Alþýðublaðið - 02.06.1969, Síða 3
Alþýðublaðið 2. júní 1969 3
VINN3NGSUPPHÆÐTN í síð-
ustu knattspyrnugetraun er tæp 190
þús. kr., en a'Ms seldust 15.100 mið-
ar. Urslit leikjanna um helgina eru
þessi:
í
Akranes — KR 4:0
ÍBK — ÍBV 2:4
Fram — Akureyri 1:1
Þróttur — Haukar . ólokið
KR — Frani ólokið
AB — Esbjerg 2:1
B 1903 — Horsens 3:0 -
Álborg — KB 1:0
Vejle — Hvidóvre 1:0 .
Ólokið er þremur leikjum.
H *
REYKJAVIK. — HEH.
Stórþjófnaður var framinn í einni
ferðaskrifstofunni i borginni í gær-
dag. I>ar var stolið úr veski for-
stjórans verðmæti rúmlega 30 þús.
kr. í íslenzkum og erlendum gjald-
eyri. Þjófurinn mun Tiafa stolið vesk-
inu úr jakka forstjórans, sem hafði
brugðið sír inn í annað herbergi.
Forstjóri ferðasikrifstofunnar var
við vinnu á skrifstofu sinni í gær,
er þjófnaður.nn var framinn. Mun
forstjórinn hafa brugðið sér inn í
annað herbergi, en skilið jakka sinp
eftir. I jakkavasa var veskið serti
stolið var, og voru í því verðmætþ
um 30 þús.ssl. króná, og erlendri
mynt. Þjófurinn mun 'hafa farið
hjjóðlega um, þar sem forstjórinn
varð hans ekki var.
I veskinu voru nok'kur þtisund ís-
lenzkra króua,.200 dollarar, 25 stpd.,
nokkrir pesetar og 50 dollara ávísun;’
gefin út á forstjórann sjálfan.
I morgun var þjófurinn ekki
fundinn.
Magnús Sveinson. Frifff'k Ólafsson. Bessi Bjarnason.
Byggingameldari með bæsfa úbvarið
,HAKARLAR4
RF.YKJAVIK. — Þ.G.
SKATTSKRÁIN fyrir síðastliðið
ár var 'birt■ almenningi í morgun,
og kom hópur man.na þegar • fyrir
klukkan 9 á skattstofuna i Alþýðu-
húsinu .til -þess að líta- á glaðning-
inn. Samkvæmt upplýsingum Ósk-
ars Jónssonar, deildarstjóra skatt-
stofunnar, eru að þessu. sinni 138
,hákarlar‘, en það eru kal'laðir þeir
úrsvarsgreiðendur, sem greiða yfir
kr. 150.000 í tekju- og eignarskatt.
Hæstur einstaklinga er Ingimar Har-
aldsson byggingameistari, rneð kr.
861.054 kr. í tekjuú.tsyar og 18.446 í
cignaútsvar. Næstur er Friðrik A.
Jónsson, útvarpsvirki, með kr. 636.-
505 kr. í tekjuútsvar og 75.895 í
eignaútsvar. Einar Sigurðsson út-
gerðarmaður ,er með 340.400 í eigna
útsvar, eo -ekkert tekjuútsvar, þar
Sem útgerð er alltaf rekin með tapi.
Ekki hafði skráin yfir útsvör fyrir-
tækja borizt í morgun, er blaðið
hafði tal af Óskari.
Við náðum tali af nokkrum skatt-
greiðendum í morgun og hittum
fyrst Mngnús Sveinsson, kennara.
— Ertu ánægður með útsvarið
•þitt ,í ár?
— Já, ég er alveg sæmii'ega ána’gð
ur; ég er með heldur lægra útsvar
en í fyrra, en það er vegna þess að
núna fæ ég frádrátt fyrir útsvarið
í fvrra og tekjurnar hafa minnkað.
Friðrik Ólafsson skákmaður: Ég
stend miklu verr að vígi nú en'i
fyrra; annars er ég ekki búinn að
ganga fyllilega frá þessu, — og með
það var hann rokiniit
Bessi Bjarnason, leikari: Eg éí
fyllilega ánægður, fasteignaskattuj*-
inn er talsvert la’gri en í fyrra, því
að ég keypú og seldi á árinu, ejtl
átti bara í fyrra.
Innbrot hjá
Alþýðubiaðinu
Reykjavík — HiEiH
í fyrriaiótt var brotizt inn á
ákrifstafu Alþýðiublaðsins og
(þaðan stollð fjórum ávísania-
lieftum og nokkrustn þtisund
krónluan í peningum. Þjófurinn
hafði ekki fumdizt í morgun.
Skoium siolið
Reykjavík — HEH
í gær var brotizt inin í geymslu
í Hátúni 8 í Reykjavík og jþað-
an stolið skotum í haglabyssu.
Ranntsóknarl ögr-eglan telsur
sennilegt, að hér hafi hörn ver
lð að verki. Athygli skal vakin
á íþ/ví, að hér er um sterkar
ihvelilettur að ræða og geta skot
ln verið hættuleg. Er íófk, sem
verður vart við börn m;eð þessi
háskalegu leikföng vinsamlegast
beðið um að hafa samband við
ramisóknarlögregluna.
Þau eru ekki mörg, börnin í heitrúnum, sem heimta föður
sinn heini ijrá tunglinu. Litla stúikan á myndinni er ein
þeirra barna, sem það gera; hún heitir Tracey Cernan, dóttir
Eugene Cernan eins þremenninganna, sem fóru með Appollo
10 á braut um tunglið. Litla stúlkan fagnar þarna pabba sínuip
í Houston í Texais, þegar þrenxenningarnir komu þangað fr.
þriðjudaginn í síðustu viku. i