Dagblaðið - 29.06.1981, Qupperneq 28
c ískalt
beven up.
hressir betur.
Vinningur
vikunnar:
Crown-sett
frá Radfó-
búðinni
Vinningur í þessari viku er
Crown-sett frá Radióbúðinni.
Skipholti 19. Reykjavik. I vikunni
verður birt, á þessum stað í biað-
inu, spurning tengd smáauglýsing-
um Ðaghlaðsins. Nafn heppins
áskrifanda verður síðan birt
daginn eftir i smáauglýsingum og
gefst honum tœkifœri á að svara
spurningunni. Fylgizt vel með,
áskrifendur. Fyrir nœstu helgi
verður einn ykkar glœsilegu
Crown-setti, ríkari.
frjúlst, áháð dagblað
MÁNUDAGUR 29. JÚNÍ 1981.
TveirÞjóðverjar
hætt komnir:
Ætluðu að
róa upp
Ölfusá
Tveir Þjóðverjar voru hætt komnir á
öifusá i gærmorgun. Þeir höfðu séð á
landakorti að áin var breið og lá langt
upp í land og hugðust róa upp hana á
bátum. Þeir voru með 2 báta, annan
undir sjálfa sig og hinn undir farangur.
Þeir ýttu á flot skammt fyrir ofan
brúna við Selfoss og hugðust róa
uppeftir. En straumurinn varð þeim
sterkari og þá hrakti stjórnlaust niður
ána. Lögreglumenn og aðrir Selfoss-
búar stóðu agndofa á bakkanum og
leizt ekki á blikuna en fengu ekkert að
gert. Við kirkjuna steytti báturinn á
kletti og skreiddust Þjóðverjarnir i land
kaldir og hraktir en að öðru ieyti heilir.
Létu þeir lítt af islenzkum ám til róðrar.
á eftir. -DS.
Tíu ára telpa, Eva Vilhjálmsdóttir,
varð viðskila við ferðahóp i Þórsmörk
á laugardaginn og fannst hún ekki fyrr
en um 10-leytið í gærmorgun.
Aðdragandinn var sá að Alþýðu-
bandalagsfólk úr Reykjavik var i Þórs-
merkurferð. Foreldrar telpunnar,
Stefanía Júliusdóttir og Vilhjálmur
Þorsteinsson, brugðu sér i gönguferð
um kl. 17 á iaugardag, en telpan varð
eftir í leik með öðrum börnum
Stefania og Vilhjálmur sneru aftur úr
göngunni um kl. 21 og var Evu þá
hvergi að finna. í Mörkinni var fjöldi
fólks og skipulögð leit hófst um kl. 23.
Skilyrði voru slæm vegna þoku. Um
miðnættið var reynt að ná talstöðvar-
sambandi við byggð, en tókst ekki, og
var því ekið á Hvolsvöll. Þegar þangað
kom, kl. 2 um nóttína, voru kaUaðarút
hjálparsveitir af Suðurlandi og komu
þær I Þórsmörk um 4-leytið. Þyrla
Landhelgisgæzlunar lentí á HvolsvelU
kl. 6 en komst ekki í Þórsmörk fyrr en
kl. 8.30 vegna þoku.
Hjálparsveit skáta í Hafnarfirði var
kölluð út með sporhund og fann hann
Evu, rétt fyrir kl. 10, undir tíndum
ofan við tjaldstæðin i Stóra-Enda.
Þoka var svo mikil að hún gat ekki
áttað sig en hafði sýnt það hyggjuvit að
hlaða vörðu skammt frá Búðarhamri
innarlega i Mörkinni og skUja sokk
sinn eftir í henni. Er sokkurinn fannst
gat hundurinn síðan rakið slóð Evu,
sem fannst heU á húfi.
Þyrla Landhelgisgæzlunnar flaug
síðan með Evu og foreldra hennar tU
Reykjavíkur, þar sem lent var um há-
degi í gær. Eva var þá hin brattasta er
köld og blaut.
Um það bil 140 manns úr björgunar-
sveitum leituðu að telpunni, auk þess
fólks er statt var i Mörkinni. -FG.
Þyrla Landhelgisgœzlunnar flutti Evu og foreldra hennar til Reykja-
víkur í gær. Eva var flutt í börum úr vélinni, en þrátt fyrir nœtur-
langa hrakninga var hún hress. Eftirskoðun ú slysadeild Borgarspít-
alans í gœr, fékk hún aö fara heim. Þyrlan gat lítið athafnað sig fyrr
en í gœrmorgun vegna þoku. Á minni myndinni þakkar VUhjálmur
Þorsteinsson, faðir Evu, Birni Jónssyni, flugstjóra þyrlunnar, fyrir
aðstoðina. DB-myndir: S.
Bflvelta við
Þorlákshöfn
Bilvelta varð á veginum við Þorláks-
höfn í gærmorgun. Ekki er alveg kunn-
ugt um hvernig hún vildi tíl en talið er
að Bakkus hafi eitthvað haft hönd í
bagga. ökumaðurinn, 16 ára próflaus
drengur, og þrir farþegar í bUnum slös-
uðust aUir og voru flutttir á sjúkrahús í
Reykjavik. MeiðsUn eru ekki Ufshættu-
leg en að minnsta kosti einn ungling-
anna er iUa beinbrotinn.
-DS.
Harður ágreiningur iðnaðarráðherra og viðskiptaráðherra um aðlögunargjaldið:
„Megum ekki vera
kaþólskarí en páfinn”
- segir H jörleif ur Guttormsson
„Það er ekki sú fylgni i þessu máli,
sem þyrfti að vera,” sagði Hjörieifur
Guttormsson iðnaðarráðherra i við-
tali við DB í gær um meðferö
Tómasar Árnasonar viðskiptaráð-
herra á hugmyndum um aðlögunar-
gjald tíl stuðnings ísienzkum iðnaði.
„Ólík viðhorf innan rikisstjórnar-
innar i þessu máli hafa legið fyrir um
lengri tima. Sá óttí sem verið er að
básúna út um viðbrögð í fríverzlunar-
bandalögunum er nákvæmlega hið
sama og var 1979, þegar aðlögunar-
gjald var sett. PortúgaUr og Spán-
verjar hafa farið miklu lengra en við i
slfkum efnum. Við megum ekki vera
kaþólskari en páfinn,” sagði
Hjörleifur.
Aðlögunargjald er gjald, sem lagt
yrði á innfluttar iðnaðarvörur tíl að
bæta innlendum iðnaði óhagstæð
starfsskilyrði. „Ég tel bæði brýnt og
réttmætt að við leggjum á
aðlögunargjald sem allra fyrst. Við
eigum að leggja gjaldið á, flytja
okkar skýringar og sjá hver við-
brögðin verða. Ég hef metið það svo,
að framkvæmanlegt sé að leggja
gjaldið á og fá það 1 gegn. Ég vitna tU
reynslunnar frá 1979. Þá var því lika
haldið fram af hálfu fslenzkra
embættismanna, að þetta væri óvinn-
andi vegur. Verulegt starf fór fram í
iðnaðar- og viðskiptaráðuneytínu.
Málið var sótt. EFTA-ráðið sam-
þykkti það en Efnahagsbandalagið
lét kyrrt Uggja. Sama leiðin væri
æskilegust nú, að fara fyrst með
málið formlega fyrir EFTA og sfðan
EBE.”
Hjörieifur sagðist ítrekað hafa
flutt máUð i ríkisstjórninni og
heimild hefði fengizt á Alþingi fyrir
áiagningu aðlögunargjalds að nýju
eða Igildis þess. Hjörleifur kvaðst
vilja lækka gjaldið i þrepum, í sam-
ræmi við aðlögun íslenzks iðnaðar að
tollfrjálsum innflutningi.Gjaldið ættí
að vera 2% í ár, 1% næsta ár og
falla svo niður. Hjörleifur kvaðst
hafa fundið jákvæð viðhorf hjá
flestum ráðherrum en vonir sinar um
framkvæmdir hjá viðskiptaráðherra
hefðu dofnað.
-HH.
VtSADI A STÚLKUNA
— hyggjuvit hennar hjálpaði sporhundinum
Mikil leit að 10 ára stúlku í Þórsmörk:
SOKKUR í VÖRDUNNI