Dagblaðið - 24.10.1981, Síða 23
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1981.
23
ÞÁTTUR í TILEFNIVETRARKOMU
~ útvarp í kvöld kl. 20,50:
Ollu betri er vetur-
inn en Tyrkinn
Árni Björnsson þjóðháttafræðingur
segir í kvöld frá veturnáttafögnuðum,
eins og þeir tíðkuðust í heiðnum sið.
Hann fær ennfremur Brynju Bene-
diktsdóttur til að lesa ýmis kvæði um
veturinn, eitt eftir Bjarna Thorarensen
og annað eldra frá 17. öld, þar sem
veturinn er borinn saman við Tyrkjann
og hefur betur.
Margt annað skemmtilegt hefur
Árni tínt til. Má þar nefna
ýkjukvæði um bónda, sem fór um alla
veröld að heyja fyrir kúna sína og er
viðlagið „Ósköp þarf fyrir eina kú um
vetur.” Þá er gripið niður í Þórberg og
loks lesið brot úr einni af hugvekjum
Péturs Péturssonar biskups. Síðustu 70
árin eða svo áður en útvarpið kom var
hún lesin á flestum bæjum landsins í
vetrarbyrjun, að sögn Árna.
Á sunnudaginn fá áhugamenn um
stjórnmál ýmislegt við sitt hæfi. Meðal
annars flytur Gylfi Þ. Gislason erindi
um verðbólguna á íslandi kl. 16.20.
Þá má minna á að fyrr um daginn,
kl. 16.20, er endurtekinn tiu áragamall
þáttur Jökuls Jakobssonar um tíma-
reikning: Tikk-takk, tikk-takk . . .
Hann tengist ekki vetrarkomu beint,
en Jökull ræðir um efnið við fjóra
menn: úrsmið, stjörnufræðing, biskup
og heimspeking, og verður það
áreiðanlega ekki leiðinlegt.
Útvarpsefni sunnudagsins höfum
við því miður ekki tök á að gera sóma-
samleg skil að þessu sinni, en bendum
áhugamönnum um stjórnmál á, að
ýmislegt er þar við þeirra hæfi. Dr.
Gylfi Þ. Gíslason flytur erindi um
verðbólguna kl. 16.20, dr. Arnór
Hannibalsson talar um atburðina í
Ungverjalandi kl. 19.25 og loks heldur
Hannes H. Gissurarson áfram með
þætti sína um „Raddir frelsisins” kl.
20.30. -ihh.
Árni Björnsson hefur tint til ýmislegt
sem tengist vetrarkomu.
I sumar sem leið var i fyrsta sinn haldið svokallað Reykjadalsmót i íþróttum og hér er Óttar Kjartansson, form. SLF, að
heiðra sigurvegara i 25 m baksundi. Börnin heita (f.v.) Vignir Pálsson, Sigvaldi Búi, Valgeir Ölafsson og Kristrún Guð-
mundsdóttir.
Mynd: Bjarnleifur.
DAGUR í REYKJADAL—sjónvarp annað kvöld kl. 20,50:
Fötluð börn í sumardvöl
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
hefur mörg undanfarin ár rekið
sumardvalarheimili fyrir fötluð börn
að Reykjadal í Mosfellssveit. Börnin
eigakost á styrkjandi útiveru, því að
þarna er ágæt sundlaug og önnur
aðstaða til útiveru. Þau fá að fara á
hestbak og fleira er gert þeim til
skemmtunar.
í fyrrasumar lét félagið gera kvik-
mynd. sem lýsir einum degi barnanna
á þessum stað. Hún sýnir ýmsar
hliðar á lífi þeirra. Það er erfitt fyrir
þau að komast í föt og spelkur á
morgnana, sum geta ekki matast
hjálparlaust og öll þurfa þau mikla
aðstoð og umönnun. En það er reynt
aðgleðja þau eftir föngum og
fylgjast náið með heilsufari þeirra.
Hjálmtýr Heiðdal, hjá kvik-
myndagerðinni Sýn, samdi handrit
og stjórnaði upptöku og vinnslu.
Guðmundur Bjartmarsson kvik-
myndaði en Sigurður Snæberg
Jónsson klippti. Magnús
Bjarnfreðsson er höfundur og lesari
texta en öll var myndin unnin í
samráði við Andreu Þórðardóttur,
forstöðukonu í Reykjadal.
-ihh.
14.00 „Þú spyrö mig um haustiö”.
Njörður P. Njarðvík tekur saman
dagskrá um haustljóð islenskra nú-
tímaskálda. Lesarar með honum
eru: Halla Guðmundsdóttir, Helga
Jónsdóttir og Þorsteinn frá Hamri.
15.00 Regnboginn. Örn Petersen
kynnir ný dægurlög af vinsælda-
listum frá ýmsum löndum.
15.35 Kaffitíminn.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Veröbólgan á Islandi. Dr.
Gylfi Þ. Gíslason flytur sunnu-
dagserindi.
17.00 Tónskáldakynning: Jón Þór-
arinsson. Guðmundur Emilsson
ræðir við Jón Þórarinsson og
kynnir verk hans. Fyrsti þáttur af
fjórum. I þættinum segir
Jón frá námsárum sinum hér
heima og erlendis og flutt verða
sönglögeftir hann.
18.00 Klaus Wunderlich leikur vin-
sæl lög á Hohner-rafmagnsorgel.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 Um atburði 1 Ungverjalandi i
oklóber 1956. Dr. Arnór Hanni-
balsson flytur siðara erindi sitt.
20.00 Harmonikuþáttur. Kynnir:
Högni Jónsson.
20.30 Raddir frelsisins — þriðji
þáttur. Umsjónarmaður: Hannes
H. Gissurarson. Lesari: Steinþór
Á. Als.
21.00 Serenaöa í D-dúr KV 320,
„Pósthorns-serenaða” eftir Wolf-
gang Amadeus Mozart. Sinfóniu-
hljómsveit útvarpsins í Frankfurt
leikur; Caspar Richter stj.
21.35 Að tafli. Guðmundur Arn-
laugsson flytur síðari þátt sinn um
Bronstein.
22.00 Hljómsveit Johns Warrens
leikur létt iög.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dag-
skrá morgundagsins. Orð kvölds-
ins. ,
22.35 Eftirminnileg ltalíuferð. Sig-
urður Gunnarsson fyrrverandi
skólastjóri segir frá (5).
23.00 Danslög.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Mánudagur
26. október
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn. Séra Jón Dalbú Hróbjarts-
son flyturfa.v.d.v.).
7.15 Leikfimi. Umsjónarmenn:
Valdimar Örnólfsson leikfimi-
kennari og Magnús Pétursson
píanóleikari.
7.25 Morgunvaka. Umsjón: Páll
Heiðar Jónsson. Samstarfsmenn:
Önundur Björnsson og Guðrún
Birgisdóttir. (8.00 Fréttir. Dag-
skrá. Morgunorð: Jóhanna Jó-
hannesdóttir talar. 8.15 Veður-
fregnir).
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna.
„Kattafárið” eftir lngibjörgu
Jónsdóttur. Gunnvör Braga les.
Sögulok(5).
9.20 Leikfimi. Tilkynningar. Tón-
leikar.
9.45 Landbúnaðarmál. Umsjónar-
maður: Óttar Geirsson. Bústörf i
byrjun vetrar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.30 Atriði úr þekktum óperum.
Hljómsveit Metropolitan-óperunn-
ar, Robert Shaw-kórinn o.fl.
fiytja.
11.00 Forustugreinar landsmála-
blaða (útdr.).
11.25 Létt tónlist. Flytjendur: Lenn-
art Báckman og hljómsveit, „Sver-
iges Hot Six” og Burl Ives.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar.
Mánudagssyrpa. — Ólafur Þórð-
arson...
15.10 „Örninn er sestur” eftir Jack
Higgins. Ólafur Ólafsson þýddi.
Jónína H. Jónsdóttir les (11).
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Útvarpssaga barnanna:
„Niður um strompinn" eftir Ár-
mann Kr. Einarsson. Höfundur
byrjarlesturinn (1).
16.40 Litli barnatiminn. Stjórnandi:
Finnborg Scheving. Efni m.a.:
Valgerður Hannesdóttir les
„Segðu mér sögu” eftir Tiitus i
þýðingu Þorsteins frá Hamri.
Laugardagur
24. október
17.00 íþróttir. Umsjón: Bjarni
Felixson.
18.30 Kreppuárin. Attundi þáttur.
Þetta er annar þáttur af þremur frá
danska sjónvarpinu. Hann fjallar
um Rikke, tíu ára gamla stúlku.
sem er nýflutt til borgarinnar.
Þýöandi: Jóhanna Jóhannsdóttir.
Þulur: Bogi Arnar Finnbogason.
(Nordvision — Danska
sjónvarpið).
19.00 Enska knattspyrnan. Umsjón:
Bjarni Felixson.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veöur.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Ættarsetrið. Breskur gaman-
myndafiokkur. Þriðji þáttur.
Þýðandi: Guðni Kolbeinsson.
21.05 Tónheimar. Tónlistarþáttur
frá norska sjónvarpinu með hljóm-
sveitinni Dizzie Tunes, Grethe
Kausland og Benny Borg.
Þýðandi: Björn Baldursson.
(Nordvision — Norska
sjónvarpið).
21.35 Einn var góður, annar iilur og
sá þriðji grimmur (The Good, The
Bad and the Ugly). ítalskur vestri
frá 1966. Leikstjóri: Sergio Leone.
Aðalhlutverk: Clint Eastwood, Eli
Walach og Lee Van Cleef.
Þýðandi: Björn Baldursson.
Myndin er ekki við hæfi ungra
barna.
00.05 Dagskrárlok.
- Sunnudagur
25. október
18.00 Sunnudagshugvekja. Séra Jón,
Einarsson, sóknarprestur í Saurbæ
áHvalfjarðarströnd, fiytur.
18.10 Stundin okkar. Umsjón:
Bryndis Schram. Stjórn upptöku:
Elin Þóra Friðfinnsdóttir.
19.00 Karpov gegn Kortsnoj. Skák-
skýringaþáttur í tilefni af heims-
meistaraeinvíginu i skák i Merano
á ítaliu.
19.20 Hlé.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Sjónvarp næstu viku.
Umsjón: Magnús Bjarnfreðsson.
20.50 Dagur í Reykjadal. Styrktar-
félag iamaðra og fatlaðra lét gera
þessa mynd. Hún sýni'r dag i llfí
fatlaðra barna i sumarbúðum
styrktarfélagsins í Mosfellssveit.
Framleiðandi: SÝN. Þuiur og
höfundur handrits: Magnús
Bjarnfreðsson.
21.15 Myndsjá (Moviola). Ljóska
ársins. Bandarískur myndafiokkur
um frægar Hollywood-stjörnur.
Þessi þáttur er sá siðasti og fjallar
um upphaf ferils Marilyn Monroe.
Þýðandi: Dóra Hafsteinsdóttir.
22.50 Dagskrárlok.
Inngangur:
Restaurant
HORNIÐ
Hafnarstræti 15.
HLILDSÖLUBIRGDIR:
Júlíus Sveinbjörnsson,
SNORRABRAUT6! -SÍMI 20480.
„Privat”fyrir dömur!