Vísbending - 02.05.1984, Blaðsíða 1
VISBENDING"
VIKURIT UM ERLEND VIÐSKIPTI OG EFNAHAGSMÁL___
17.2 2. MAÍ1984
Gjaldeyrismarkaður
Talsverðar gengissveiflur frá áramótum
Vendipunktar
Eftir hækkun á gengi dollarans
gagnvart flestum öörum myntum allt
síðastliöið ár aö frátöldu bakslagi í
september og október urðu umskipti
hinn 10. janúar s.l. Gengi dollarans
náði þá hámarki gagnvart öðrum
helstu gjaldmiðlum og tók því næst að
lækka aftur. Frá 11. janúar til 7. mars
s.l. lækkaði gengi dollarans nokkurn
veginn jafnt og þétt en síðarnefnda
daginn urðu afturumskipti. Frá8. mars
og fram undir miðjan apríl sveiflaðist
gengi dollarans nokkuð upp og niður
nokkurn veginn án stefnu en fór síðan
hækkandi í síðari hluta aprílmánaðar.
Taflan sýnir gengi dollarans gagnvart
nokkrum myntum í vendipunktunum
10. janúar og 7. mars ásamt gengi í lok
aprílmánaðar. Myndin sýnirgengi doll-
arans gagnvart þýsku marki en það
gengi er einna mikilvægast á erlendum
gjaldeyrismarkaði.
Óvissar horfur
Er gengi dollarans tók að lækka frá
10. janúar s.l. töldu margir að nú væri
loks á ferðinni varanleg lækkun á gengi
dollarans eins og spáð hafði verið í tvö
ár. Menn minntust þó að á síðustu
tveimur árum hefur gengi dollarans
hrapað tvisvar en tekið síðan að
hækka á nýjan leik. Frá síðari hluta
októbermánaðar 1982 og fram til miðs
janúar 1983 lækkaði gengi dollarans úr
2,57 gagnvart þýsku marki í 2,33 eða
um9%. í septembers.l.tókgengidoll-
arans einnig að falla og lækkaði á
nokkrum vikum úr 2,74 í 2,57 eða um
6%. Eftir bæði þessi lækkunarskeið
tóku við hækkanir og ný gengismet
dollarans. Heldur er þó talið ólíklegt að
sú hækkun sem nú stendur yfir leiði til
enn hærra gengis en þann 10. janúar
Gengi dollarans í vendipunktum á fyrsta ársfjórðungi 1984
pund/$ $/DM $/'sv.fr. $/fr.fr. $/yen $/d.kr.
10. jan........ 1,3932 2,8434 2,2612 8,6816 234,95 10,2862
7. mars........ 1,4853 2,5355 2,1040 7,8212 221,96 9,3111
30. apríl ..... 1,3980 2,7134 2,2415 8,3251 226,27 9,9461
Meðalgengi
desember 1982 . 1,62 2,42 2,05 6,85 242,12 8,52
desember 1983 . 1,43 2,75 2,20 8,38 234,31 9,94
Gengi dollarans gagnvart þýsku marki
s.l. þótt augljóst virðist að vaxtahækk-
anirnar í Bandaríkjunum hafi haft sín
áhrif á gjaldeyrismarkaðinum.
Talið er að gengi þýska marksins
gagnvart dollara verði á bilinu 2,40 til
2,50 í sumar. Líklegt er að yenið hækki
gagnvart dollara líkt og þýska markið
en pundið heldur minna nema til komi
ófyrirséð áhrif frá olíumarkaði.
Þá má einnig geta þess að hag-
vöxtur í Bandaríkjunum á fyrsta árs-
fjórðungi varð meiri en búist hafði verið
við og áhrifin á gjaldeyrismarkað af því
eru heldur óljós og gætu valdið
áframhaldandi óstöðugleika í gengi
dollarans eftir því sem áhrifin af nýjum
fréttum síast inn.
Sérstaða Bandaríkjanna
Bandaríkin hafa óneitanlega nokkra
sérstöðu vegna þess að dollarinn er
alþjóðlegur gjaldmiðill. Þótt sú staða
kynni að koma upp á næstunni að
Bandarikin kæmust í tölu skuldugra
ríkja þá er engin leið að jafna þeim við
aðra skuldugar þjóðir. Flestar skuldum
hlaðnar þjóðir skulda dollara og geta
ekki endurgreitt skuldir sínar og
borgað vexti nema með því að eignast
fyrst dollara. Bandarfkjamenn skulda
líka í dollurum en þeir eru þeirra eigin
mynt og þvi tæpast um erlendarskuldir
að ræða jafnvel þótt þeir skuldi útlend-
ingum.
Efni:
Gjaldeyrismarkaður 1
Gengi krónunnar 2
Hvað er fjármagnsstreymi ? 6
Erlendur fjármagnsmarkaður 7
Töflur:
Innlend efnahagsmál 4-5
Gengi helstu gjaldmiðla 8
Gengi íslensku krónunnar 8