Dagblaðið - 24.10.1981, Síða 4
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1981.
MUNIÐ AÐ AURAR
ERU LÍKA PENINGAR
*
Ótrúlega margir
„skjótasérábakvið”
myntbreytinguna með
verðhækkanir
-
„Mig langar aðbiðja ykkur um að
koma með áskorun lil fólks að halda
vöku sinni vegna myntbreytingarinn-
ar, það er hvert verðgildi smáaura
er,” segir m.a. i bréfi frá konu í
Kópavogi.
„Lítið dæmi um hvernig
kaupmenn notfæra sér mynt-
breytinguna. Nýlega keypti ég
pylsubrauð i bakaríi (Nýja
kökuhúsið, Hamraborg) og kostaði
það 2 kr. stykkið. í flestum mat-
vörubúðum kostar pylsubrauð
1,25—1,40 kr.stykkið.
Þetta virðist ekki skipta máli í
fljótu bragði, en annað kemur í ljós
ef breytt er í gamlar krónur. Þá er
munurinn 60—75 kr. á hvert stykki
af pylsubrauðinu!”
Ríkið gengur
alltaf á undan
Þetta er rétt og tímabær áskorun
hjá E. B. Það er sannarlega ástæða til
þess að biðja fólk að staldra aðeins
við og athuga hvert verðgildi
peningannaer.
Annarserekkertskrítiðþótt allur
almenningur i þessu landi sýni smá-
aurunum lítilsvirðingu. Ríkið sjálft
gengur á undan þegnum sinum og af-
nemur með lagasetningu aurana í
„ríkis búskapnum”. Ríkið þarf ekki
að reikna með aurunum í sinum út-
reikningum. Hins vegar var öllum
kaupmönnum og öðrum fyrirtækjum
í landinu gert að breyta tölvu-
stillingum og peningakössum til þess
hluta. Bréfritari nefnir pylsubrauð
sem verðlagt er á 2 kr. Hægt er að fá
heilt 500 gramma brauð fyrir rúml. 7
kr. Víkingabrauðin, og ýmis önnur
„góð” brauð, kosta 12 kr., sem
mörgum þykir óskaplegt verð. — Ég
er nefnilega búin að elda tómatsúpu
úr pakka og kostaði hún 3,50 (að vísu
var hún keypt fyrir nokkru)! — í gær
sá ég lítinn poka með
súkkulaðihúðuðum rúsínum. Pokinn
kostaði 8 kr.!!!! Eða 800 gamlar
krónur. Rúsínurnar í pokanum voru
ekki fleiri en svo að vel væri hægt að
telja þær, varla meira en 5—10
Raddir
neytenda
E,B. nefnir pylsubrauð sérstaklega 1 grein sinni. Við fengum að taka mynd af pylsubrauðum hjá Bridde á Háaleitisbrautinni.
Þar kosta pylsubrauðin 2 kr., og bakarínn sagði okkur að það væri alls ekki of hátt verðlag, þvi vel værí boríð i deigið
Pylsubrauð væru ekki öli bökuð úr sama deiginu og misjafnlega mikið i þau boríð,” sagði bakarinn. Við höfum einnig tekið
eftir þvf að ekki aðeins pylsubrauð eru mismunandi frá einu bakaríi til annars, heldur yfirleitt allt bakkelsi sem boðið er upp
DB-mynd Krístján Örn.
æri að reikna með
Fimm skrokkar og
þrjátíu sviðahausar
— kosta sannarlega sitt, segir húsmóðir á tíu manna heimili
Elskulegu umsjónarkonur neytenda-
síðu!
Ástæðan til þess að ég sezt og
sting niður penna er sú að mig langar
til að vita hvort þið hafið séð ljótari
útkomu á einum mánaðarseðli en
Allur akstur
krefst
varkárni
Ytum ekki barnavagnl
á undan okkur við
aðstæður sem þessar
*l3SEno“
þennan lestur, sem ég er nú að byrja
að setja niður á blað fyrir ykkur,”
segir í bréfi frá konu sem kýs að
skrifa undir nafnnúmeri sínu.
Þá er fyrst til að taka það sem mér
telst til að farið hafl í fatakaup á
fjölskylduna, það er samanlagt 2480
kr. 1 þessari tölu eru skólaföt á þrjú
börn, skólataska handa einu þeirra,
tvennar gallabuxur á húsbóndann og
fjögur pör af stígvélum, en bara þau
kostuðu samanlagt yfir þúsund
krónur. Hitt og þetta, sem flokkast
undir liðinn annað, eins og t.d.
endurnýjun á ökuskírteini,
kistuskreyting, bækur, litir, pennar
og fleira til skólans.leirtau í staðinn
fyrir það sem búið er að mölva á
stóru heimili yfir heilt sumar og
sitthvað fleira, kr. 1680. í heild er
liðurinn annað upp á 4160 kr.
Þá eru það næst matarkaupin, en
þau eru í tvennu lagi hjá mér. Dagleg
matarkaup kostuðu mig 5890 kr.
Samt voru frystigeymslur heimilisins
orðnar því sem næst tómar í byrjun
september. Það var ekki fyrr en 25.
september, sem ég fer að kaupa inn
haustmat, en þar bætast við 3.467 kr.
í þeirri tölu eru fimm kjötskrokkar,
þrjátíu sviðahausar og annar
innmatur. Samanlögð matarinnkaup
í september eru því 9357 kr. Dáfalleg
upptalning þetta. Og ég er ekki búin
að kaupa allan haustmat ennþá.
Ég er búin að margfara yfír alla
reikninga og bókhaldið mitt þennan
mánuð, en þessi útkoma stendur. Ég
er alveg viss um að ekki einu sinni
desembermánuður verður verri hjá
mér.
í september vorum við tíu í
heimili, að jafnaði. Þar við bættist
gestagangur sem er að öllum jafnaði
ærinn á sveitaheimilum yfir réttirnar.
Heimilið hér var víst engin undan-
tek-ning þar á.
Mér finnst það mikið aðhald með
eyðsluna að fylgjast með í hvað
peningarnir fara. Ég er fullviss um
að þó eyðslan í september sé mikil,1
finn ég ekkert sem má kalla hreinan
óþarfa. Kannski eitthvað sem hefði
mátt fresta fram í þennan mánuð en
ekkilengur.
Ég ætla að halda áfram að senda
inn seðla núna, það er hreinn
trassaskapur hjá mér að hafa ekki
gert það að staðaldri fyrr. Ég hef sent
inn einn og einn seðil á löngum
tíma.
Beztu þakkir fyrir gott framlag
ykkar í neytendamálum, þar eru
mörg göt og stór sem þyrfti að stoppa
í.”
7996—6320.
Umsjónarmenn neytendasíðunnar
þakka kærlega fyrir þetta
skemmtilega bréf.
Við fullvissum bréfritara um, að
við höfum oft áður séð hrikalegri
tölur heldur en voru á hennar seðli.
Okkur þykir bréfritari hafa gert
heldur en ekki góð innkaup á fatnaði
fyrir fjölskylduna. Við bendum á
grein annars staðar hér á síðunni, þar
sem rætt er um verðlag á kven-
fatnaði í höfuðborginni, svona rétt
til að bera saman verðlag!
Heimilisbókhald veitir á-
reiðanlega heilmikið aðhald. Það eru
allir á einu máli um það. Við
hvetjum sem allra flesta til þess að
vera með og senda okkur mánaðar-
legan upplýsingaseðil. -A.Bj.
að hægt v
aurunum.
Það er eins og þeir sem ráða
ferðinni hjá ríkinu geri sér ekki grein
fyrir því að aurarnir mynda krónuna.
Hægterað nefna mýmörg dæmi
um verðhækkanir, þar sem gríðarleg
verðhækkun hefur verið fram-
kvæmd, ef svo má segja, i skjóli við
myntbreytinguna. Er þar gott dæmi
sem stöðumælagjaldið er. Á einu
bretti hækkaði það úr tíu gömlum
krónum í eina nýja krónu, var sem sé
tífaldað svona rétt eins og ekkert
væri. Enginn maður sagði eitt einasta
orð!
Annars virðist vera mikið
ósamræmi í verðlagningu ýmissa
grömm. Lakkrísrúlla kostar (stór)
2,50 eða 250 gamlar krónur.
Ein samloka, sem er illa til vandað
í alla staði, kostar 15 kr., eða hálft
annað þúsund gamlar krónur. Þó
gekk alveg fram af mér þegar ég
ætlaði að kaupa næstminnsta
baukinn af bernaisósu (i Aski) til að
hafa með heimaelduðum kjúklingi.
Dollan átti að kosta 22 kr. (þetta var
I sumar) og varla nema eins og upp í
nösáketti!
Gallinn er bara sá að erfítt er að
fá uppgefið hvað þessir hlutir
kostuðu fyrir áramótin. Þá er líka
erfitt að reikna út „eðlilega”
verðhækkun á þeim. Ég er hins vegar
hjartanlega sammála bréfritara og
öðrum, sem um þetta mál hafa ritað,
að fjölmargir hafa skotið sér á bak
við myntbreytinguna — fyrir utan að
allir skjóta sér á bak við
gengisfellingar, jafnvel á tímabílum
sem gengið er stöðugt og hreyflst
ekki nokkurn skapaðan hlut.
Og svona í lokum á þessari
umræðu, í bili, sakar ekki að geta
þess að fyrir nokkrum dögum mátti
sjá í kvenfataverzlun í miðbænum
pils og jakka, sem kostuðu 2.600 kr.
Ég hef einnig frétt af kvenkjólum á
markaðinum hér og kosta þeir 3.500
kr., en hef hins vegar ekki séð það
með eigin augum. -A.Bj.
lUpplýsingaseðill
! til samanbitóar á heimiliskostnaði
| Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlega sendið nkkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak-
andi i upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar
' fjðiskyldu af sðmu stærð og yðar. Þar að auki eigið þér von um að fá nvtsamt heimilis-
'1 tæki.
| Nafn áskrifanda___________________________________________
I
i
Heimili
Sími
I Fjöldi heimilisfólks.
Kostnaður í septembermánuði 1981
i Matur og hreinlætisvörur kr.
i Annað
Alls
kr.
kr.
JBB vinw