Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans

Tölublað
Aðalrit:

Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans - 14.06.1964, Blaðsíða 7

Sunnudagur  fylgirit Þjóðviljans - 14.06.1964, Blaðsíða 7
Hinsvegar eru veppska, komí, mordovska og maríska lifandi mál í góðri þróun og á svoéttímum var te'kið að gefa út á þeim bækur og kennslu- bækur. í þrjátíu ár hef ég kennt mál í háskólanum í Tallinn. Höfuðregla mín er að láta stúdentana fara að tala eins fljótt og unnt er. Oft heyri ég sagt: „Eg kann málið, en er hræddur við að tala það“. Þeir sem eru feimnir og hræddir við að sér verði á í framburði eða í notkun orðs, þeir munu aldrei læra að tala reiprennandi. Því skyldi ég ekki lesa kínversku? Leoníd Vasílevskí er ekki málfræðingur, heldur hag- fræðingur, en hefur engu að síður 28 tungumál á samvizk- unni. Þar eru að vísu níu slavnesk mál, en þar að auki svo fjarlæg mál sem jap- anska, kínverska, persneska og tyrkneska. Ef að þekking mín á er- lendum málum væri tekin af mér allt í einu, fyndist mér ég rúinn og snauður, andlegt líf mitt hefði þrengzt ák-af- legá: ég gæti ekki lesið á frummálinu það sem ég hef áhuga á, ekki náð tökum á ýmsum blæbrigðum í ræðu er- lendra starfsbræðra minna, jafnvel móðunnál mitt mundi glata nokkru af töfrum sín- um vegna þess að ég gæti aðeins skoðað það ,,að inn- an“. Ég er ekki málvísindamað- ur og ég byrjaði fremur seint að læra mál. Að loknu hag- fj-æðinámi hóf ég starf í Aust- uHandastofnun:nni, en þar voru saman komnir bæði sagnfræðingar, málfræðingar og hagfræðingar. Til að skilja einföldustu hagskýrslutöflu þurfti ég að snúa mér til túlka. Þetta tafði starfið og var þar að auki lítillækkandi: hvers vegna get ég það ekki sem þeir geta, hugsaði ég. Þannig kynntist ég bæði kín- verSku og tyrknesku. Síðan hef ég lært mál mér til mik- illar skemmtunar. Eg er ekki sammála þeim sem álíta að sérfræðingi sé FRA það nóg að kunna tvö eða þrjú erlend tungumál. Eg man að í stríðinu þurfti ég í snatri að þýða langa grein úr hollenzku. Eg kunni málið ekki og hafði ekki einu sinni orðabók við hendina. Hægt og seint brauzt ég í gegnumsetn- ingarnar og hrasaði um hvert orð. En smám saman jókst hraðinn. Ef ég hefði þá þeg- ar ekki haft töluverða mála- kunnáttu í pússi mínu, þá hefði ég auðvitað ekki getað lesið á ókunnugu máli. Og, vel á minnzt, síðan hefur hol- lenzka verið eitt af mínum uppáh-aldsmálum. Rúmensku lærði ég á sama hátt á stríðs- árunum. Vísindin þróast svo ört, að þú hlýtur að glata miklu af • dýrmætum tíma ef þú ætlar að bíð*a eftir þvi að þýddar verði þær greinar sem þú hef- ur áhuga fyrir. Japanir skrifa í dag mjög mikið um ýmsar greinar vísinda og tækni. Og eiga menn þá að bíð-a þolin- móðir eftir að þetta verði þýtt á ensku eða rússnesku? Mér finnst það einfaldara, að reyna að skilja þes-ar greinar sjálfur, þótt svo nokkur að- stoð sé fengin fyrst í stað. Að vísu eiga menn að byrja á hinum léttari Evrópumálum. Þvi í tungumálum rekast menn á næstum því ósýnilegar sálfræðilegar hindranir, sem hverfa á fimmta eða sjölta máli sem menn iegg.ia fyrir sig. Orðaforðinn sem þú hef- ur vald á hjálpar þér, en þó enn fremur lipurri málfræði- legri hugsun. Nú þegar ég er orðinn roskinn maður, er mér auðveldara að læra nýtt mál heldur en í æsku: á hálfu ári get ég lært að lesa hvaða mál sem er orðabókarlaust með því að læra aðeins á kvöldin. Hinn fræðilega hluta hvaða máls sem er læri ég af stuttri , málfræði sem venjulega er prentuð fyrir framan allar i orðabækur. Ágrip þessi eru stutt og gagnorð: ég renni augum yfir þau cg finn hvað ég þekki af öðrum málum, kerfi hljóðfræðilegra s-amsvar- nna skyldi fyrirbæri. En stundum kemur það fyrir að ég hef ekki tíma til að kynna mér málfræði og tek að lesa bók eða grein — án hennar. HIRTINC OC KOSSAR Það er vissulega vel til fallið að efna til listahátíð- ar í tilefni lýðveldisafmælis- ins: sú vísa verður víst ekki of oft kveðin að, ef við reyn- umst e'kki að eiga vilja til að halda uppi sjálfstæðri menningarstarfsemi þá verð- ur tilveruréttur okko.r sem sjálfstæðrar þjóðar í meira lagi vafasamur. Þegar þessar iínur era skrifaðar er enn of snemmt að leggja á það dóm, hvort þessi hátíð og þátttaka okk- ar í henni verður með þeim ágætum að okkur verði sórni að. En við vitum nú þegar að það var mikill fengur að þeirri ræðu sem Halldór Laxness flutti við opnun há- tíðarinnar. Alvarlegri æðru- lausri ræðu um ýmsan vanda sem því fylgir að vera smá- þjóð í heimi æ stærri heilda. Og um leið mátuleg hirting: kaflinn um þá tíma er við áttum þess kost að t-aka við dönsku guðsorði ókeypis var afbragðs innlegg í deilur okfcar daga. Það er sannarlega gott til þess að vita að enn skuli vera til menn sem álíta að hátíð sem þessi eigi ekki að hafa á sér yfirbragð hlut- lausrar veizlusælu. Heldur skilja han-a sem tilefni til að ræða þýðingarmikla hluti. Veizlusjónarmiðið virðist nefnilega eiga sér marga fulltrúa og öfluga. Það sást til að mynda á viðbrögðum blaðanna: allir lofuðu fram- lag nóbelsskáldsins fögrum orðum og þóttust engar at- hugasemdir hafa fram að færa — Morgunblaðið birti alllanga kafla úr ræðunni en lét að sjálfsögðu með öllu hjá líða að minnast á Guð- brand-.bÍDlíu og baunadisk- inn. Vandamálum er semsagt sleppt ef þau eru óþægileg. Svipaður andi var yfir á- vörpum menntamálaráðherra og borgarstjóra. Mál þeirra blómstraði ríkulega af fjól- um sjálfsagðra hluta; ekkert mál eða málspartur var tek- ið föstum tökum, engin hugs- un ydd. Og þótt við segouxn ooni svo, að það sé ekfci hægt að búast við miklu af hátíðleg- um ávörpum; það hefði þá kannske heldur verið ástæða til að gefa einhver glæsileg fyrirheit um rausn og höfð- ingskap ríkisvaldsins eða borgaryfirvalda við lista- menn landsins, sem svo mjög voru bornir lofi slðasta sunnudag. Pyrirheit um merkilega útgáfustarfs< mi á fornum ritum og ír' ium. Um nýja og frumlega aðstoð við sköpunai’starfsc-mi eða útbreiðslustarfsemi, sem er reyndar ekki þýðingarmmni í þjóðfélagi samtíðarinnar. En þær raddir heyrðust ekki, því miður. Við heyrðum að- eins minnzt á það að vís- indin og listiraar ættu að eiga samleið, að þjóðfélagið og lisiamaðurinn ættu að eiga samleið, að þéttbýlið og listamaðurinn ættu aft eiga samleið, og að sambúð lista- manna og ríkisvalds hefði aldrei verið • betri. Allir kysstu alla fyrir nllt A.llir nema einn. Á. B. SXTWKTU- !E».A-GMhS- SUNNUDAGUR — 235

x

Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnudagur fylgirit Þjóðviljans
https://timarit.is/publication/261

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.