Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans - 22.03.1964, Side 7
A þessu augnabliki er varla meira en 1200 kúbíkkílómetrar af vatni
í öllum fljótum heimsins.
hefurðu um leið safnað sam-
an 150 grömmum af vatni.
En það vatn er alltof bundið
rykögnunum til að geta orðið
nokkurri lifveiu að liði. Oft-
ast er í jarðveginum aðgengi-
legra vatn sem plönturnar —
undirstaða allrar næringar —
geta notað. Plönturnar þurfa
mikið vatn — venjulegt tré
getur sogið upp 200 lítra af
vatni á einum einasta degi.
En aðeins lítill hluti af því
tekur þátt í efnaskiptum
plantnanna. Mest af því guf-
ar upp um biöðin. Raki jarð-
arinnar er metinn á 24.000
kúbikkílómetra af vatni —
skoplítil spræna í öllum
vatnsgangi jarðar, en ómet-
anlega þýðingarmikil fyrir
lífið.
Það er meira vatn á þurr-
lendinu. Ef það er reiknað
með sem er að síga niður til
neðanjarðarvatns þá verður
útkoman 40.000 kúbíkkm. og
neðst höfum við neðanjarðar-
vatn — meir en fjórar millj-
ónir kúbíkkm. Með öðrum
orðum: tuttugu sinnum meira
en í öllum ám og vötnum
heimsins. Það er fyrst og
fremst þetta vatn sem við er-
um háð, en vitneskja okkar
um það er ótrúlega lítil. Og
mesta verkefni vatnsfræginga
er nú að kortleggja þessar
bii-gðir grunnvatns.
Á síðustu tímum hefur
neðanjarðarvatn þetta komið
okkur mjög skemmtilega á ó-
vart. Undir Sahara hafa
menn fundið stórkostlegar
vatnsbirðir og notkun þeirra
býður upp á glæsilegustu
ræktunarmöguleika. Nýlega
Framhald á bls. 118.
<a og sundiðkunar,
Suðurskautslandi
SJÓNVARP
Mest umtalaður atburður
síðustu daga er áskorun
sextíu þjóðkunnra manna til
Alþingis um að það ákveði
að herliðssjónvarp í Kefla-
vik verði bundið við völlinn
einan, þar eð það sé „van-
sæmandi fyrir Islendinga
sem sjálfstæða menningar-
þjóð að heimila einni er-
lendri þjóð að reka hér á
landi sjónvarpsstöð er nái
til meirihluta landsmanna".
Og þótt mönnum virðist
að furðu margir þessara
manna hafi látið það drag-
ast óþarfleg lengi að láta
sín að nokkru getið í um-
ræðum um svo alvarlegt
mál og spillingaráhrif her-
námsins þá er áskorunin
engu að síður gleðilegur
vitnisburður. Og fróðlegur
— einkum vegna þess hve
rækilega hefur verið gengið
frá því að ekki sé hægt að
kenna kommunum um þenn-
an uppsteit í siðprúðu Nató-
landi.
Það verður ákaflega
skemmtilegt að fylgjast með
því hvernig hinir sextíu
undirskrifendur reynast
þegar á þá reynir að fylgja
fram skoðunum sínum. Því
þar mun vafalaust bæði
reyna á þrek og þolinmæði.
Tvö dagblaðanna, Morgun-
blaðið og Vísir, brugðust
mjög snarlega við, kana-
sjónvarpinu til varnar. Að
visu talar Morgunblaðið af
hæfilegri stjórnkænsku um
að ávarp hinna sextíu sé
„sprottið af velvilja og um-
hyggju fyrir íslenzkri menn-
ingu“ en varla verður því
samt haldið fram aS þess-
um „velvilja“ sé af hálfu
blaðsins sýndur viðeigandi
sómi með nokkurri viðleitni
til samvizkusamlegs mál-
flutnings. Morgunblaðið
segir blátt áfram og án
rökstuðnings að það sé eng-
inn voði á ferðum þótt Is-
lendingar sjái hið banda-
ríska sjónvarp og reynir
síðan að dreifa málinu með
því að einangrun sé hættu-
leg og einhverntíma verði
sjónvarp alþjóðlegt og þá
verði Islendingum jafn
sjálfsagt að stilla á erlend-
ar sjónvarpsstöðvar og út-
varpsstöðvar nú. Þannig á
að fela öll tilefni til á-
hyggna hinna sextíu menn-
ingarvita á bak við nokk-
urskonar tæknilegan fatal-
isma og hugtakarugling.
Áhrifamáttur sjónvarps og
útvarps er gerður jafn,
amerísku dátasjónvarpi í
landi þar sem ekki er inn-
lent sjónvarp er jafnað sam-
an við hugsanlega alþjóða-
samvinnu um sjónvarps-
sendingar í fjarlægri fram-
tíð. Og því er þar að auki
„gleymt" á þægilegan hátt
að alþjóðlegt sjónvarp um
gerfitungl yrði varla til
annars notað en að sýna
stórtíðindi og þá samkvæmt
alþjóðlegu samkomulagi —
auk þess er ekki um það að
ræða að „stilla tæki á er-
lendar stöðvar“, rétt eins og
við værum stödd í Lúxem-
burg, heldur krefst slíkt
sjónvarp svo voldugrar mót-
tökustöðvar að Norðurlönd
munu þurfa að slá saman
reitum sínum til að reisa
eina slíka fyrir öll löndin.
En í væntanlegum um-
ræðum um þetta þýðingar-
mikla mál verður að sjálf-
sögðu ekki aðeins beitt slík-
um reykbombum Aðrar
munu verða framleiddar af
mikilli atorku. Það verður
skírskotað til frelsis og lýð-
ræðis, einnig til mannúðar.
Það verður jarmað, eins og
Vísir gerir reyndar nú þeg-
ar, um vesalings fólkið sem
hefur nú þegar lagt svo og
svo mikið fé fram til sjón-
varpskaupa. Og það verður
mikið þusað um hina frjálsu
og þroskuðu Islendinga sem
eiga að hafa möguleika á
því að velja og hafna. (Og
vitanlega aldrei minnzt á
það að drjúgur helmingur
sjónvarpsáhorfenda eru
börn og unglingar sem eiga
óúttekinn allan sinn
þroska). Við fengum kana-
sjónvarpið yfir okkur í
nafni samúðar og hugulsemi
við einmana dátagrey er-
lend og við eigum að fá til-
veru þess endanlega stað-
festa með skírskotun til
þroska, frelsis og virðingu
fyrir eignarrétti.
Göfug orð og virðulegar
hugsjónir verða hvergi
sparaðar. Betur að hinir
sextíu brýni branda sína í
tíma. A.B.
sumrsru-
wnmmamMaBmamamm
SUNNUDAGUR — 115
t