Dagblaðið - 29.10.1981, Blaðsíða 15
14
$
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1981.
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1981.
15
Iþróttir
Iþróttir
iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
I
HM íknattspymu:
ISRAEL MALAÐIPORTUGAL!
—og Norður-írar nánast öruggir með sæti á Spáni
ísraelsmenn komu heldur betur vifl
sögu 1 undankeppni HM 1 knattspyrnu í
gaer þegar þeir sigruðu Portúgal mjög
óvænt í Tel Aviv. Þafl var heldur eng-
inn smásigur þvi lokatölurnar urðu 4—
1 og Portúgal er þvi úr leik. Öll mörkin
voru skoruð i fyrri hálfleik og bæði liö
leyfðu sér þann munað að misnota víta-
spyrnu í siðari hálfleiknum.
Avi Cohen, fyrrum leikmaður með
Liverpool, átti stóran þátt í óförum
Portúgala. Hann, Malmillian og
Moshe Gariani, sem leikur með Bright-
on, réðu gangi mála á miðju vallarins
og lögðu upp marktækifæri. Tabak
skoraði fyrir ísrael eftir 6 mínútur en
Jordao jafnaði tveimur mínútum síðar.
Á 15. mín. skoraði Damte 2—1 eftir
sendingu frá Cohen og Tabak bætti
tveimur mörkum við fyrir hálfleik, eftir
sendingar frá Cohen og Gariani.
Heppnin var ekki með Portúgölum.
Jordao átti þrjú stangarskot og kórón-
aði svo allt saman með þvi að láta verja
frá sér vítaspyrnu. Skömmu síðar skaut
Malmillian framhjá portúgalska mark-
inu úr vítaspyrnu en 20.000 áhorfendur
gátu auðveldlega fyrirgefið honum það
því ísrael skoraði i þessum leik helm-
ingi fleiri mörk en í hinum sex leikjum
liðsins í undankeppni til samans.
Norður-írar standa nú með pálmann
í höndunum. Þeir þurfa „aðeins” að
ná jafntefli gegn ísrael á heimavelli til
að komast í úrslitin. Sigri ísraelsmenn
hins vegar í Belfast fara Svíar til Spán-
ar.
Staðan í 6. riðli:
Skotland
Svíþjóð
Norður-írland
ísrael
Portúgal
7 4 3 0 8—2 11
8 3 2 3 7—8 8
7 2 3 2 5—3* 7
7 1 3 3 6—9 5
7 2 1 4 6—10 5
Portúgal, sem á tímabili stóð bezt að
vígi í riðlinum, hefur nú tapað 4
leikjum í röð.
Leikir sem eftir eru: 18. nóvember:
Portúgal-Skotland, Norður-írland-
ísrael.
____________________ -VS.
Valur-ÍS íkvöld
Einn leikur verður í úrvalsdeildinni f
körfuknattleik í kvöld. ÍS og Valur leika
í íþróttahúsi Kennaraháskólans og hefst
leikurinn kl. 20. Strax á eftir mætast ÍS
og ÍR í 1. deild kvenna.
pmgar
skólum
VÍÐIR
SIGURÐSSON
Enski landsliðsmarkvörðurínn Ray Oemence átti frábæran
leik á Old Trafford í gærkvöld.
Heimsmet í lyftingum
Sovétmaðurinn Oksen Mirzoyan setti í gærkvöldi heims-
met í jafnhöttun i bantamvigt (56 kilóa flokki) á móti þar
eystra. Hann jafnhattaði 180 kg, hálfu kílói þyngra en met
landa hans, Yurik Sarkisian, sem sett var á ólympfuleikunum i
Moskvu i fyrra. Mirzoyan jafnaði einnig heimsmetið i saman-
lögðu, 277,5 kg en það met átti fyrir Austur-Þjóðverjinn
Andreas Letz.
Handbolti íkvöld
Tveir leikir verða á íslandsmótinu f handknattleik i kvöld,
báðir f Laugardalshöll. Kl. 20 leika Fylkir og ÍR f 2. deild
karia og kl. 21.30 Ármann og Grótta i 3. deild.
HM íknattspymu:
Sovétmenn
unnu Tékka
Sovétmenn hafa nánast tryggt sér sæti f lokakeppni HM
með sigri yfir Tékkum i Moskvu f gær, 2—0. Sigurinn var
sanngjam og nú era það Sovétmenn sem hafa örlög Tékka og
Walesbúa f hendi sér, eiga eftir að leika við báðar þjóðir.
Ramas Shengelia skoraði bæði mörk Sovétmanna í gær. Á
28. mín. fengu þeir vitaspyrnu. Semen, tékkneski mark-
vörðurinn, varði spyrnu Buryak en Shengelia var fyrstur inn í
teiginn og skallaði knöttinn í netið. Á fyrstu mínútu síðari
hálfleiks kom svo rothöggið. Bakvörðurinn Sulakvelidze skaut
þá að marki Tékka af svo miklum fitonskrafti að við lá að
markstöngin, sem fyrir skotinu varð, brotnaði. Knötturinn
hrökk til Shengelia sem sendi hann viðstöðulaust í netið.
Staðan í 3. riðli:
Sovétrikin 6 5 1 0 16-1 11
Wales 7 4 2 1 12-4 10
Tékkóslóvakía 7 4 12 14—5 9
tsland 8 2 2 4 10—21 6
Tyrkland 8 0 0 8 1—22 0
Leikir sem eftir eru: 18. nóvember: Sovétrikin-Wales. 30.
nóvember:Tékkóslóvakía-Sovétríkin.
-VS.
25. mín. með fremur ódýru marki sem reyndist vera sigur-
mark leiksins. tslenzku strákarnir sóttu mun meira í síðari
hálfleiknum og síðustu 15 mínúturnar léku Belgarnir varnar-
leik, greinilega ánægðir með 2—1 og tókst að halda því.
Þátttaka íslands í Evrópukeppni unglingalandsliða er því á
enda í bili en ekki verður annaö sagt en árangurinn sé góður,
samanlagt tap 3—4 fyrir þjóð sem á A-landslið 1 lokakeppni
heimsmeistarakeppninnar 1982.
-VS.
Enski deildabikarinn í gærkvöld:
Nýtt markamet hjá Liverpool
Það var mikið fjör víða í enska
deildabikarnum í knattspyrnunni f gær-
kvöldi. Framlenging og sfðan vfta-
spyrnukeppnl í Stoke, þar sem Joe
Corrigan, markvörður Man. City,
varði elleftu vftaspyrnuna hjá Stoke,
sem Paul Griffiths tók. Þar með sigraði
Man. City 11—10!! — og komst í
þriflju umferfl. Liverpool setti nýtt
markamet f deildabikarnum. Vann
Exeter samanlagt 11—0 og í Notting-
ham voru tveir leikmenn reknir af velli f
viðureign Forest og Birmingham,
Kevin Broadhurst, Birmingham, og Ian
Wallace. Forest.
Tottenham gerði sér lítið fyrir og
sigraði Man. Utd., efsta liðið í 1. deild,
öðru sinni í keppninni, 0—1, á Old
Trafford, þar sem rúmlega 55 þúsund
áhorfendur sáu snilldarleik Ray Clem-
ence í marki Tottenham. Enski lands-
liðsmarkvörðurinn átti þar einn af
sínum beztu leikjum. Tottenham sigr-
aði í fyrri leik liðanna í Lundúnum 1—
0 og þar réð mark Steve Archibald úr-
"slitum, mikið klaufamark Gary Bailey,
markvarðar United. Og hann var mikill
klaufi að koma ekki í veg fyrir mark
Tottenham í gærkvöld. Það kom á sjö-
undu mín. og nægði Tottenham til
sigurs. Tony Galvin tók hornspyrnu.
Ardiles náði knettinum og gaf á hinn
tvítuga Mike Hazard, sem spyrnti á
markið nokkru utan vitateigs. Knöttur-
inn snerti rennblautan völlinn — mikil
rigning í Manchester — og hafnaði í
markinu hjá Bailey. Ódýrt mark og
furðulegt hvað Bailey hefur brugðizt í
deildabikarnum eins vel og hann ver
mark United í deildakeppninni.
Þar með hafði Tottenham náð
tveggja marka forustu. Liðið lék mjög
vel í fyrri hálfleiknum en Man. Utd.
náði aldrei þeim leik sem liðið sýndi á
Anfield á laugardag. Galvin fékk gott
færi á 2. mín. leiksins og á þeirri 25.
var Steve Archibald, sem lék frábær-
lega vel í liði Tottenham, klaufi að
skora ekki. Bryan Robson og Ray
Wilkins áttu skot á mark Tottenham,
sem Clemence varði vel.
Man. Utd. hóf s.h. með stórsókn,
sem stóð nær látlaust í 15 mín. Fékk
hornspyrnu eftir hornspyrnu. Clem-
ence varði frábærlega frá Robson, tví-
vegis, og Coppell og siðar í leiknum frá
Wilkins. Góður leikur og leikmenn
Tottenham stórhættulegir í skyndi-
sóknum þó þeim tækist ekki að skora
fleiri mörk. Hazard fékk opið færi en
spyrnti framhjá. Leiknum var lýst beint
í BBC og liðin voru þannig skipuð:
Man. Utd.: Bailey, Gidman, Albiston,
Buchan, Moran, Robson, Moses,
Wilkins, Coppell, Stapleton og Birtles.
Duxbury varamaður en kom ekki inn á.
Gidman átti í miklum erfiðleikum með
Galvin. Tottenham: Clemence Perry-
man, Houghton, Roberts, Miller,
Ardiles, Hoddle, Hazard, Galvin,
Archibald, Crooks. Paul Price
varamaður en kom ekki inn á. Úrslitin í
gær urðu þessi. Innan sviga samanlagt
úrbáðumleikjum:
Charlton-Norwich 0—1 (0—2)
Exeter-Liverpool 0—6 (0—11)
Chelsea-Southampton 2—1 (3—2)
Leicester-Preston 4—0 (4—1)
Man.Utd.-Tottenham 0—1 (0—2)
Nottm. For.-Birmingham 2—1 (5—3)
Oxford-Millwall
Stoke-Man. City
Port Vale-Tranmere
WBA-Shrewsbury
1—0 (4—3)
2—0 (10—11)
1- 2 (1-4 )
2- 1 (5-4 )
3. deildarlið Exeter fékk hroðalega
útreið. lan Rush, tvö, Kenny Dalglish,
Phil Neal og Kevin Sheedy skoruðu
mörk Liverpool auk sjálfsmarks 16 ára
pilts, Nick Markan. David Needham á
7. mín. og John Robertson á 75. mín.
skoruðu mörk Forest en Tony Evans á
88. mín. fyrir Birmingham. Ian
Wallace og Kevin Bradhurst lentu i
slagsmálum á 47. mín. og voru báðir
reknir af velli.
Man. City virtist á góðri leið með að
komast áfram gegn Stoke, sem fékk
mörg tækifæri en fór illa með þau.
Loks á 80. min. tókst Lee Chapman að
skora hjá Corrigan. Ray Evans skoraði
síðara mark Stoke á 87. mín. Þá varð
að framlengja, ekkert mark skorað og
siðan vítaspyrnukeppni. Lee Chapman
og Asa Hartford, Man. City, tókst ekki
að skora úr sínum spyrnum en Paul
Power jafnaði í 4—4 úr fimmtu víta-
spyrnu City. Síðan haldið áfram þar til
Corrigan varði þá elleftu.
Clive Walker náði forustu fyrir Chel-
sea á 30. mín. og liðið lék lengi mun
betur en Southampton. En á 80. mín.
kom Steve Moran inn sem varamaður
hjá Southampton og tveimur mín. síðar
hafði hann jafnað. Framlengt og þá
tókst Chelsea að skora eitt mark. Gary
Owen og Ali Brown skoruðu mörk
WBA, sem komst í 2—0. Ian Atkins
minnkaði muninn í 2—1 en þar við sat.
Keith Cassell skoraði mark Oxford og
það fleytti liðinu í 3. umferð. I
skozka deildabikarnum sigraði Dundee
Utd. Aberdeen 0—3 á útivelli og leikur
þriðja árið í röð í úrslitum. Paul Stark
skoraði tvö af mörkum Dundee Utd. í
hinum leiknum í undanúrslitum sigraöi
Rangers St. Mirren 2—1, 4—3 saman-
lagt. Dundee Utd. vann 3—1 saman-
lagt. Scanlon skoraði mark St. Mirren
úr vítaspyrnu. James Bett jafnaði í 1 —
1 úr víti fyrir Rangers og MacDonald
skoraði sigurmarkið. -hsfm.
Atletico féllst á breytta leikdaga
—fyrri leikur Víkings og Atletico Madrid í Laugardalshöll 15. nóvember—Ekkert nú
til fyrirstöðu að Víkingar geti tekið þátt íTékkóslévakíuförinni
„Að beiðni handknattleiksdeildar
Víkings hafa forráðamenn spænska
liðsins Athletico Madrid fallist á að
breyta leikdögum Vikings og Athletico
í Evrópukeppni félagsliða. Verður fyrri
leikur félaganna i Laugardalshöll 15.
nóvember nk., en seinni leikurinn fer
fram í Madrid laugardaginn 21.
nóvember. Með þessari breytingu vildi
handknattleiksdeild Víkings forða frá
leiðindum vegna keppnisferðar ís-
lenzka landsliðsins til Tékkóslóvakiu
dagana 2.—8. nóvember, en þátttaka 5
leikmanna Víkings í þeirri för hefði
raskað stórlega undirbúningi Vikings
fyrir Evrópuleikinn, ef hann hefði
verið leikinn í Madrid 14. nóvember
eins og til stóð. Eftir þessar málalyktir
er ekkert því ul fyrirstöðu, að mati
stjórnar handknattleiksdeildar Víkings,
að leikmenn geti tekið þátt í keppnis-
ferðinni til Tékkóslóvakíu.
Þrátt fyrir að þessi lausn hafi fengizt
á þessu máli vill handknattleiksdeild
Víkings rökstyðja með nokkrum
orðum upphaflega ósk sína, að leik-
menn Víkings tækju ekki þátt í Tékkó-
slóvakíuferðinni. Þessari eðlilegu ósk
hafnaði stjórn HSÍ og Hilmar Björns-
son landsliðsþjálfari alfarið. Einnig
höfnuðu sömu aðilar málamiðlunartil-
lögu um að leikmenn Víkings léku 3
fyrstu landsleiki ferðarinnar og kæmu
heim á föstudegi 6. nóvember í stað
sunnudagsins 8. nóvember.
Að matí stjórnar handknattleiks-
deildar Víkings eru helztu rökin fyrir
ósk deildarinnar þessi:
1. Allur undirbúningur vegna Evrópu-
leiks Vikings í Madrid 14. nóvember
hefði farið úr skorðum ef 5 af fasta-
mönnum liðsins hefðu verið fjarver-
andi á meðan aðalundirbúningur
vegna leiksins færi fram. Sam-
kvæmt ferðaáætlun landsliðsins
verður farið frá íslandi til Tékkósló-
vakíu 2. nóvember og komið til
baka 8. nóvember. Víkingar hefðu
þurft að leggja upp í ferðalag sitt til
Madrid 11. nóvember þannig að
aðeins yrðu 2—3 dagar til sameigin-
legs undirbúnings fyrir Víkingsliðið
vegna Evrópuleiksins. þessir dagar
hefðu auk þess nýtzt illa, þar sem
landsliðsmennirnir koma væntan-
lega dauðþreyttir úr keppnisferð-
inni, þar sem 5 leikir verða leiknir á
5 dögum. Nú er hins vegar ljóst að
liðið getur æft saman í eina viku
fyrir Evrópuleikinn og þarf ekki að
leggja á sig erfitt ferðalag til Madrid
í fyrri leikinn.
2. Það er alkunna, að ef nást á árang-
ur í mikilvægum leikjum eins og
Evrópuleikjum þarf að haga undir-
búningi liðsins þannig að allt miðist
við að það sé í beztu formi ákveðinn
dag, þ.e. sjálfan leikdaginn. Á þann
hátt hafa Víkingar hagað undirbún-
ingi sínum fyrir Evrópuleiki undan-
farin ár með góðum árangri, en þjálf-
arinn Bogdan Kowalzcyk er sér-
fræðingur á þessu sviði. Forsenda
þess að þetta sé hægt er sú, að allir
leikmenn liðsins taki þátt í undir-
búningnum í 2—3 vikur minnst en
ekki 2—3 daga eins og yrði í þessu
tilfelli.
Mótherjar Víkings í Evrópukeppni
meistaraliða, Athletico Madrid, eru
í hópi beztu handknattleiksliða
heims. Fyrirfram teljum við mögu-
leika okkar 40 á móti 60 gegn þessu
sterka liði. Það er því Ijóst, að lið
Víkings verður að sýna sitt bezta í
báðum leikjunum gegn Athletico
Madrid ef það á að eiga raunhæfa
möguleika á því að komast áfram í
keppninni. Slíkt er aðeins mögulegt
með nákvæmum og sameiginlegum
undirbúningi allra leikmanna Vík-
ings.
í skýrslu stjórnar HSÍ fyrir tíma-
bilið 1980—1981 segir Hilmar
Björnsson landsliðsþjálfari m.a.:
„Félögin og landsliðið verða að ná
algjörri samstöðu um mótafyrir-
komulagið og forgangsverkefni á
hverjum tíma. Þá á ég við Evrópu-
keppnina og landsleiki.” Stjórn
handknattleiksdeildar Víkings er
þessu algjörlega sammála og telur
að komandi Evrópuleikur Víkings
verði að vera algjört forgangsverk-
efni fyrir leikmenn liðsins. Keppn-
isferðin tíl Tékkóslóvakíu er fyrsta
skrefið í undirbúningi landsliðsins
fyrir B-keppnina árið 1983: Leik-
menn Víkings hafa allir mikla
keppnisreynslu og geta því misst af
förinni til Tékkóslóvakíu án þess að
tapa neinu úr. Fyrir Víking og ís- •
tapa neinu úr. Fyrir Víking og ís-
lenzkan handknattleik hlýtur það að
teljast mikilvægt nú að leikmenn
Vikings búi sig af kostgæfni undir
Evrópukeppnina, í von um að þar
náist sá árangur sem stefnt er að.
5. Stjórn handknattleiksdeildar Vík-
ings telur viðtöl við þjálfara FH og
Þróttar sem birtust i dagblaðinu Vísi
28. október ekki raunhæft innlegg í
þetta mál. FH og Þróttur eiga 2
menn i landsliðinu, hvort félag, Vík-
ingur 5 menn. Þar að auki mæta FH
og Þróttur léttum andstæðingum í
2. umferð, að því er ætla má, ítölsku
og hollenzku liðum. Andstæðingar
Víkings eru hins vegar eitt bezta fé-
lagslið í heimi, með 7 landsliðsmenn
úr spænska landsliðinu.
Með beztu kveðjum,
Handknattleiksdeild Víkings”
(Fréttatilkynning þessi barst DB í gær-
kvöld frá stjórn handknattleiksdeildar
Víkings).
NaumttapíBelgíu
íslenzka unglingalandsliðið f knattspyrnu tapaði mjög
naumlega fyrir Belgfu í gærkvöldi, 2—1, i Evrópukeppni ung-
lingalandsliða. Leikið var í Leuven í Belgfu. Fyrri leik þjóð-
anna á Laugardalsvellinum lauk með jafntefli, 2—2, og Belgar
komast þvi áfram i keppninni en íslenzku piltarnir eru úr leik.
Belgar fengu óskabyrjun í leiknum í gærkvöldi er þeir náðu
forystu strax á 3. mínútu. Hún var þó skammvinn. Á 6. mín.
tók Ingvar Guðmundsson hornspyrnu og Halldór Áskelsson
sneiddi knöttinn í netið, 1—1. Belgar náðu forystunni á ný á
' *: é
-
geriö verösamanburö
Versliö tímanlega
fyrirjolin
Ég óska eftir að fá sendan Kays pöntunarlista I
póstkröfu á kr. 49.—
Nafn..............................................
Heimilisfang .....................................
Staóur............................ Póstnr.........