Dagblaðið - 29.06.1981, Blaðsíða 25

Dagblaðið - 29.06.1981, Blaðsíða 25
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 29. JÚNÍ 1981. 33 Amarvatnsheiði: Sögur af mokveiði flestar heimatilbúnar —enda hef ur f iskurinn minnkað til muna Marga fýsir að renna fyrir góöan silung og fá kannski töluvert af honum. En það er alls ekki alltaf hægt. Á Arnarvatnsheiði eru mörg góði veiði- vötn, enda leggja margir þangað leið sina á hverju sumri, bæði til að renna fyrir silung og að skoða sig um. Á Arnarvatnsheiði er víðast fallegt. Flest eru vötnin á heiðinni frekar grunn. Bæði veiðast bleikja og urriði i þeim. Um stærð fiskjarins fara ekki miklar sögur nú síðustu árin. En hér áður fyrr veiddu menn þá stóra á heiðinni. Sumir fiskarnir voru víst um 6—7 kíló, en það er löngu liðin tíð. Voru þá vötnin lífs- björg þeirra sem þangað leituðu til fæðuöflunar. En nú síðustu árin hefur margt breytzt. Nú fara menn á heiðina til að hafa gaman af. Því nóg er af vötnunum, svo sem Arnarvatn stóra, Arnarvatn litla, Réttarvatn, Gunnars- sonarvatn, Úlfsvatn, Hávaðavatn, og Veiðitjöm svo einhver séu nefnd. Núna er tíminn kominn sem land- inn leggur leið slna á vit heiðanna. Vitað er að fiskurinn hefur minnkað til muna en kannski fjölgað aðeins. En það er bara ekki það sem veiðimenn vilja. Færri en stærri. Kannski þarf að grisja vötnin á heiðinni? Þeir stóru fiskar sem Arnarvatnsheiðin var fræg fyrir á sínum tíma sjást varla lengur. Því miður. Það er óhætt að segja að sumir leggi töluvert á sig fyrir veiðiskapinn. Fyrir skömmu lögðu nokkrir vaskir náungar á Arnarvatnsheiðina. Fengu þeir tölu- vert af fallegum fiski. Sá stærsti vó um 5 pund en flestir voru fiskarnir frekar smáir. Þó veiðiveður hafi nú ekki verið uppá það bezta, frostið var stundum 4—5 stig. Já, útiveran er spennandi og þess vegna ættu allir sem hafa áhuga á, að skella sér. En nú hafa oft verið sagðar svaka veiðisögur þarna af heið- inni. Um þetta sagði einn af heiðarför- unum: „Það er hægt að fá töluvert af fiski þarna en hann er smár. Þær sögur sem maður er að heyra um að sumir Korpa er ennþá steindauð —búið að kaupa veiðileyf i fyrir 8520 krónur Hvort skyldi vera betra að sitja inni í veiðihúsi eða standa útí á í slagveöurs regni? Vera inní veiðihúsi. Það gerðu veiðimenn við Korpu líka á laugardags- kvöldið. Enda hárrétt, veiðivonin var engin. Já, það eru heldur bragðdaufar fréttir sem berast frá Korpu. Veiðileyfi fyrir 8520 kr. farin fyrir lítið. Sem er nú heldur mikið fyrir ekki neitt. Maður hefur verið að velta því fyrir sér uppá síðkastið hvort Korpa væri ekki heppi- leg útlendingaá. Hvernig væri að selja útlendingum þessa daga? Er ekki alltaf verið að tala um að veiðimagnið skipti ekki neinu máli? Þetta væri nú athug- andi. Svo gætum við fengið góða á í staðinn. -GB FRÁ HÚSEYJARKVÍSL j Skagafjaröarsýslu eru ár flestar kaldar og vatnsmiklar fram eftir sumri vegna leysinga. í Húseyjarkvisl er samt gaman að renna fyrir lax og silung. Enda margir góflir veiðistaðir i ánni. Mynd Benni Alfreð. mokveiði stóran og fallegan fisk eru heimatilbúnar með öllu. Við höfum farið þarna sumar eftir sumar. Trölla- sögur standast ekki lengur. Sumir þykjast veiða mðrg hundruð.” En hvemig skyldi aðbúnaðurinn vera og aðstaðan? Mætti koma upp einhverri aðstöðu til hægðarauka, fyrir þá sem í--—Y VEIÐIVON i\ leggja leið sína á heiðina. Það er til dæmis aðeins einn kamar á allri heiðinni. En hvernig skyldi hafa veiðzt síðustu dagana og hvað skyldi kosta að renna? Kristleifur Þorsteinsson á Húsafelli er manna fróðastur um þessa hluti. Hann hafði meðal annars þetta að segja: „Verð á deginum hjá okkur er 100 krónur. Það hefur vel veiðzt en fiskur- inn er smár. Það er furðugott að komast upp eftir núna.” -GB Grandos MOCCA Frostþurrkað Vantar þig bíl til þess að feróast á í sumarleyfinu? Ef svo er þá getum við boðið þér úrval af Skoda á frábærum kjörum. Þú geturvalið úr árgerðum og þannig fundið nákvæmlega þann bíl sem þér hentar best. Þú hringir eða kemur í heimsókn og þá er hann Halli reiðu- búinn til þess að veita þér allar upplýsingar og aðstoða þig eftir bestu getu. JÖFUR HF Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Sími 42600 I sumarleyfid á „nýjum,, notuóum SKODA

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.