Dagblaðið - 29.10.1981, Blaðsíða 18
18
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1981.
Veðriö
Gert er ráð fyrir hœgri austan og,
norðaustanátt i dag. Láttskýjað á
Suðvesturlandi, annars skýjað.
Þokusúld á Norðaustur- og Austur-
iandi, þykknar upp aftur (nótt á Suð-
austuriandi með vaxandi austanátt.
Kl. 6 var í Reykjavík hœgviðri, lótt-
skýjað og 0 stig, Gufuskálar austan 3,.
skýjað og 2, Galtarviti norðaustan 1,'
skýjað og 0, Akureyri heegviöri,
skýjað og 0, Raufarhöfn austan 1,
skýjað og 3, Dalatangi hœgviðri,
skýjað og 3, Hðfn austan 2, skýjað og
4, Stórhöföi austan 2, léttskýjað og 3.
Þórshöfn skýjað og 6, Kaupmanna-
höfn þokumóða og 7, Osió skýjað og
4, Stokkhóimur rigning og 7, London
skýjað og 7, Hamborg súld og 7, Porís
alskýjað og 11, Madrid iáttskýjað og
3, Lissabon heiðsklrt og 12, New
York heiðskírt og 11.
Krisljana Þorsleinsdóttir, Oddagötu 6 i
Reykjavik er látin. Hún var fædd I.
júlí 1903, dóttir hjónanna Þorsteins
Sigurðssonar Manberg og Gabríellu
Benediktsdóttur Manberg. Hún giftist
Einari Ólafi Sveinssyni, þau eignuðust
einn son, Svein Einarsson þjóðleikhús-
stjóra. Kristjana verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni í dag, 29. oklóber, kl.
15.
Árni Beck vélstjóri verður jarðsunginn
frá Dómkirkjunni föstudaginn 30.
október kl. 13.30.
Birgir Kristjánsson járnsmíðameistari,
Álfhólsvegi 129 Kópavogi, andaðist
þann 27. október.
Björn Jóhannsson, Laugarnesvegi 104,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
föstudaginn 30. október kl. 13.30.
Bjöm Snæbjörnsson stórkaupmaður,
Barmahlíð 31 Reykjavík, verður jarð-
sunginn frá Dómkirkjunni i dag,
fimmtudag, kl. 13.30.
Jóhann Jónsson, Bjarkarlundi Garða-
bæ, andaðist í Landakotsspítala að
kvöldi 27. október.
Jón Sigurðsson, Kleppsvegi 72, verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju kl. 3,
fimmtudaginn 29. október.
Kristbjörg Magnúsdóttir frá Gunnólfs-
vík andaðist 17. október. Jarðarförin
hefur farið fram í kyrrþey.
Kristín Sigurbjörnsdóttir, andaðist 24.
okt. sl. að Elliheimilinu Grund. Jarðar-
förin hefur verið ákveðin föstudaginn
30. október kl. 10.30 f.h. frá Hall-
grimskirkju.
Ragnheiður Skúladóttir læknir and-
aðist á sjúkrahúsi í Buffalo, NY, 27.
október.
Félagsfundur
Sjálfsbjargar
félags fatlaðra í Reykjavik, verður haldinn í kvöld,
fimmtudaginn 29. október, kl. 20.30 að Hátúni 12,
fyrstu hæð. Á fundinn kemur Tryggvi Þór
Aðalsteinsson. Ræðir hann um samstarf Sjálfs-
bjargar og ASÍ, síðan mun hann svara
fyrirspurnum.
mnr
FILMUR OG VÉLAR S.F.
SKÓLAVÖRDUSTÍG 41 - SIMI 2023S.
BSRB og aðildarfólögin
halda fjölmarga fundi
um kjaramálin og kröfugerðina síðustu vikuna í
október. Verða fundimir á 23 stöðum úti um allt
land og hófust þeir fyrstu 22. okt. Skoðanakönnun
veröur gerð meðal félagsmanna á fundunum. Þá
verða fjölmargir fundir á vegum félaganna í
Reykjavík og nágrenni.
Fundarstaðir verða sem hér sgir:
Starfsmannafélag
Stjórnarráðsins:
Fimmtudagur 29. okt. kl. 17.00. Borgartúnó.
Akranes:
Fimmtudagur 29. okt. kl. 20.30. Fjölbrautaskólinn.
ísafjörflur:
Fimmtudagur 29. okt. kl. 21.00. Hótel ísafjöröur.
Bolungarvlk:
Föstudagur 30. okt. kl. 17.00. Grunnskólinn.
Félag islenzkra simamanna:
Fimmtudagur 29. okt. kl. 16.15. Thorvaldsenstræti
4.
Bahálar
Opifl hús
Baháíar hafa opið hús að Óöinsgötu 20, öll
fimmtudagskvöld frá kl. 20.30. Frjálsar umræður,
allir velkomnir. Umræðuefni kvöldsins verður
friðarhreyfing.
Háskólatónleikar
Föstudaginn 30. október verða aðrir háskóla-
tónleikar vetrarins í Norræna húsinu.
Ágústa Ágústsdóttir sópran og Jónas Ingimund-
arson píanó flytja sönglög eftir W.A. Mozart.
Alls eru fyrirhugaðir 14 tónleikar í vetur, sjö fyrir
og sjö eftir jól, á sama staö og tíma. Verða þeir
tilkynntir jafnóðum í Dagblaðinu.
I vetur er 8. starfsár háskólatónleika, — þeir voru
fyrst haldnir veturinn 19"/4—75. Raunin hefur
oröið sú, að tónleikamir hafa lítið verið sóttir af
kennurum og nemendum. Því er það nýmæli tekið
upp aö halda tónleikana í hádeginu á föstudögum,
og eiga þeir að jafnaði ekki að standa lengur en
liðlega hálfa klukkustund. ÖUum er auðvitað
heimill aögangur en með þesari tíma- o6
staðsetningu er þó einkum reynt að gera nemendum
og konnurum háskólans sem þægilegast að sækja
þá.
Þriöju áskriftartónleikar
Sinfónfuhljómsveitar
íslands
þetta starfsár verða í Háskólabiói fimmtudaginn 29.
okt. og hefjast kl. 20.30.
Efnisskráin verður sem hér segir:
Bruch: Konsert fyrir tvö píanó.
Chopin: Rondo fyrir tvö pianó.
Dvorák: Sinfónía nr. 6.
Stjórnandi er aðalhljómsveitarstjóri hljómsveit-
arinnar, Jean-Pierre Jacquillat.
Einleikararnir eru tveir, Anna Málfríður
Sigurðardóttir og Martin Berkofsky.
Leikfélag Akureyrar
sýnir Jómfrú Ragnheiði
eftir Guðmund Kamban, fimmtudaginn 29. okt. og
föstudaginn 30. okt. kl. 20.30. Eru það þriðja og
fjórðasýning.
Leikstjóri og höfundur leikgerðar er Bríet
Héðinsdóttir, tónlist er eftir Jón Þórarinsson, leik-
mynd eftir Sigurjón Jóhannsson og lýsing hönnuð af
David Walter.
Alls koma fram um 20 leikarar í sýningunni.
Ragnheiður er leikin af Guðbjörgu Thoroddsen,
Brynjólfur biskup af Marinó Þorsteinssyni og
Helgu í Bræðratungu leikur Sunna Borg.
Sala fastra aðgangskorta er hafin og er alla daga 1
miðasölu milli kl. 4 og 7. Sími i miðasölu er 24073.
Leikfélag Akureyrar fer af stað með námskeiö
fyrir 12—16 ára og 16 ára og eldri um næstkomandi
mánaðamót. Innritun og upplýsingar í símum 24073
og 25073 milli kl. lOog lódaglega.
Barnaleikritið Dýrin í Hálsaskógi í leikstjóm
Þórunnar Sigurðardóttur fer í æfingu í þessari viku.
Breiðholtsleikhúsið
sýnir á fimmtudags-
og sunnudagskvöldum
Breiðholtsleikhúsiö frumsýndi á sunnndaginn
revíukabarettinn Lagt í pottinn í Félagsstofni-n stú-
denta við Hringbraut. Aðsókn var góð og uröu
margir frá aö hverfa. Verkið verður framvegis sýnt á
fimmtudags- og sunnudagskvöldum. Gestir sitja viö
borð og geta notið léttra veitinga meðan 4 sýningu
stendur. Miðasala Breiðholtsleikhússins er opin alla
daga milli kl. 18 og 20. Síminn þar er 29619. ,
Úr sýningu Breiðholtsleikhússins á Lagt í pottinn
eftir þá Þránd Thoroddsen og Gunnar Gunnarsson.
Fólag fatlaflra í
Reykjavíkog nágrenni
Nú líður óðum að basar félagsins, sem verður i
fyrstu viku desembermánaðar. Basarvinnan er
komin í fullan gang, komið er saman öll
fimmtudagskvöld kl. 20.00 í félagsheimilinu Hátúni
12.
Vonast er eftir stuðningi frá velunnurum
félagsins eins og undanfarin ár.
Basar verkakvenna-
fólagsins Framsóknar
verður haldinn laugardaginn 7. nóv. í Lindarbæ.
Vinsamlega komið basarmunum til skrifstofu félags-
ins, sem er opin frá kl. 9—17 alla virka daga.
ar
I
GÆRKVÖLDI
SETIÐ í SVARTHOU
Stjörnugláp hefur stundum verið
kallað rómantískt. Lítið fór fyrir því í
löngum sjónvarpsþætti í gærkvöld.
Vafalaust hefur flestum þótt textinn
snúinn og fullur af óskiljanlegum
hlutum. Þátturinn var-ekki sniðinn
við hæfi alþýðu manna. Vita menn
eftir hann eitthvað um „dulstirni” og
„svarthol” geimsins, sem eru for-
vitnilegustu viðfangsefnin? í staðinn
munu flestir áhorfendur hafa setið
eins og i svartholi undir þessum texta.
Oft eru sýndir þættir, þar sem
heimsfrægir upplesarar, útlendir,
segja frá. Þá er venjulega settur ís-
lenzkur þulur í þeirra stað og þaggað
niður í hinum útlenda. I stjörnuþætt-
inurrt var sá útlendi látinn tala. Til
góðs hefði verið að hafa í því tilviki
íslenzkan þul. Líklega hefði málið
komizt betur til skila, ef svo hefði
verið. En fyrst og fremst eru slíkir
þættir, sem oft eru sýndir, alltof
flóknir sem almennt sjónvarpsefni.
Eftir nítján þætti af sápuóperunni
Dallas verður maður þreyttur, þótt
blessunarlega hafi maður misst af
sumum. Persónurnar hreyfast nánast
ekki frá einum þætti til annars.
Síðdegissápuóperurnar í bandarísk-
um stöðvum eru þannig í laginu, að
óhætt er að víkja frá í svo sem tvö ár,
koma svo til baka og taka upp þráð-
inn. Þá kemst allt til skila. Höfundar
slíks efnis eru gæddir þeim fágætu
hæfileikum að koma því saman, án
þess að neitt gerist sem máli skiptir,
viku eftir viku.
Fyrsti þátturinn um tryggingamál
var miklu þolanlegri en halda mátti
að óreyndu. Efnið var skörulega
fram sett og alltaf er gaman að
gömlum íslenzkum ljósmyndum. Þó
er þess að vænta að næstu þættir
verði athyglisverðari en öllu skiptir
hvernig á efninu verður tekið. Viðtöl
við bótaþega verða vonandi uppi-
staðan, fremur en upplestur.
Húsmæðrafélag
Reykjavíkur
heldur basar að Hallveigarstöðum kl. 14 laugardag-
inn 31. október. Félagskonur eru beðnar að koma
meö muni í félagsheimiliö að Baldursgötu 9 á milli
kl. 14 og 17 fram til fimmtudags.
Um skrefatalningu
Pósts og síma
Neytendasamtökin lýsa yfir stuðningi við
framkomna tillögu tólf þingmanna, tveggja stjórn-
málaflokka, á Alþingi um skoöanakönnun meðal
neytenda vegna „skrefatalningar” Pósts og síma.
Samtökin hafa ítrekað lýst yfir andstöðu sinni viö
framkomnar hugmyndir um skrefatalningu og telja
að ná megi yfirlýstum markmiðum með skrefa-
talningunni með einföldum breytingum á gjald-
skrám. Neytendasamtökin telja það gagnlegt að þau
megi taka þátt 1 undirbúningi og úrvinnslu skoðana-
könnunarinnar, eins og gert er ráð fyrir i umræddri
tillögu þingmannanna.
Jónas Eysteinsson, sem um árabil hefur verið
framkvæmdastjóri félagsins, lét af störfum í árslok
1980 og voru honum þökkuð vel unnin störf í þágu
félagsins.
í skýrslum stjórnar félagsins og deilda þess kom
fram að vinabæjartengsl hafa verið virkasti
þátturinn i starfi Norræna félagsins og á siöasta ári
hafa tengsl við Grænlendinga aukizt verulega. Á
íslandi eru um 30 bæir með vinabæjartengsl og alls á
Norðurlöndum um 500 bæir.
Frifljón Þórflarson ráðherra, kona hans, Krístin Sig-
urðardóttir og Hjálmar Ólafsson.
Ákveðið var að minnast 60 ára afmælis félagsins
á næsta ári á viðeigandi hátt og sömuleiðis að hefja
undirbúning að þátttöku í hátíðahöldum á
Grænlandi í tilefni 1000 ára afmælis byggðar
norrænna manna þar.
Hjálmar Ólafsson var einróma endurkjörinn for-
maöur félasins og aðrir i stjórn voru kosnir einum
rómi.
Á laugardagskvöld 10. okt. sýndu norræni sam-
starfsráðherrann Friðjón Þórðarson og kona hans
Kristín Sigurðardóttir Norræna félaginu þann sóma
að heimsækja sambandsþingið og bjóða þingfulltrú-
um til levöldverðar. Flutti hann snjalla ræöu við það
tækifæri.
Vegabréfsáritun
þarf til Filippseyja
Frá og með 9. nóv. nk. fellur úr gildi samkomulag
milli íslands og Filippseyja um gagnkvæmt afnám
vegabréfsáritana fyrir ferðamenn, sem gilt hefur
siðan 1975.
Frá og með 9. nóvember, nk. þurfa því íslenzkir
ferðamenn til Filippseyja að afla sér vegabréfá-
ritunar, sem mun fást ókeypis hjá sendiráðum
Filippseyja.
Athugasemd f rá ÚTSÝN
IMýútkomin
frímerki
Kristniboösárið 1981, þegar minnzt er 1000 ára
afmælis kristniboös á íslandi, er tilefni frímerkis
sem Póst- og símamálastofnunin gefur út.
Frimerkið ber mynd af róðukrossi frá kirkjunni
að Álftamýri við Arnarfjörð. Hann er nú í
Þjóðminjasafninu og mun að líkindum vera frá
miðöldum. Krossinn er skorinn úr rekaviði,
eintrjáningi, og eru greinar nýttar sem armar
krossins. — Krossmerkið helzta tákn kristinnar
trúar, táknar sáttagjörðina milli Guðs og manna og
einnig mannanna innbyrðis.
Póst- og símamálastofnunin gefur á þessu ári út
jólafrimerki með laufabrauð að myndefni. —•
Laufabrauösgerðin hefur verið mjög útbreidd á
Noröurlandi og Norð-Austurlandi en hefur nú
breiðzt út víöa um land. — Á siðari tímum hefur
laufabrauðsgerðin veriö eingöngu bundin jólunum
en var fyrrum viöhöfð fyrir aðrar stórhátíðir ársins
og fyrir brúðkaupsveizlur.
Laufabrauösgerð er þjóðlegur siður og virðist
ætla að viðhaldast með yngri kynslóðum.
Sambandsþing Norræna fé-
lagsins
var haldið í Munaðarnesi 10. og 11. október sl.
Formaður félagsins, Hjálmar Ólafsson, setti þingið
með ræðu og minntist Stefáns Jóhanns Stefánsson-
ar, fyrrum forsætisráðherra, sem látizt hafði eftir
síöasta sambandsþing. Hann var 16 ár formaður fé-
lagsins og síðar heiðursfélagi.
Sambandsstjórn hafði kjörið Steindór
Steindórsson fyrrum skólameistara heiöursfélaga og
afhenti formaður honum heiðursskjal til staöfesting-
ar. Steindór var frumkvöðull að stofnun Norræna
félagsins á Akureyri fyrir nær 50 árum og hefur æ
síðan starfað í Norræna félaginu, oftast sem
stjórnarmaður.
Forsetar þingsins voru kjörnir Hjálmar ólafsson,
Kópavogi, Gylfi P. Gislason, Reykjavík, Bárður
Halldórsson, Akureyri og ritarar þeir Hörður
Bergmann, Reykjavík og Stefán ólafsson, Mosfells-
sveit.
í itarlegri skýrslu formanns kom fram að starf-
semi Norræna félagsins síðustu 2 árin var mjög fjöl-
breytt og fer sívaxandi.
Dagblaðinu hefur borizt eftirfarandi
yfirlýsing frá Ingólfi Guðbrandssyni
forstjóra Útsýnar, vegna klausu sem
birtist í blaðinu í gær í dálkinum Fleira
fólk:
„Það er engin nýlunda að Útsýnar-
ferðir veki athygli almennings. Hvað
sem dylgjum Dagblaðsins líður, er það
almannarómur að þær séu með af-
brigðum vinsælar og eftirsóttar, enda
hlýtur það að vera ástæðan fyrir að
bæði Vikan og Dagblaðið hafa sótzt
eftir að fá Útsýnarferðir í verðlaun í
getraunum sínum í ár.
Útsýn hefur sent fjölda farþega til
Thailands á undanförnum árum. Þrátt
fyrir það vekur það undrun, að farþeg-
ar Úrvals, sem þar eru nú staddir skuli
vekja sérstaka athygli Thailendinga
fyrir að hafa verið þátttakendur í af-
mælisferð Útsýnar til Mexico í fyrra!
Raunar fær þetta ekki staðizt.
Eftir upplýsingum sem fyrir liggja
sem trúnaðarmál frá forstjóra Úrvals,
er aðeins um fjóra farþega að ræða í
umræddri Bangkok-ferð Úrvals, sem
þátt tóku í afmælisferð Útsýnar i fyrra.
Verður ekki í fljótu bragði séð, að neitt
sé við það að athuga, a.m.k. ekki af
hálfu Útsýnar, og þaðan af siður að
það gefi tilefni til blaðaskrifa.
Staðhæfingu Dagblaðsins um það,
að Útsýn hafi auglýst nokkrar ferðir til
fjarlægra staða, en hafi orðið að hætta
við þær vegna lítillar þátttöku, er visað
'°g allir vildu
j ferAino 5 °g *°niu
ftasss-»:
Iltillar
Klausan sem gerð er að umtalsefni.
á bug sem grófum ósannindum. Leigu-
flugsferð til Kaliforníu sem fyrirhuguð
var í tengslum við flugvélarskoðun var
dregin til baka af tækniástæðum og
væntanlegum farþegum boðið upp á
önnur hagstæð fargjöld. Engri ferð
hefur verið aflýst vegna þátttökuleysis.
Hins vegar seldist Brazilíuferð Útsýnar
í nóvember nk. upp á tveimur dögum,
og í hana komast færri en vilja, en þó
um 150 manns, þar af um 50 þátttak-
endur í Mexicoferðinni í fyrra, eða
fleiri en allir þátttakendur í umræddri
Thailandsferð.”
GENGIÐ
GENGISSKRÁNING NR. 206 F.r«am»nn«
29. OKTÓBER1981 aiaid.yrir
Einingkl. 12.00 Kaup Sala Sala
1 Bandarikjadollar 7,768 7,790 8,569
1 Steriingspund 14,149 14,189 15,607
1 Kanadadollar 6,428 6,446 7,090
1 Dönsk króna 1,0529 1,0559 1,1614
1 Norskkróna 1,2937 1,2974 1,4271
1 Sœnsk króna 1,3786 1,3826 1,5208
1 Finnskt mark 1,7363 1,7412 1,9153
1 Franskur franki 1,3486 1,3524 1,4876
1 Belg.franki 0,2031 0,2037 0,2240
1 Svissn. franki 4,1019 4,1135 4,5248
1 HollenzkYlorina 3,0685 3,0772 3,3849
1 V.-þýzkt mark 3,3870 3,3966 3,7382
1 (töbk líra 0,00638 0,00640 0,00704
1 Austurr. Sch. 0,4831 0,4845 0,5329
1 Portug. Escudo 0,1184 0,1180 0,1306
1 Spánskur peseti 0,0790 0,0793 0,0872
1 Japansktyen 0,03303 0,03312 0,03643
1 IrsktDund 11,992 12,026 13,228
SDR (sér*tök dráttarráttlndl) 01/0* 8,8763 8,9015
Sfmsvarí vagna genglsskránlngar 22190.