Dagblaðið - 07.09.1981, Qupperneq 36
„Lágmarks mannrétt-
indi að geta hellt upp
á könnuna
■ ■ — „Við sveltum/’ sögðu hjónin
' * þegar Dagblaðsmenn heimsóttu
• þau og færðu þeim könnuna góðu
Talsmaður áskorandans í heimsmeistaraeinvíginu í skák:
„Halda syni Kortsnojs
fram í maí á næsta ári”
Sovétmenn kannast ekki við að hafa lofað neinu
„Auövitað vill Kortsnoj sameinast
fjölskyldu sinni. Hann vill fá hana til
sin, hingað tU Sviss. En ekkert mun
gerast, þú veist hvernig Sovétmenn
eru,” sagði Petra Leeuwerik, ritarí
Viktors Kortsnojs, i samtall við dag-
blaðið i morgun. Ekki reyndist unnt
að ná tali af stórmeistaranum sjálf-
um. Hann hefur nú lokað sig af til að
undirbúa sig fyrir einvigið.
„Við höfum gert allt til að ieysa
þau úr haldi. En nú segja Sovétmenn
að þeir eetli að halda Igor (syni Korts-
nojs) i fangelsi þar tU i med á naesta
ári. Þeir œtla ekki að sleppa honum
fyrir einvfgiö.
Þegar Sovétmenn vUja fá sfnum
vilja framgengt þá lofa þeir öllu
fögru. Þannig er aðferð Sovétmanna.
Þeir lofa tU að fá það sem þeir vUja. '■
Svo þegar þeir hafa fengið það þá
hafði engu veriö lofað. Þá kannast
þeir ekki við aö hafa sagt neitt,”
sagðiPetra, ritariKortsnojs. -KMU.
„Ég hélt, sannast sagna, aö slikt
væri ekki til.hér i Reykjavik,” sagði
velviljuð kona, sem hafði samband
við DB á laugardag eftir að hafa lesið
frásögnina af öryrkjunum við
Grjótagötu i Dagblaðinu.
„Mér rann þetta svo til rifja að ég
ákvað að biðja ykkur að koma til
þeirra sjálfvirkri kaffikönnu, sem
legið hefur ónotuö hjá mér f nokkur
ár. Mér fannst það orðið slæmt þegar
fólk getur ekki lengur heUt upp á
kaffi — það eru lágmarks mannrétt-
indi,” bætti konan við, en vildi ekki
láta nafns sins getiö.
Dagblaðsmenn fóru þvi af stað í
gær, sóttu könnuna góðu — forláta
grip — og komu henni til fólksins að
Grjótagötu 14. Gleði þess var ósvikin
en fölskva sló þó á þvi ekkert kaffi
var til i húsinu er DB menn bar að
garði.
„Viö sveltum bókstaflega,” sagði
eiginmaðurinn, Ásgeir H.P. Hraun-
dal. „Það er ekkert matarkyns til i
húsinu og hefur ekki verið um helg-
ina,” bætti hann við. „Við fórum
fram á 500 króna styrk í vikunni en
var þverneitað. Við höfðum meira að
segja samband við aðstoðarmann fé-
lagsmálaráðherra, Arnmund Bach-
mann, og báðum hann ásjár, en
aUt kom fyrir ekki,” bætti Ásgeir við
og kvað þau vafalítið geta skrimt
með einhverjum ráðum fram tU þess
10. þegar örorkubæturnar verða
greiddar út.
Dagblaðsmenn færðu þeim kaffi
og þau geta þvi hellt upp á könnuna
— eitthvað fram eftir morgundegin-
um ef spart er með farið — þökk sé
könnunni góðu. Kaffið er hins vegar
það eina, sem þau geta huggað sig við
á meðan þau bfða eftir
örorkubótunum, matarlaus.
-SSv.
Agítst Hraundal lesfrásögn DB af högum hans og konu hans. Á borðinu stendur kaffikannan góða sem blaðamaður Dagblaðsins (til vinstri) fœrði þeim frá velvilj-
uðum lesanda I gœrkvöld. DB-mynd: Sig. Þorri.
frjálst, úháð daghlað
MÁNUDAGUR 7. SEPT. 1981.
Mæðgin fór-
ust íbílslysi
Kona á tuttugasta aldursári, Jóna
Auður Guðmundsdóttir, og hálfs ann-
ars árs sonur hennar, Viktor Sigurðs-
son, létu lifið i umferðarslysi á Grinda-
víkurvegi á laugardagsmorgun. Systur-
sonur konunnar sem lézt, tveggja ára
gamall, slapp lítið meiddur úr slysinu.
Slysið varð laust eftir klukkan tíu á
laugardagsmorguninn móts við Sel-
tjörn. Konan ók í Volvobifreið, árgerð
1971, í átt til Grindavikur, en þar býr
hún.
Sjónarvottar voru að slysinu, í bil
sem á eftir ók. Segja þeir að Volvobíll-
inn hafi farið örlitið út fyrir brún veg-
arins en ökumanni sfðan tekizt að
sveigja aftur upp á veginn. Þá valt
Volvobillinn á veginum og þau sem lét-
ust köstuðust út úr honum við veltuna
meðfyrrgreindumafleiðingum. -ASt.
Gengurvel
hjá Margeiri
og Jóni L
— Á alþjóðlegu skák-
móti íManchester
,,Ég er að vísu peði undir en tel mig
samt eiga möguleika á jafntefli,” sagði
Jón L. Árnason skákmeistari í samtali
við DB i gærkvöid. Hann teflir nú
ásamt Margeiri Péturssyni á sterku al-
þjóðlegu móti i Manchester á Englandi
og á biðskák á móti Tony Miles. Taldi
Jón f gærkvöld að sú biðskák yrði tefld
nú í morgun og svo fjórða umferð
mótsins síðdegis í dag.
Margeir Pétursson vann báðar sínar
skákir um helgina og er nú með tvo
vinninga. Jón L. er með tvo vinninga
og biðskák eftir þrjár umferðir á mót-
inu. Þar tefla nærri 60 manns, þar af 5
stórmeistarar og 20 alþjóðlegir meistar-
ar. -ÓV.
íoKTkTI
IVIKU HVERRI
Ferönskrifstofan
ÚTSÝN
Vinningur vikunnar
er Útsýnarferð
til Marbella.
Vinningur I þessari viku er Vt-
sýnatferð til Marbella með ferða-
skrifstofunni Vtsýn, Austurstrœti
17 Reykjavlk. 1 vikunni verður
birt, á þessum stað I blaðinu,
spurning tengd smáauglýsingum
Dagblaðsins. Nafit heppins áskrif-
anda verður siðan birt daginn eftir
t smáauglýsingunum og gefst hon-
um tœkifœri til að svara spuming-
unni. Fylgizt vel með, áskrifendur.
Fyrir nœstu helgi verður einn ykk-
arglœsilegri utanlandsferð rikari.
-Mi^
diet pepsi
MINNA EN EIN
KALÓRÍA í FLÖSKU
Sanilns