Dagblaðið - 29.10.1981, Side 6
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1981.
Erlent
Erlent
Erfent
Erlent
D
Keppendurnir tveir um heimsmeistaratitilinn i skák, Karpov og Kortsnoj, þurfa að
taka mikið á og hugsa þvi vel um lfkamlega heilsu sína. Þeir gera leikfimiæfingar dag
hvern og hér sést Kortsnoj að loknum slikum æfingum. Hann er nr. 2 á myndinni, en
með honum eru tveir júgóslavneskir blaðamenn sem óska honum einlæglega sigurs og
blaðafulltrúi hans, Eduard Stein, sem einnig er landflótta Rússi.
Einskis svifizt til
að auka kynhvötina
Quaaludes eru svefnpillur sem uröu
skyndilega svo vinsælar 1 suður-
Flórída að lyfsalar þar neita nú að hafa
þær á söluskrá. Hafa margir þeirra
meira að segja sett skilti í gluggann til
að tilkynna að þær séu ekki fáanlegar.
Ekki stafa þessar miklu vinsældir þó af
eiginleikum þeirra til að svæfa fólk
heldur þeim aukaverkunum er fólk
trúir að þær hafi, að auka kynhvötina.
Og ástæðan fyrir óánægju lyfsala var
ekki hin mikla sala heldur að það varð
sífellt algengara að viðskiptavinirnir
kæmu vopnaöir byssum í stað peninga
til að harka þær út úr þeim.
Einnig voru óprúttnir læknar farnir
að iðka það að setja upp „stress-
miðstöðvar” þar sem fólk gat látið
rannsaka sig fyrir 100 dali og fengið
þann úrskurð að það þyrfti nauðsyn-
lega á quaaludes að halda. Fylkis-
stjórnin í Flórída hefur nú látið rekja
nær 200.000 lyfseðla til 150 aðila, þar á
meðal eru 11 læknar, einn tannlæknir,
einn dýralæknir, 11 lyfsalar og eitt elli-
heimili.
Efstir á lista eru tveir rosknir læknar
sem rekið hafa „stress-miðstöð” í út-
hverfi í Miami. Er annar þeirra
ákærður fyrir að gefa út 4231 lyfseðil á
tæpu ári fyrir samtals 149.905 quaa-
ludes töfium. Á sama tíma hefur hinn
gefið úr 2710 lyfseðla fyrir 76.341
töflum.
Brezk sjónvarps-
útsending í Noregi
Norðmenn búa sig nú undir að taka
við brezkri sjónvarpsútsendingu
gegnum gervihnött í viðbót við þær
tvær sænsku sjónvarpsstöðvar sem um
milljón Norðmanna nýtur góðs af —
án þess að greiða eyri fyrir. Nokkrum
áhyggjum olli þó að brezka sjónvarps-
stöðin Satelite Television í London,
sendir líka út auglýsingar og var óttazt
aðþarmeðgætu slæðzt „bannvörur”
eins og tóbak og áfengi.
Satelite Television hefur nú huggað
Hallvard Bakke, þingmaður.
Norðmenn með því að fólks verði ekki
freistað meðslíkri óhollustu.
— Við fylgjum þeim reglum sem
Independent Broadcasting Authority
hefur sett fyrir auglýsingar á Bretlandi,
segir talsmaður fyrirtækisins. — Og
þar er bannað að auglýsa vindlinga og
sterkadrykki.
Bannið nær þó ekki til piputóbaks,
vindla og bjórs. Bjórframleiðendur í
Bretlandi kjósa þó fremur að auglýsa í
ódýrari fjölmiðlum en sjónvarpi og
framleiðendur vindla og píputóbaks
bera ekki við að nota sjónvarp til
auglýsinga.
Formaður fjölmiðlanefndar ríkisins,
þingmaðurinn Hallvard Bakke, sagði í
þessu sambandi að þróunin væri slík að
þýðingarlaust væri að reyna að halda í
einkarétt rikissjónvarpsins.
— Það eina sem ríkissjónvarpið
getur gert til að hamla á móti nei-
kvæðum áhrifum erlendra sjónvarpsút-
sendinga er að bæta sitt eigið pró-
gramm svo þeir verði samkeppnisfærir,
sagði hann. — Reynslan frá öðrum
löndum sýnir að fólk kýs heldur að
horfa á innlendar útsendingar — ef
þær eru nógu góðar.
METSALA
Ný þýðing á Biblíunni á sænsku, sem
út kom fyrir skemmstu, er nú metsölu-
bók í Svíþjóð. Að útgáfunni og þýðing-
unni stóð sérstök biblíunefnd á vegum
ríkissins sem var undir stjórn Karls
Venneberg fyrrum menningarritstjóra
Aftonbladet. Undir hans stjórn störf-
uðu um hundrað manns að þýðingunni
og voru átta ár að störfum.
Nýja Biblían kostar 60 sænskar
krónur. Um 300 þúsund eintök voru
seld fyrirfram en öðrum 200 þúsundum
var dreift í bókaverzlanir og þar er
bókin að verða uppseld. önnur biblíu-
útgáfa kom út á sama tíma í þýðingu
Gertz biskups, en hún á ekki sömu
velgengni að fagna. Hún var aðeins
prentuð í 10 þúsund eintökum og er
ekki samkeppnisfær um verð því hún
kostar 75 krónur sænskar.
hér fynr ofan má sjá nýja fljótandi laxcldistöð 1 Halsa 1 Skálavfkurfirði f Noregi. Þykir þetta einhver fullkomn-
asta laxeldistöð þar i landi og mun hafa reynzt með afbrigðum vel.
Laxeldistöðin samanstendur af 18 nótum og bryggju sem er 18 sinnum 11 metrar að stærð. Á bryggjunni er aðstaða til
frystingar og vinnslu á fiskinum, allt þar til hann er sendur þaðan pakkaður f neytendaumbúðir. Þar er einnig aðstaða fyrir
starfsfólk og pallur til hreinsunar og viðgerða á nótunum. Þar er að auki góð birgðageymsla.
Reynslan af laxeldistöðinni þykir lofa góðu, ekki sizt það nýmæli að færa alla starfsemina þangað sem fiskurinn er en
þurfa ekki að flytja hann mikið til. Bryggjan er einnig fljótandi i sjónum og fest tryggilega niður með akkerum, þannig að
hún er óháð áhrifum flóðs og fjöru. Hún er byggð líkt og skip að því leyti að í henni eru mörg vatnsþétt hólf úr stáli. Allur út-
búnaðurinn er sagður kosta 1,2 milljónir norskra króna.
t notkun eru nú 24 AWACS radarflugvélar og hér sjást tvær þeirra sem staðsettar eru á Keflavikurflugvelli. Utan Bandarikj-
anna hafa slíkar vélar einungis fast aðsetur á tslandi og i Japan, en auk þess eru vélar staðsettar tfmabundið í Egyptalandi og
Saudi-Arabfu.
Löngu ágreiningsmáli Bandaríkjaþings og Reagans lokið:
Öldungadeildin
heimilar sölu á
radarflugvélum
— talið mikill sigur fyrir utanríkisstefnu Bandaríkjaforseta
Öldungadeild Bandaríkjaþings
samþykkti í gær með 52 atkvæðum
gegn 48 að heimila sölu AWACS rad-
arflugvéla til Saudi-Arabíu.
Heimild þessi hefur verið eitthvert
mesta hitamál sem komið hefur fyrir
bandaríska þingið í tíð Reagans for-
seta og hann hefur lagt óvenjumikla
áherzlu á að þingið veitti þessa heim-
ild. Málið hefur verið til umræðu í
átta mánuði og leit ekki byrlega út
fyrir Reagan er fulltrúadeild þingsins
neitaði með miklum meirihluta fyrir
tveimur vikum síðan að veita heim-
ildina. Neitun beggja þingdeildanna
þurfti til að stöðva söluna.
Reagan hefur átt fundi með þeim
þingmönnum að undanförnu til að
telja þá á mál sitt og honum tókst að
lokum að fá stuðning nokkurra
þeirra sem áður tóku afstöðu gegn
sölunni. Samþykkt öldungadeildar-
innar þykir mikill sigur fyrir utan-
ríkisstefnu stjórnarinnar. Reagan
sendi þingdeildinni bréf í gærmorgun
þar sem hann sagði að tryggt myndi
vera að radarflugvélarnar yrðu ekki
notaðar til að stjórna árásum á ísra-
elsríki og einnig yrði tryggt að þær
kæmust ekki í hendur óvina Banda-
ríkjanna.
Radarflugvélarnar fimm, sem
Saudi-Arabar hafa nú fengið heimild
til kaupa á, eru hluti af stærri vopna-
kaupasamningi sem þeir hafa gert við
Bandaríkin og hljóðar upp á 8,5 mill-
jarða Bandaríkjadollara. Að auki
hljóðar samningurinn upp á kaup á
eldsneytisflugvélum, skriðdrekum og
flugskeytum. Radarflugvélarnar
verða ekki afhentar fyrr en árið 1985.
Þær þykja einhver fullkomnustu her-
gögn Bandaríkjanna.
AWACS vélarnar eru venjulegar
Boeing 707 flugvélar sem útbúnar eru
háþróuðum rafeindabúnaði og radar-
diski ofan á. í notkun eru nú 24
slíkar vélar þar af 14 staðsettar í
Bandaríkjunum, fjórar í Saudi-Ara-
bíu, 2 í Egyptalandi, tvær á Okinawa
í Japan og tvær eru staðsettar hér á
Keflavíkurflugvelli. Vélarnar sex í
Saudi-Arabíu og Egyptalandi eru þar
vegna tímabundinna verkefna og þær
eru í eigu og umsjá Bandaríkja-
manna. Fyrirhuguð er sala 18 radar-
flugvéla til ríkja Atlantshafsbanda-
lagsins og er ein vél þegar komin til
Evrópu til undirbúnings því.
ísraelsmenn hafa harmað að öld-
ungadeildin skyldi veita leyfi fyrir
sölu vélanna til Saudi-Arabíu og til-
kynnt hefur verið að ísraelska stjórn-
in muni, á fundi sínum í dag, sam-
þykkja sérstaka mótmælayfirlýsingu
til Bandaríkjastjórnar. Opinberir
embættismenn í fsrael hafa sagt að
stjórnin muni mótmæla því að
Bandaríkin selji óvinum Ísraelsríkis
svo skaðleg vopn ríkinu og að stjórn-
in muni áskilja sér fullan rétt til að
bregðast við því á viðeigandi hátt.
Engin yfirlýsing vegna úrslita málsins
hefur komið frá ríkisstjórn Saudi-
Arabíu en egypzka stjórnin hefur
látið 1 ljós ánægju sína.