Vísbending


Vísbending - 29.08.1984, Qupperneq 6

Vísbending - 29.08.1984, Qupperneq 6
VÍSBENDING 6 Hrávörumarkaður________________________ Álitið er að verðhjöðnun sé ekki varanleg Verðfall á hrávörum? Lækkandi verð á ýmsum hrávörum svo sem áli, kakói, maís og kopar hefur vakið upp vonir um að hagvöxtur í vestrænum ríkjum þurfi ekki óhjá- kvæmilega að hafa í för með sér hættu áverðbólgu. Aðrirgangaenn lengra og draga þá ályktun af lækkandi hrávöru- verði að í vændum sé allsherjar verð- hjöðnun í efnahagslífi á Vesturlönd- um. Þóttjafnan séerfittaðveravissum túlkun hagtalna hafa margir hagfræð- ingar dregið í efa að ályktanirnar um verðhjöðnun geti verið á rökum reistar. í fyrsta lagi hefur mikil hækkun á gengi dollarans þau áhrif á hrávöru- verðsvísitölur í dollurum að verðvísi- tölurnar lækka með hækkandi gengi dollarans. Hrávöruvísitala „The Econ- omist" mæld í dollurum hefur lækkað um 13% síðan hún var hæst í mars sl. Sama visitala mæld í sterlingspundum hefur hins vegar ekki lækkað nema um tæplega3%. I öðru lagi er landbúnaðarfram- leiðsla afar mikil í Bandaríkjunum um þessar mundir og því mikið framboð af ýmsum matvælum. Þessi áhrif eru bæði tilviljunarkennd, þ.e. háð veðri, og árstíðabundin, og á engan hátt varaleg. I þriðja lagi má benda á að hagvöxt- ur í Evrópulöndunum hefur fram til þessa ekki verið mjög mikill og ekki sambærilegur við framleiðsluaukning- una í Bandaríkjunum (nýjasta áætlun fyrir fyrsta ársfjórðung 1984 þar sýnir að framleiðsluaukningin þá jafngildir yfir 10% hagvexti á ári, og áætlun fyrir annan ársfjórðung hljóðar upp á 7,6%). Eftirspurn eftir hrávörum hefur því í heild aukist minna en ætla mætti eftir hagvaxtartölum frá Bandaríkjun- um. Áætlað er að hagvöxtur í OECD- löndunum verði að meðaltali 4,5% í ár og miðað við þá tölu telia margir að hrávöruverð hafi hækkað talsvert en ekki lækkað. Hækkun frá byrjun uppsveiflu Það var í október 1982 sem hrávöru- verð tók að hækka og var sú breyting til marks um að „uppsveifla" væri hafin. Hrávöruvísitala „The Económist“ mæld í dollurum hefur hækkað um 11 % síðan í október 1982 jafnvel þótt lækkunin frá því í mars sl. sé talin með. Samsvarandi hækkun í pundum er hvorki meiri né minni en 49%. Nýleg könnun á vegum bandarisks banka leiddi í Ijós að hækkun hrávöruverðs frá haustinu 1982 væri um helmingi meiri en að meðaltali á fyrsta skeiði framleiðsluaukningar. Síðasta met í hrávöruverðshækkun er frá öndverð- um sjötta áratugnum en þá fór saman hefðbundin „uppsveifla“ og Kóreu- styrjöldin. Hækkun hrávöruverðs frá haustinu 1982 er þó miklu meiri. Ríkisvíxlar ______________________ Yfirlit yfir fyrsta hálfa áriö Meðalávöxtun stöðug Rikisvíxlar hafa nú verið boðnir út sex sinnum á árinu en fyrsta útboðið var i mars sl. eins og kunnugt er. Birtist yfirlitsgrein um niðurstöður þriggja fyrstu útboðanna í Vísbendingu þann 23. maí sl. en í töflunni hér á síðunni er sýnt yfirlit yfir sex fyrstu útboðin. Útboð ríkisvíxlanna var nýlunda á sínum tíma og var meðalávöxtun víxl- anna 4,5-5% hærri en hæstu leyfilegir vextir á óverðtryggðum skuldabréfum voru þá. Segja má ao uidoo vixianna hafi verið visst spor til vaxtahækkunar en þó á engan hátt afgerandi út af fyrir sig. Bæði er á það að líta að ekki hafa verið seldir víxlar nema fyrir 19-30 milljónir i hverjum mánuði (sjátöflu) og svo hitt að eðlilegt er að víxlar séu seldir í heildsölu á aðeins lægra verði (með hærri ávöxtun) en i smásöluvið- skiptum innlánsstofnana. Meðalávöxt- un í útboðum ríkisvíxlafyrstu sex mán- uðina hefur verið afar stöðug eins og taflan ber með sér. Heyrst hefur að Seðlabankinn hafi boðið í vixla í síð- ustu útboðunum til að halda ávöxtun stöðugri. Vextir umfram veröbólgu breytilegir Raunvextir á vixlum í hverju útboði hafa verið nokkuð mismunandi eftir breytingum lánskjaravísitölu á hverju þriggja mánaða skeiði. Lægsta ávöxt- un umfram verðbólgu á fyrstu sex mánuðunum samkvæmt þeirri spá um lánskjaravísitölu til áramóta sem sýnd er í meðfylgjandi töflu er5,6% i aprílút- boði, en hæsta ávöxtun umfram verð- Utboð ríkisvíxla mars-ágúst 1984 Dags. Útboðs- Seldirvíxlar, mkr. Tilboðsem tekið var, mkr. Avöxtun tiiboða sem tekið var Meðalávöxtun útboðs fj.h.mkr. nafnvlrðl söiuverð hæsta'i iægsta lægsta hæsta % mars 19. 30 19,0 17,943 475.400 470.900 22,36 27,11 25,72 apríl 11. 30 28,5 26,902 475.000 470.900 22,77 27,11 25,97 maí 9. 30 26,0 24,500 236.500 235.500 24,86 27,00 25,95 júní 13. 30 30,0 28,334 236.500 236.000 22,36 27,11 25,72 júlí “ 11. 30 30,0 28,340 236.600 236.000 22,77 27,11 25,97 ágúst 8. 30 19,5 18,412 236.500 235.550 24,86 27,00 25,95 ’> Hver vlxill er að fjárhæð kr. 50 þús. I fyrstu tveimur útboðum voru 10 vlxlar I einu setti, en fimm vlxlar frá og með malútboðinu. Lágmarksfjárhæð sem hægt var að bjóða I var því kr. 250þús. frá og með maiútboði en kr. 500 þús. I tvö fyrstu skiptin.

x

Vísbending

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.