Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans

Issue
Main publication:

Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans - 14.06.1964, Page 4

Sunnudagur  fylgirit Þjóðviljans - 14.06.1964, Page 4
Gular illhærur... 'En ennþá er eftir að gera |>ær upp og gefa út skýrslur um árangurinn og það er mik- Ið verk. Þar er framundan :margra ára starf. — Og svo ertu líka að rannsaka hveinig gulur og ttvátur litur erfist. — Já, og að mínum dómi ier það ákaflega mikilvæg rannsókn, því gulu illhærurn- ar eru langmesti ókostur ull- arinnar nú. — Eru gular illhærur al- gengar ? — Þær eru mjög algengar, m. a. vegna þess að hændur hafa haldið því fram a. m. k. sl. 50 ár að fé sem væri gult á haus og fótum væri betra en annað fé. — Hvað er hæft í því? — Það vitum við ekki, og þeesvegna hefur það verið tekið til rannsóknar og saman- burðar. Þessar rannsóknir fara fram á Hólum í Hjalta- d'aJ og einnig í tilraunastöð- inni á Reykhólum. — Hvernig er þeim rann- eóknum hagað ? — Það eru valdir ákveðnir Iambahói>ar á haustin, annar alhvitur á ull, hinn gulur, bæða hrútar og gimbrar. Svo er þessum hópum ýrnist hald- ið hreinræktuðum eða æxluð saman, til að rannsaka erfð- ir á litunum, og svo verður fylgzt með afurðasemi beggja hópanna ævina út. 1 þessu er ekki komin fram nein prófun á það hvor stofn- inn sé betri, en það er komin fram örugg vitneskja um það, að hvítu hrútarnir gefa til muna hvítari afkvæmi en völdu gulu hrútamir. Það er því hægt að breyta stofninum með úrvali strax í fyrsta ætt- lið og ná hvítari ull og hvítari gærum en verið hefur, — en það er eftir að vita hvort stofninn versnar að öðru leyti v«ð það að verða hvítari. Úr því fæst ekki skorið nema fyigjast með þessum hópum ár frá ári næstu árin. Það ttíkur nokkur ár, eins og aðr- ar k.vnbótatilraunir, þær þurfa flestar að ta<ka 10—15 ára skeið til að gefa áreiðanlega niðurstöðu. — En ertu ekki líka með mismunandi rúningstíma? — Það hafa verið gerðar tiliaunir með að klippa fé að haustinu og líka að vetrinum. Þær byrjuðu haustið 1958. Þegar klippt hefur verið á haustin hefur verið klippt aft- ur að vori. Sé kldppt á vetri er látið nægja að klippa einu sinni á ári. — 1 hvaða augnamiði er þetta gert? — Þetta er rannsakað bæði vegna uliarinnar og annarra hluta. Ég hef viljað reyna hvernig haustullin reyndist sem söluvara, en fengið lít- inn dóm á hana. En hún hef- ur reynzt hvítasta og gljá- mesta ull sem til er, en þótt nokkuð hörð, sem m. a. er vegna þess að þelprósentan er lægri en í vorull. Áhrif kiippingar á fóstur- þroskann hafa reynzt merki- lega mikil, sérstaklega hjá gemlingum. Það hefur borið mikið á þvi þar sem gemling- ar eru með lömbum og fóðr- aðir vel að lömbin verði van- þroska nýfædd, — það er að sjá að það stafi af því að gemlingunum sé of heitt í ull- inni í húsunum. Það hefur reynzt jákvætt með fóstur- þroskann þó beðið sé með klippingu fram í marz. Norðmenn hafa tekið þess- ar tilraunir upp eftir okkur og fengið sömu niðurstöðu: þyngri lömb og hraustari und- an vetrarklipptum ám og gemlingum en þeim sem ganga í ull fram yfir burð. — Er engin hætta á því að fénu verði of kalt með þessu móti? — Sé klippt í marz þarf að vera hægt að hýsa féð og gefa því vel framúr. Þar sem vel er fóðrað á ullarvöxturinn að vera það ör, og nýja ullin það þétt að fénu sé ekki nein hætta búin af klippingunni. Einn kostur við vetrar- klippingu er að ullin er þá svo til óþófin, en þegar féð er rú- ið seint að vori, eða kannski ekkj fyrr en komið er fram undir haust, þá er reifið hlaupið í flóka og orðið vem- lega gölluð vaia. — Það virðist orðið algengt að féð sé ekki rúið fyrr en seint að haustinu ? — Já, það er vont fyrir féð að ganga i ullinni yfir sum- arið, en þó mjög víða gert nú, — en það er ekki gott við að gera, menn komast ekki yfir að smala og rýja féð, það er að verða svo fámennt í fjár- sveitunum. Það væri gífurleg- ur ávinningur fyrir þessar sveitir ef hægt væri að færa rúninginn af sumrinu yfir á veturinn. Til þess að hægt sé að rýja að vetrinum þarf að nota vél'klippur, — sú aðferð er nokkuð að breiðast út, sér- staklega eftir námskeið er haldið var í fyrra með brezk- um kennara. Þetta er á tilraunastiginu ennþá. Síðastliðinn vetur voru gerðar tilraunir á mörgum bæjum víðsvegar um landið, en aðallega norðanlands í innistöðusveitunum. Það voru teknar ær og klipptar um vet- urinn og samanburðarær sem látnar voru vera í ullinni fram á venjulegan rúningstíma. Bráðabirgðauppgjör á nfið- urstöðunum bendir til að á- góði af því að klippa ærnar að vetrinum geti unnið um 50 krónur á kind. Þessi á- vinningur liggur í vinnusparn- aði, hraustari lömbum og þyngri og betri ull. Það voru alls um 760 fjár í þessari tilraun, helmingur- inn klipptur en hinn til sam- anburðar. Sé gert ráð fyrir að þessi aðferð breiðist fljótt út þann- ig að innan skamms tíma yrði helmingur fjárins, 400 þús., rúinn þannig gerir það 20 miilljón kr. hagnað. Tölurnar úr þessum tilraun- um voru fæiðar beint inn á vélakort og unnið í skýrslu- vélunum að útreikningunum. Það er svo með allar rann- sóknir mínar að þær þarf að byggja á margskonar athug- un á mörgu fé. Tölur er þaif að meðhöndla og reikna út úr verða svo óhemjumargar að það er óviðráðanlegt með nú- verandi mannafla nema taka stórvirkar reiknivélar í notk- un. Með reiknivélunum er þetta leikur einn, að maður nú ekki tali um að setja þær í rafeindaheilann. —- Nokkrar fleiri tilraunir? — Ég gerði eina tilraun með að láta allar ær á sama stað verða blæsma sama dag- inn. — Gekk það — og hvernig fórstu að því ? — Það gekk. Þetta var gert með hormónum. 30 ám vom gefnir hormónar í fóðrinu, er höfðu þau áhrif að þær beiddu allar eftir 48—72 tíma. Nokkrar urðu geldar, svo árangurinn varð ekki eins góður og maður hefði getað vonað, en tilraunin sýnir að hægt er að láta ærnar beiða ákveðinn dag og ætti að vera hægt að tempra magn horm- ónanna þannig að þeir hefðu ekki óheillavænleg áhrif. Svo er það tilraun með byggingarlag og afurðahæfni áa undan háfættum og lág- fættum hrútum. Sú tilraun er tiltölulega skammt á veg kom- in ennþá og nær yfir fátt fé, en fyrstu niðurstöður benda þó eindregið til þess, að á- vinningur geti verið að því að ærfeðurnir séu allháfættir. Ennþá er of snemmt að full- yrða of mikið um fyrstu nið- urstöður, en þær eru þó það ótvíræðar að óhjákvæmilegt er að halda tilraununum áfram og auka þær. Ef í ljós kæmi að erfitt og óhjákvæmilegt reyndist að rækta alla kosti í einum stofni þá myndi þurfa að kljúfa íslenzka fjárkynið í tvennt. Annar stofninn yrði mjólkurlaginn og frjósamur og ær af þeim stofni yrðu látnar fá við hrútum af þétt- byggðum holdastofni. Þessi ræktunaraðferð er al- þekkt í sauðfjárræktarlöndum þar sem mikil áherzla er lögð á góða skrokklögun. Það ætti ekki að koma neinum á óvart þótt við lent- um í ýmsum erfiðleikum með afurðasemina þegar mikb á- Framhald á bls 237. Vetrarklipptar ær á Reykhólum vor 1964. 232 — SUNNUDAGUR

x

Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans
https://timarit.is/publication/261

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.