Dagblaðið - 06.07.1981, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 6. JÚLÍ1981.
3
Pétur Sturlaugsson hringdi:
Væri ekki hægt að fá Kvótavísurnar
úr reviunni Skornir skammtar, sem
fluttar voru í skemmtiþættinum i sjón-
varpinu sl. þriðjudag, birtar í Dagblað-
inu? Ég veit að margir höfðu gaman af
þessum vísum þeirra Jóns Hjartarson-
ar og Þórarins Eldjárn.
Jón Hjartarson leikari hafði ekkert
á móti því að vísurnar birtust i DB og
fara þær hér á eftir:
Kvótakerfið
(lag: Green, green grass of home)
Umdeilt
punktakerfi:
Menn
dregnir
ídilka
— segirtrésmiðurá
trésmíðaverkstæði
borgarinnar
Mikil óánægja hefur verið að und-
anförnu meðal starfsmanna á tré-
smíðaverkstæði Reykjavíkurborgar
vegna þess punktakerfis sem tekið
var upp fyrir nokkru. Kerfi þessu var
komið á fyrir tilstuðlan rekstrarstofú
í Kópavogi og hefur það reynzt
ómannúðlegt svo að ekki sé meira
sagt.
1 upphafi átti rekstrarstofan að
hafa það hlutverk með höndum að
vera ráðgefandi um rekstrarleg atriði
en nú virðist sem svo að rekstrarstof-
an hafi tekið sér óskorað vald og
ráðskist með menn að eigin geðþótta.
Sem dæmi um þetta má nefna að
vinnuflokkum hefur verið sundrað
og menn valdir saman i flokka eftir
„gæðum” eða vinnuafköstum og
þeir duglegustu settir i stjörnuflokk,
en aðrir 1 fyrsta, annan og svo þriðja
flokk, ekki ósvipað og gert er með
dilkaskrokka. Fatlaður maður sem
vann með mér fékk t.a.m. ekki að
vinna lengur með mér vegna þess að
hann var talinn lakari starfskraftur
og samkvæmt kerfi rekstrarstofunn-
ar ber hann þvi ekki jafnmikið kaup
úr býtum. Ég fór þvi fram á að okkur
væri reiknaður sameiginlegur
„bónus”, þ.e. að hann fengi hluta af
minum, en það var ekki hægt vegna
tölvuvinnslunnar. Og þetta gerist á
ári fatlaðra. Engin samráð hafa verið
höfð við menn vegna þessa fyrir-
komulags og rikir eins og áður segir
megn óánægja vegna þessa á tré-
smiðaverkstæðinu. Þá bætir það
ekki úr skák , að skriffinnskan er
orðin gífurleg og þaff hver maður að
fylla út þykkan bunka af skjölum um
öll sin verk á hverjum degi. Nú finnst
mér sem fleirum óeðlilegt að ein-
hverjir aðilar úr Kópavogi séu fengn-
ir til að sjá um rekstrarleg atriði hjá
Reykjavikurborg, ekki sizt vegna
þess að hjá borginni starfar fjöldinn
allur af hámenntuðum og hæfum
tæknifræðingum, hagfræðingum og
viðskiptafræðingum. Þá eru og
rekstrarstofur i Reykjavik.
Nú vil ég beina þeim spurningum
til rekstrarstjóra trésmlðastofunnar
hvað rekstrarstofan i Kópavogi taki
fyrir þjónustu sina hjá borginni og
hvert verksvið rekstrarstjórans sé.
Hvort það sé hann eða rekstrarstofan
sem dragi menn i dilka.
Kristján Kristjánsson, sem komið
hefur fram fyrir hönd Rekstrarstof-
unnar i Kópavogi i þessu máli og
unnið mest að því verkefni að koma
punktakerfinu á, sagði í samtali við
DB að kerfið hefði yfirleitt mælzt
mjög vel fyrir. Bæði Reykjavikur-
borg og starfsmennirnir högnuðust á
kerfinu og unnið hefði verið að þessu
máli i góðu samstarfi við verkalýðs-
hreyfinguna. Kristján sagðist vilja
taka það fram að hér væri ekki um
bónuskerfi að ræða heldur svokallað
„premiukerfi” eins og verið hefði
lengi við lýði hjá sorphreinsunar-
mönnum. Starfsmenn væru
verðlaunaðir fyrir góð störf og bætt-
ust þau verðlaun ofan á umsamin
laun þannig að enginn tapaði á þessu.
Kristján sagði að þessu kerfi hefði nú
veriö komið á i nær öllu borgar-
vinnukerfinu og meðal þeirra vinnu-
staða sem nytu góðs af væru vélamið-
stöðin, hitaveitan, vatnsveitan, pípu-
gerðin, umferðardeildin, trésmiða-
stofan og svo starfsmenn gatnamála-
stjóra.
KVÓTAVÍSURNAR
VORU FRÁBÆRAR
Ég renni l hlaðið hcima,
onaf hanómagnum stíg
ogmér I móti kemurféð og flestöll hœnsnin,
en í dyrum standa Skrauta og Skjalda,
hvað skyldu þœr nú um mig halda?
Kem ég heim með kvótann handaþeim.
Já ég finn þœr eru að fara á taugum,
fyrirlitning skln úr augum,
er kem ég heim með kvótann handa þeim.
Nýi bœrinn erþarna ennþá,
gltený hlaða, fjárhús, jjós,
og þessi hlandþró sem égfékk að stœkka ífyrra,
en nú erflnast alls að fœkka kúnum,
og fátt er betra en kal l túnum,
kem ég heim með kvötann handa þeim.
Glöggt égfinnað kýmarfer að gruna
fóðurbœtisskattlagninguna,
kem ég heim með kvótann handa þeirn.
(Ég mun þurfa að hella niður meira en þrjú hundruð lítrum
á dag, fyrirframan hlessaðar skepnurnar)
Hvernig eiga Huppa, Skjalda og Skrauta
að skilja kröfur ráðunauta,
er kem ég heim méð kvótann handa
þeim?
Aðalsteinn Bergdal
og Guðmundur
Pálsson i hlutverk-
um sfnum f revfunni
Skornir skammtar.
Alltaf,
eitthvað
nýtt og
spennandi
TORONTO
15.júlí, örfásætUaus.
5. ágúst (vikuferö), faus sæti.
12. ógúst biö/istí.
írland
20. júfí (10. daga feröi, örfá sætí iaus.
30. júB (5 daga ferö), laus sætí.
RÚTUFERÐIR
Þrándheimur 17. JúB — Noregur, Sviþjóö,
Finnland, örfá sætí iaus.
Tjaidferð Norogur — Sviþjóö 17. júB, iaus
sætí.
Íriand20. júB, örfá sœtí laus.
PORTOROZ
12. júli, örfá sæti laus.
22. júli, örfá sæti laus.
2., 12. og 23. ágúst, biðlisti.
2. sept. örfá sæti laus.
RIMINI
12. júlf, örfá sæti laus.
22. júlf, örfá sæti laus.
2., 12. og 23. ágúst biðlisti.
2. sept., örfá sæti laus.
ORLOF ALDRAÐRA
Portoroz, 2. sept., örfá sæti laus.
Malta/Danmörk 8. sept., laus
sæti.
Samvinnuferóir-Landsýn
AUSTURSTRJETI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
FTRIR ALLA
FJOLSKYLDUNA
3, 5, 10 og 12 gíra reiðhjól.
Heimsfræg gæðavara.
Varahluta-og viðgerðarþjónusta á staðnum.
Reiðhjólahandbók Fálkans með leiðbeiningum um
notkqn og viðhald fylgir öllum Raleigh reiðhjólum.
Utsölustaðir og þjónusta víða um land.
V
FALKINN
J
--------v
Spurning
Ferðu oftar í bíó
þegar sjónvarpið er f
frfi?
Elfn Ágústsdóttir húsmóðir (Elfnborg
Auður, 2 ára): Ég fer yfirleitt aldrei í
bió og ég efast um að ég fari á næst-
unni.
María Kristlnsdóttir Ijós- og húsmóðir:
Ég fer aldrei i bió.
Inga Úladóttir gæzlukona: Nei, ég fer
ekki oftar, en ég hef nú lika aðgang að
innanhússsjónvarpi.
Ester Guðmundsdóttlr húsmóðlr: Já ég
býst frekar við þvi.
Júlfa Hannesdóttlr saumakona: Ég fer
aldrei f bió og horfi reyndar litið á sjón-
■varp.
Guðrún Lúrusdóttlr húsmóðir: Ég býst
við þvi aö ég fari oftar.