Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1941, Blaðsíða 2

Frjáls verslun - 01.07.1941, Blaðsíða 2
VígbúnaSu rinn íær yfir hönd ina í Bandaríkjunum Formaður V. R., Friðþjófur O. Johnson, er nýkominn heim eftir fimm mánaða dvöl í Bandaríkjunum, þar sem hann starfaði á skrifstofu föður síns, Ólafs Johnson, í veik- indaforföllum hans. „Frjáls verzlun“ hefir haft viðtal við Friðþjóf, sem fer hér á eftir: — Hvað cr að segja um viðskipti íslend- inga og Bandaríkja nú að undanförnu? — Um þessi viðskipti má ýmislegt segja, en eftir þá breytingu, scm nú er orðin á af- stöðu þessara landa hvors til annars, er ekk- ert vitað um hvaða breytingum þessi við- skipti taka. Mikið hefir borið á því undan- farið að erfitt hefir verið fyrir innflytjendur frá Bandaríkjunum að fá bindandi tilboð í sumar vörur, svo sem járnvöru. Verðlag hefir breyzt frá degi til dags og símskeyti héðan eru lengi á leiðinni, þannig, að þegar svar kemur að heiman, er tilboðið oft orðið úrelt. Stundum missa innflytjendur jafnvel af vör- unum fyrir þessar sakir, vegna þess að þær hafa orðið ófáanlegar. Markaður í Banda- ríkjunum er nú afar óviss, þannig, að alltaí má búast við snöggum breytingum á verðlagi vara og framboði á einstökum vörutegundum. Verksmiðjur eru nú margar hverjar farnar aö krefjast langs afgreiðslufrests, sumar heimta jafnvel árs afgreiðslu fyrirvara og bjóða vör- urnar með föstu verði eftir langan tíma eða þá, að miðað er við verð, sem tilteknir hringar ákveði á hverjum tíma, svo sem stálhringur- inn. Má búast við að markaðsóvissan vestra fari sízt minkandi, enda er nú framleiðslan Viðtal við Frið|ojóf O. þar alltaf meir og meir tekin í þágu vígbún- aðar Bandaríkjanna. Verðlag á matvöru er nærri óbreytt og var fyrir stríð, en búist er við, að slíkar vörur hækki ört á næstunni. Erfiðleikar hafa verið miklir á skipagöng- um undanfarið milli Islands og Bandaríkj- anna og mikið af vörum liggur nú í New York, sem bíða flutnings til fslands. Þessar vörur voru pantaðar fyrir ákveðinn tíma og liggja því á kostnað og ábyrgð kaupanda. En von- ast er eftir, að þau þrjú skip, sem ríkisstjórn- in hefir nú fengið á leigu, fyrir milligöngu Thor Thors, aðalkonsúls, muni grynna mjög á þessum vörubirgðum. — Hvernig hafa ísl. niðursuðuvörur líkað vestra ? — Yfirleitt þóttu þessar vörur ágætar. En svo kom það fyrir, að send var skemmd vara á markaðinn, og þeir sem við verzlun fást vita, að það þarf ekki nema fá tilfelli til að spilla því áliti, sem menn höfðu áður myndað sér um gæði vörunnar. f framtíðinni þarf því að gæta þess að slíkt komi ekki fyrir. Ameríkumenn eru vand- látir, samkeppnin er hörð, og íslenzkar vörur lítt þekktar. — Hvernig er fyrirkomulag á lokunartíma og kaupgreiðslum vestra? — Það er algerlega ólikt því, sem hér tíðk- ast. Eins og kunnugt eru Bandaríkjamenn mjög fastheldnir á frjálsræði í öllu, sem við- kemur viðskiptum og í New York er engin reglugerð til um lokunartíma sölubúða. Ef ohnson formann V. R. ■^RJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.