Dagblaðið - 29.10.1981, Síða 7
7
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1981.
I
Erlent
Erlent
D
Sovézkur kafbátur á siglingu á Eystrasalti. Myndin er tekin af sænska hernum fyrir nokkrum árum og notuð sem sönnun
fyrir þvi að Sovétmenn hefðu kafbáta búna kjarnorkuvopnum á þessu svæði. Svíar mótmæltu þvi formlega við Sovétmenn að
kafbátarnir væru á Eystrasalti.
Alvarlegt brot á sænskri landhelgi, segir vamarmálaráðhetra Svíþjóðar.
Sovézkur kafbát-
ur strandaður f
sænskri landhelgi
— sænski herinn mun grípa til vopna ef Sovétmenn reyna að frelsa hann
„Við grípum til vopna ef Sovét-
menn reyna sjálfir að frelsa kafbát-
inn,” sagði sænski hershöfðinginn
Bengt Schuback seint í gærkvöldi. Þá
höfðu 12 herskip Varsjárbandalags-
ins safnazt saman við 12 mílna land-
helgi Svíþjóðar úti fyrir Karlskrona.
Sovézkur kafbátur er strandaður
mitt á mjög hernaðarlega mikilvægu
svæði i sænska skerjagarðinum suð-
austur af Karlskrona, en þar er. ein
stærsta flotastöð sænska sjóhersins.
Það mun hafa verið strax á þriðju-
dagskvöld sem kafbáturinn strand-
aði. Alla þá nótt reyndi hin sovézka
áhöfn að losa bátinn en án árangurs.
En það ar ekki fyrr en í gærmorgun
sem sjómenn á fiskibáti urðu kaf-
bátsins varir og gerðu sænskum yfir-
völdum viðvart. Kafbáturinn strand-
aði á skeri og stendur nú hálfur upp
úrsjó.
Sovézki kafbáturinn hefur verið
kominn það langt inn í sænska
skerjagarðinn er hann strandaði að
skýringar áhafnar hans um að
siglingatækin hafi bilað og hann
villzt þykja í hæsta máta ósennilegar.
Torsten Gustafsson, varnarmálaráð-
herra Svíþjóðar, sagði enda í gær-
kvöldi að þetta væri alvarlegasta
brotið á sænskri landhelgi frá því í
síðari heimsstyrjöldinni.
Olla Ulsten, utanríkisráðherra Sví-
þjóðar, kallaði sovézka sendiherrann
Mikhail Jakovlev þegar á sinn fund í
gær og bar fram mjög harðorð mót-
mæli sænsku stjórnarinnar.
Ullsten mætti í sjónvarpsviðtali
seint í gærkvöldi, klæddur smóking-
fötum. Hann kom beint í viðtalið frá
Dramaten í Stokkhólmi, þar sem
hann hafði verið viðstaddur leik-
sýningu sem var liður í opinberri
heimsókn Vigdísar Finnbogadóttur,
forseta íslands, til Svíþjóðar. Ullsten
sagði atburðinn úti fyrir Karlskrona
hinn alvarlegasta sem átt hefði sér
stað úti fyrir ströndum Svíþjóðar i
langan tima. „Kafbáturinn rauf
sænska landhelgi og var auk þess á
mjög hernaðarlega mikilvægu
svæði,” sagði hann. Ullsten sagði
aðspurður að það hefði ekki bætt
ástandið neitt þó sænska ríkisstjórnin
hefði raskað dagskrá heimsóknar
Vigdísar Finnbogadóttur með því að
sækja ekki leiksýninguna í Stokk-
hólmi vegna þessa máls.
Fjölmjörg sænsk herskip og bátar
eru á verði við kafbátinn og hyggjast
sjá til þess að áhöfn hans spilli ekki
neinum þeim gögnum er sýni hvert
erindi hann átti inn í sænska land-
helgi.
Engin opinber yfirlýsing hafði
borizt frá sovézku ríkisstjórninni í
gærkvöldi vegna þessa máls og
sænski sjóherinn bíður nú aðeins
skipunar frá ríkisstjórninni í Stokk-
hólmi um að draga kafbátinn af
strandstað. Reiknað er með að það
verði gert í dag. Ullsten utanríkisráð-
herra hefur neitað sovézkum her-
skipum sem bíða utan sænsku land-
helginnar um leyfi til að draga kaf-
bátinn af strandstað og sagt að það
myndi verða gert af sænskum
skipum.
Atburður þessi er talinn mjög póli-
tískt skaðlegur fyrir ráðamenn í
Kreml. Diplómatar í Moskvu sögðu í
gærkvöldi að atburðurinn væri ekki
sízt áfall með tilliti til hvatningar
sovétmanna um að komið yrði á
kjarnorkuvopnalausu svæði á
Norðurlöndum. Höfuðröksemdin,
loforð Sovétmanna um að þeir muni
ekki ógna Norðurlöndum, þykir eftir
atburðinn í sænska skerjagarðinum
engan veginn eins trúverðug og áður.
-GAJ, Lundi/ÓEF.
• ' w.
Vegna hræðslu við ofbeldismenn var útför Sadats Egyptalandsforseta hraðað sem mest og aðeins fáir útvaldir voru við-
staddir. Áhorfendur að sorgargöngunni voru varla aðrir en blaðamenn og Ijósmyndarar, sorgarmarsinn var leikinn á tvö-
földum hraða og jafnvel falskt. Erlendir heiðursgestir, þ.á m. þrír fyrrverandi Bandarfkjaforsetar, voru umkringdir öryggis-
vörðum og biðu ekki eftir því að kistan hyrB i gröfina.
Sadat hafði óskað eftir þvi að vera grafinn i Sinai eða i heimabx sinum, Miet Abul Koum. t stað þess var hann grafinn til
bráðabirgða i óvistlegu úthverfi f Kairó. Engar grátkonur settu svip sinn á útför hans en hins vegar var honum ekki gleymt í
heimabænum og sýnir myndin hér að ofan grátkonur syrgja leiðtoga sinn á útfarardaginn.
Sadat verður því bætt upp þetta viðhafnarleysi með því aö skipt verður um nafn á Frelsistorginu í Kaíró og það nefnt
Sadattorg. Einnig stendur tii að reisa þar styttu mikla af forsetanum.
Nám írafvirkjun
Óska eftir að komast í nám í rafvirkjun. Hef lokið undir-
búningsdeild í Iðnskólanum í Hafnarfirði.
Uppl. ísima 44448.
Restaurant,
HAFNARSTRÆTI 15
jSTARFSKRAFTUR ÓSKAST
Uppl. á skrifstofu Hornsins, 2. hæð, milli kl. 10 og 12 f.h. í
dag og næstu daga (Uppl. ekki í síma).
VERKAMANIMAFÉLAGIÐ
DAGSBRÚN.
FELAGSFUNDUR
verður í Hafnarbíói við Barónstíg laugardaginn 31. október
kl. 2. e.h.
Dagskrá:
I. Samningamálin.
II. Tillaga um verkfallsheimild.
Féiagsmenn, komið á fundinn.
Stjórnin.
VERZLIÐ “ -
ÓDÝRT^SÉ©
Roykt rúllupylsa.......kg verð 26,00 kf.
Hvalkjöt...............kg vorð 26,00 kr.
Hrefnukjöt.............kg vorð 27,00 kr.
Dilkalifur.............kg verð 40,30 kr.
Dilkahjörtu............kg verð 26,70 kr.
Dilkanýru..............kg verð 26,70 kr.
Dilkamör...............kg verð 6,40 kr.
Slagvefja með beikoni....... 29,00 kr.
Kjúklingar, 4 stk. í poka,.kg verð 54,00 kr.
Kjúklingar.............kg verð 61,00 kr.
Slög...................kg verð 14,50 kr.
Saltkjöt...............kg verð 38,95 kr.
Stórlúða í sneiðum.....kg verð 22,50 kr.
Strásykur..............kg verð 5,90 kr.
Kakó, 1/2 kg,............... 20,60 kr.
Flóru safi, 2,2 lítrar,..... 21,15 kr.
Flóru appelsínumarmelaði, 1,2 kg.,.... 19,95 kr.
Flóru blönduð sulta, 1,2 kg. 21,60 kr.
Flóru jarðarberjasulta, 1,2 kg,... .. ... 23,25kr.
0PIÐ í ÖLLUM DEILDUM:
Mánudaga — miðvikudaga kl. 9-
Fimmtudaga kl. 9—20.
Föstudaga kl. 9—22.
Laugardaga kl. 9—12.
-18.
JÓN
LOFTSSON H/F
HRINGBRAUT 121
SÍMI 10600
0PIÐ
m kl
8ÍKVÖL0