Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1941, Side 17

Frjáls verslun - 01.07.1941, Side 17
AðalleiÖin til hinna fornu við- skiptalanda Evi'ópu í austri, Indlands og Kína, liggur um Miðjarðarhaf til Port Said við mynni Suez-skurðar og þaðan um skurðinn og Rauðahaf, fiam hjá heitustu höfn veraldar, sem er Aden, og síðan um Indlandshaf til Bombay eða til Kolombo á Ceylon. Til Kína er síðan haldið áfram um Singapore og um höfin við strendur Kína til Kanton, Shanghai og Hong- kong. Þá er og skammt til hafnar- borga Japana. Þannig er leiðin á friðartímum, en ef ástandið nú er athugað, þá sést að Miðjarðarhafið er lokað og höfin við Kínastrendur einnig'. Leiðin liggur um þessar mundir á sömu slóðum og var fyrir 70 árum eða suður fyrir Góðravon- arhöfða. Vezlunarleiðin um Miðjarð- arhaf og þaðan landleiðina austur var ein hin þýðingarmesta í milli- landaverzlun fyrr á tímum. Þá leið voru fluttar hinar dýrustu vörur til Evrópu og baráttan um yfirráð hinna ýmsu stöðva á þessari leið er einn af þekktari og þýðingarmeii'i köflum sögunnar. Ymsir telja að í rauninni hafi krossferðirnar á mið- öldum að verulegu leyti snúizt um yfirráðin yfir verzlunarleiðinni í austurátt og mun það nærri lagi. I upphafi miðalda eftir fall hins vesturrómverska ríkis var Konstan tínópel einskonar höfuðborg Evrópu. Þar voru viðskiptin blómlegust, þar döfnuðu listir og vísindi. Þar var Mikligarður, borgin, sem norrænir menn nefndu svo af því að það var hinn mesti „garður", er þeir höfðu séð. íslendingar sóttu margir, sem kunnugt er, til Miklagarðs og hafa að sjálfsögðu farið eftir hinum fjöl- FRJÁLS VERZLUN Viðskiffaleiðir förnu leiðum viðskiptanna þangað austur, eins og síðar verður minnst á. Krossfarar og aðrir Evrópumenn, sem lögðu leið sína um Miklagarð á þessu tímabili, höfðu aldrei fyrr séð slíka auðlegð og menningu og þeir gleymdu ekki veru sinni þai'. Á hin- um fyrri miðöldum var Konstantínó- Úlfaldalestirnar fóru eftir gömlum slóðum frá Asiulöndum til Miklagarðs pel í mestum blóma. Hún var þunga- miðja heimsverzlunarinnar á þeim tíma. Hér skárust allar þær leiðir, er tengdu löndin í vestri og austri. Ríki Konstantínópelsmanna náði þá yfir öll þau lönd, sem verzlunarleiðirnar að Miðjarðarhafinu lágu um, en það voru Egyptaland, Sýrland og Svarta- hafslöndin. Þegar Arabar síðan tóku Sýrland og Egyptaland um 650, þá hélzt sambandið milli Austur-Asíu og Konstantínópel um Svartahaf yfir Armeníu og Kákasuslöndin. Kaup- menn frá Miklagarði voru hvarvetna á ferð og höfðu stöðvar í öllum hafnarbæjum við Miðjarðarhaf. Ar- abar tóku þó brátt að troða þeim um tær og eftir það voguðu kaupmenn- irnir sér ekki eins víða, en lcusu að láta sækja til sín vörurnar. Erlendir kaupmenn flykktust til Miklagarðs, því þar vai' margt að fá, bæði vörur, sem komu að austan og iðnaðarvör- ur úr borginni sjálfri. Iðnaður stóð þar með miklum blóma, einkum silki- og purpuraiðnaður og framleiðsla hverskyns listiðnaðar. Á þessum tíma var mikið um beinar verzlun- arferðir milli Miklagaríjs og Italíu, en þai' voru Róm og Amalfi mestu viðskiptastöðvarnar. En það var einnig önnur breið og fjölfarin við- skiptaleið, sem lá frá Miklagarði, en hún lá til Novgorod i Rússlandi eða Hólmgarðs, eins og' sá bær heitir á norræna tungu. Einnig' var mikil verzlunarmiðstöð á þessum norðlægu slóðum í Kiev eða Kænugörðum. Greinar af þessari miklu norðurleið viðskiptanna lá svo enn lengra til norðurs til Svíþjóðar og Danmerk- ui. Menningarsan.band Norðurlanda við Miklagarð var þá mikið. Verzl- unin ruddi brautina eins og svo víða annarstaðar. Eftir þessari norðlægu leið komust íslendingar til Mikla- g'arðs, eins og kunnugt er úr foin- sögunum. Úr norði'i fluttist mikið af grávöru, hunangi og vaxi til Miklagarðs. Hunang var þá notað í stað sykurs og vaxið í kerti, sem milcið þurfti af einkum til kirkju- Amalfi á Italíu var miðstöð verzlun- arinnar við Miklagarð. 17

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.