Dagblaðið - 07.09.1981, Qupperneq 3
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 1981.
Eftirmáli biskupskosninga og ábyrgð blaðanna:
Hvað veldur slíku hatri?
Helgi Eysteinsson,
Steinagerði 11, skrifar:
Ég tilheyri þeim stóra hópi fólks,
sem rak í rogastanz, þegar það fletti í
sundur Dagblaðinu miðvikudaginn
2. september. Þar var hin furðuleg-
asta róggrein um séra Óiaf Skúlason,
og umsjónarmaður síðunnar hafði
lagt sitt fram með fyrirsögnum og
undirskrift undir mynd hans til þess
að undirstrika róg bréfritarans. Ég
skildi í fyrstu alls ekki, hvemig gat á
því staðið, að bréf þetta var birt. En
svo sá ég mynd umsjónarkonunnar
og þá rifjaði það upp, að hún hefði
sjálf i taugaveiklunargrein lýst því
yfir að hún væri á móti séra Ólafi.
Siðan í gær hefur síminn
varla stoppað hjá mér, þar sem
hneykslaðir vinir og kunningjar lýstu
furðu sinni, en ég vildi bíða útkomu
blaðsins á fimmtudag, þar sem ég
þóttist viss um að yfirmenn blaða-
konunnar mundu birta afsökunar-
beiðni, enda þótt bréfið í gær flyti í
prentun. Engin afsökunarbeiðni
hefur komið fram, og því sé ég mér
ekki fært að þegja.
Ólafur H. Sigurjónsson telur sig
vera að lýsa séra Ólafi Skúlasyni í
gær, en hvílík fjarstæða. Ef hann er
að lýsa einhverjum Ólafi, þá er það
ekki sá sem myndin er af. Og má
sjálfsagt ganga út frá því, að sé
nokkrum Ólafi lýst í greininni, þá
komi höfundur sjálfur þar ömurlega í
gegn. Ég hef verið spurður um það,
hvað geti valdið hatri bréfritara og
blindni hans um leið. Ekki veit ég
það, og ekki heldur hitt, hvaðan
Raddir
lesenda
honum kemur þessi mikla „vitn-
eskja” um séra Ólaf. Sjálfur hef ég
þekkt hann árum saman og unnið
nánar meö honum en flestir. Okkur
sóknarbörnum séra Ólafs í Bústaða-
sókn er bezt kunnugt um hæfileika
hans sem leiðtoga og á hvem hátt
honum hefur tekizt að byggja upp og
sameina söfnuðinn til virkrar þátt-
töku í starfi kirkjunnar.
Vissulega er hann metnaðargjam,
en metnaður hans beinist ekki að
honum sjálfum, heldur þeim verk-
efnum, sem hann er að sinna hverju
sinni. Hann leggur sig allan fram, og
þess vegna hefur hann líka náð þeim
árangri, að eftirtekt hefur vakið, eins
og greinilega kom fram í fyrri umferð
biskupskosninganna, þegar leitað var
eftir því, hvem prestar og fulltrúar
leikmanna vildu helzt fá í biskups-
stólinn. Þá fékk séra Ólafur 62
atkvæði en séra Pétur 36. Það voru
þvi margir sem álitu, að í síðari um-
ferðinni yrði tekið tillit til óska
næstum 45% þeirra sem kusu, en það
var nú eitthvað annað. Þá komu
aðrar hvatir inn í dæmið og sá sem
var númer tvö naut stuðnings þeirra,
sem fyrr höfðu haft býsna ólík orð
um óskir sínar. En það vil ég að komi
skýrt fram, að séra Ólafur sagði strax
eftir talninguna, að hann væri langt í
frá öruggur. Það kom líka á daginn,
að glöggskyggni hans brást ekki né
þekking á prestastéttinni.
Ólafur H. Sigurjónsson gerir mikið
úr þvi, að séra Ólafur hafi lagt land'
undir fót til að reka áróður fyrir eigin
kosningu. Þar eru enn sömu stað-
lausu stafirnir eins og í bréfinu öUu.
Séra Ólafur fór að vísu eina helgi
norður í Húnaþing á kirkjuhátíð í
boði presta, en fleiri hafa ferðir hans
um landið ekki verið, nema ég geri
ráð fyrir að hann hafi heimsótt föður
sinn í Keflavik. En síðan tók hann
sér hálfsmánaðar sumarfrí og fór í
ferð. En ekki til að hitta presta
íslands og biðja um stuðning. Hann
fór í ágústmánuði suður til Rimini,
slikur var nú ofsi hans á þessum
lokaspretti kosninganna.
Ólafur H. Sigurjónsson ætti að
skoða ásjónu sjálfs sín vandlega i
spegli og spyrja sig, hvað valdi hatri á
manni, sem ég veit ekki til, að hann
þekki nokkuð, að minnsta kosti
bendir bréf hans ekki til þess. Hinu
mæli ég með, að hann sæki kirkju
hjá séra Ólafi, það gera fleiri en á
flestum messustöðum borgarinnar, ef
ekki öUum, og ég veit ekki til þess að
þaðan hafi menn farið óánægðir,
nema þá kannski með sjálfa sig, er
Orðið „hittir þá”, svo að þeir átta sig
á því, að okkur ber ekki að dæma
heldur á kærleikurinn að móta við-
brögð eins við annan.
Séra Ólafur Skúlason þarf ekki
vörn mína gegn rógsherferð. Hann
hefur átt öfundarmenn, það fylgir
þeim, sem vel verður ágengt i starfi
sínu. En það eru fleiri en hann, sem
verða fyrir skítkasti Ólafs H. Sigur-
jónssonar, og þó sennilega engir meir
en þeir, sem blaði því eiga að stýra,
sem bréfið birti. Þeirra þáttur vekur
algjöra furðu.
En hver á svo að vera skýring á for-
dæmingu bréfritara og atvinnurógi
hans? Jú, viðbrögð séra Ólafs, þegar
hann var búinn að frétta af því, að
fyrir handvömm voru þrjú atkvæði
ótalin og því alls ekki vitað, hver
raunverulega hafði hlotið kosningu í
embætti biskups. Ég vildi gjarnan sjá
þann mann, en helzt ekki þekkja
hann nánar, sem væri svo skaplaus,
að slíkt hefði engin áhrif á hann.
„Aumur er öfundlaus maður”,
það er alveg satt, en það sanna bæði
úrslitin í biskupskosningunum og
ekki síður grein Ólafs H. Sigurjóns-
sonar, að séra Ólafur getur borið
höfuðið hátt.
Spurning
dagsins
Finnst þór verðlagn-
ing skólabóka vera
sanngjörn?
^KENWDOD
Turbo Hi-Fi
, I I - r
Ný háþróuð
tækninýjung
SIGMA
NEW HI-SPEED
þai
Nv
SIGMA DRIVE magnarakerfið er tækninýjung frá KENWOOD
ar sem hátalaraleiðslumar eru nú í fyrsta sinn hluti af magnaranum.
'íý áður óþekkt aðferð til stjómunar á starfsemi hátalaranna og tryggja
lágmarksbjögun í hljómtækjunum.
Tækmfræðingar og starfsmenn KENWOOD hafa ávallt verið í
fararbroddi með tækninýjungar í hljómtækjum, kynnt og þróað fram-
farir í þeim efiium eins og: Dynamic Damping Factor, DC Direct-
Coupling, High-Speed, Zero switching og Non Magnetic.
Það nýjasta í þróun hljómtækja er SIGMA DRIVE, nákvæm
samtenging magnara við hvem hátalara með fjómm leiðslum, tækni-
nýjung sem gerir kleift að hafa eftirlit með og stjóma nákvæmlega
tonblæ hátalaranna og heildarbjögun.
BJÖGUNARTÖLUR ERU TÓMT BULL...
Þegar aðrir majg
tölureinsi
aðeins KEI
bjögunartöluna 0.005%.
Staðreyndin er nú sú, að ef mæld er bjögun við hátalaraúttak á
magnara, geta fjölmargir þeirra mælst með bjögunartöluna 0.005% —
eins og SIGMA DRTvE maenarinn mælist með. En slík bjögunarmæl-
ing er alls ekki marktæk því hún er framkvæmd án viðtengdra hátalara
við magnarann. Ef magnarinn er hins vegar mældur í gegnum hátalara-
leiðslur að hátölumm, mælist bjögunin í KENWÖOD SIGMA
DRTVE sannarlega 0.005% — þegar magnarar frá öðmm framleið-
endum sýna aðeins bjögunartöluna 0.1%. Óneitanlega er það allt
önnur tala eða um það bil 20 sinnum lakari, og það heyrist.
Kenwood KA — 800 2
Kenwood KA — 900 2
Kenwood KA — 1000 2
magnannn geti sýnt og
50 RMS WATTS/O.009% THD: 4.350 kr.
80 RMS WATTS/0.005% THD: 5.540 kr.
100 RMS WATTS/0.005% THD: 8.120 kr.
Eins og TÚRBÓ kostaði SIGMA DRIVE miklar
rannsóknir, og eins og TÚRBÓ gefur SIGMA
DRIVE mestan kraft og beztan árangur.
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8 SÍMI85884
Sigurður örn Guðbjörnsson, Breið-
holtsskóla: Nei. Hún er allt of há.
Bækurnar eru óheyriiega dýrar.
Ragnheiður Ásgeirsdóttir, við nóm er-
lendis: Nei, alls ekki. Mér hreinlega
ofbýður og finnst að yfirvöld ættu að
grípa þarna inni.
Ólafur Einarsson, Menntaskólanum
við Sund: Nei, alls ekki. Það ætti að
hafa einhvern hemil á þessu.
Gunnar Ásgeirsson, Menntaskólanum
við Sund: Nei, mér finnst þetta vera allt
of dýrt.
Björn Jónsson, Menntaskólanum við
Sund: Þetta er allt of dýrt. Ég hef ekki
efniá þessu.
Kristinn Árnason, Menntaskólanum
við Sund: Nei, alls ekki.