlftarverfl á mánufli kr. 80,00. Varfl f lausasöki kr. 6,00. r, *
Sólbað við Svartahaf...
Einkar óviðkunnanlegt er, að sjálfur /S
forseti Alþýðusambands íslands,
Ásmundur Stefánsson, skuli vera í
fimm vikna sólbaði á Krímskaga við
Svartahaf í boði þess anga sovétstjórn-
arinnar, sem heitir Alþýðusamband
Sovétríkjanna.
Hið nána samband ráðamanna Alþýðusambands
íslands við Sovétríkin hefur alltaf verið óviðkunnan-
legt. Steininn tekur þó úr nú, þegar sovétstjórnin hefur
í hótunum við Pólverja vegna stofnunar sjálfstæðra
verkalýðsfélaga þar í landi.
Forsetinn var nýlega í boðsferð í Austur-Þýzkalandi,
þar sem ráðamenn styðja mjög eindregið hótanirnar
gegn pólsku verkalýðsfélögunum. Blaðafulltrúi al-
þýðusambandsins hefur og mjög verið á ferli hjá aust-
rænum alþýðuóvinum.
Senn fer sérstök sendinefnd til Moskvu til að skála
við fulltrúa þess anga sovétstjórnarinnar, sem heitir
Alþýðusamband Sovétríkjanna. Auk Ásmundar verða
þar Guðríður Elíasdóttir og Karvel Pálmason alþingis-
maður!
För þingmannsins minnir á nýlega sneypuför þriggja
þingmanna til Moskvu, þar sem þeir létu teyma sig
milli veizluhalda og áróðursprédikana. Allar eru þessar
austurgöngur einkar hvimleiðar eins og nú stendur á.
Auðvitað verður að reyna að hafa eitthvert samband
við ráðamenn þar eystra, þótt ekki verði séð, að hinir
íslenzku ferðalangar séu bógar til að sannfæra þá um
nokkurn hlut. En undanfarna mánuði hafa aðstæður
ekki verið venjulegar.
Nær væri, að hinir veizluglöðu alþýðusambands-
menn og þingmenn svöruðu gylliboðum frá Sovétríkj-
unum með því að segja, að engar verði austurferðir
meðan sovézkur her sé í Afganistan og meðan sovét-
stjórnin ógni Pólverjum.
Stöðug vinalæti af hálfu íslendinga um þessar
mundir eru til þess eins fallin að sannfæra sovétstjórn-
ina um, að allt sé eins og það eigi að vera, þrátt fyrir til-
raunir til þjóðarmorðs í Afganistan og hótanir gagn-
vart Póllandi.
Auk þess hljóta að vera einhver siðferðileg takmörk
fyrir því, hversu unaðslega menn geta velt sér upp úr
gjöfum sovétstjórnarinnar eða þess anga hennar, sem
heitir Alþýðusamband Sovétríkjanna. Þetta er eins og
aðtaka við mútum.
mmm
ogíFrakklandi
Annar sólbaðsmaður hefur vakið furðu upp á sið-
kastið. Það er Svavar Gestsson heilbrigðisráðherra,
sem hélt sig í Frakklandi meðan hrundi heilbrigðis-
þjónusta íslenzkra sjúkrahúsa í hinni illræmdu fjár-
kúgun lækna.
Þótt sími sé til margra hluta nytsamlegur, kemur
hann ekki í staðinn fyrir þrotlaust starf á staðnum, í
sjálfri eldlínunni. Svavar brást, þegar hann flúði úr
landi einmitt í fyrsta skipti, sem eitthvað átti að reyna á
hann.
Vegna fjarvistar Svavars þurftu tveir aðrir ráðherrar
að koma til skjalanna með öllum þeim töfum, sem
fylgja, þegar nýir menn eru að setja sig inn í málin.
Sólbað heilbrigðisráðherrans tafði fyrir lausn deilunn-
ar.
Fjárkúgun læknanna var einhver alvarlegasta aðför
að íslenzku þjóðskipulagi, sem gerð hefur verið um
nokkurt árabil, og á því miður eftir að draga dilk á
eftir sér. Á slíkri örlagastundu á ráðherrann að vera
við.
Barnamorðin í Atlanta:
Þung ásökun
á bandanskt
stjómkerfi
Mánudaginn 22.6., rak ég augun i
Dagblaðsfrétt sem bar fyrirsögnina:
Ljósmyndari ákærður fyrir eitt
Atlantabarnamorðanna 28. Þótt
greinin sé ekki merkt neinni frétta-
stofu, geri ég ráð fyrir að hún sé
komin frá Reuter eða annarri ámóta
stofnun. Svo sem kunnugt er, eru
fórnarlömb barnamorðingjanna i
Atlanta svertingjaböm, yfirleitt á
aidrinum 10—15 ára. Það olli mér
því mikilli furðu aö komast að þvi að
28. „barnið” væri 27 ára gamalt.
Hverjum dettur í hug að 27 ára
gamall maður sé barn? Þetta skiptir
máli m .a. vegna þess að i vitund fólks
eru bamamorð ekki það sama og
morð á fullorðnu fólki, þau eru svo
ólýsanlega óhugnanleg.
Atlanta er stór borg og hef ég ekki
heyrt annað en þar hafi ríkt sama
glæpaöid og annars staöar i Banda-
ríkjunum. Það var þvi litil ástæða
fyrir fréttastofuna að bendla umrætt
morð við barnamorðin. Ástæðan
fyrir þvi að svo var getur aöeins verið
dn: þarna var á ferðinni svertingi
sem grunaður er um að hafa myrt,
svertingja. Málið er að yfirvöld í
Bandarikjunum og fjölmiðlar hafa
reynt eftir megni að afla þeirri
skoðun fylgis, að barnamorðingj-
amir séu ekki hvítir kynþáttahatarar
sem flest bendir til, heldur
svertingjar.
Óhugnanlegar
kynþáttaofsóknir
Að minu mati em barnamorðin
þaulskipulagðar kynþáttaofsóknir,
einhverjar þær óhugnanlegustu siðan
Kjailarinn
Helgi M. Sigurðsson
i kjölfar borgarastriðsins 1860—
1865 og á blómaskeiði Ku Klux Klan
á 3. áratug þessarar aldar. Þær þjóni
einnig sama tilgangi og fyrri
ofsóknir, þ.e. að troða á svertingjum
almennt, kúga þá til undirgefni; en
þeir eru allra manna réttlausastir í
Bandarfkjunum. Annar möguleiki
sem manni kemur i hug er að um sé
að ræða geðveikan mann, sbr.
Yorkshiremorðingjann. En hann er
harla litill.
Það vekur óneitanlega grunsemdir
að það skuli ekki vera búið að upp-
lýsa eitt einasta af öllum þessum
morðum. Þó heldur lögreglan því
fram að hún sé búin að vinna sérstak-
lega vel að málinu, heyrst hefur að
^ „Það olli mér því mikilli furðu að komast
að því, að 28. „barnið” væri 27 ára
gamalt.”
alríkislögreglan sé farin að aðstoða,
sérstakar fjárveitingar hafi verið út-
vegaðar o.s.frv. Eina ástæðan fyrir
þvi að árangur er enginn, hlýtur að
vera sú að lögregian haldi samt sem
áöur að sér höndunum í málinu.
Þetta er þung ásökun á bandarískt
stjórnkerfi, en flest styður hana. 1
fyrsta lagi hefur lögreglan ekki séð
ástæöu til aö rannsaka þær upplýs-
ingar sem hún hefur fengið og beinst
hafa að hvitum mönnum. Meðal
annars tilkynnti eitt fórnarlambið,
Patrick Baitazar, skömmu fyrir
dauða sinn lögreglunni um að hvítur
maður hafi reynt að tæla sig inn i bíl.
Einnig hefur hvítur maður í lögreglu-
bil nokkrum sinnum sést reyna að
tæla böm inn í bíl til sin. Enn má geta
þess, að svertingi var handtekinn
fyrir að skjóta á hvítan mann sem var
að tæla til sín blökkubarn; en engin
rannsókn fór fram á hegðun hvíta
mannsins.
Ofan á þetta bætist að þótt bæði
Ku Klux Klan og nasistasamtök starfi
i Atlanta, hefur ekki þótt ástæöa til
að rannsaka starfsemi þeirra. Hefur
leiötogi í KKK jafnvel haidiö því
fram í sjónvarpi, að í lögreglu
borgarinnar væru KKK-féiagar.
Hefur KKK nýlega lýst yfir að það
væri að undirbúa „kynþáttastríð á
landsmælikvarða” i þjálfunarbúðum
í Alabama.
Á hinn bóginn hefur lögreglan i
Atlanta fordæmt myndun svartra
eftirlitssveita i borginni. Og til þessa
hafa bæði yfirvöld og fjölmiðlar
reynt eftir megni að skdla skuidinni á
fjölskyldur fórnarlambanna,
aðgæsluleysi þdrra o.s.frv.
En ólgan meöal almennings út af
þessu máli fer vaxandi. Eru bæði
samtök svertingja og verkalýösfélög
byrjuð að skipuleggja kröfugöngur
og aðrar aögerðir. Er þvi von um að
yfirvöld verði knúin til að stöðva
þennan óhugnað.
Helgl M. Sigurðsson
kennaii.
ft»)ýðlí)#n9n
póHandi
sósíatísk
Byltingin i Póllandi heldur áfram
— ennþá án blóðsúthellingar, en ekki
án átaka. í eðli sinu er byltingin i Pól-
landi eins og aörar byltingar þar sem
undirokuð alþýða berst fyrir þvi að
velta kúgandi valdastétt úr valdastóli.
Um rás atburöa og þróun byltingar-
innar gegnir nokkuð öðru máli þar
sem pólskt þjóöfélag og efnahags-
kerfi er ólikt þvi sem við þekkjum
almennt úr vestrinu, og þaðan sem
byltingar almúgans hafa gerst, t.d.
miðstýring og rikisrekstur. Forkólfar
pólsku byltingarinnar hafa, eins og
raunar aðgerðir Samstöðu sýna,