Frjáls verslun - 01.07.1941, Side 4
Zimsen
Nafnið Zimsen hefir lengi verið vel þekkt í
Reykjavík. Við þetta nafn er tengd ein elzta
verzlun höfuðstaðarins og í Hafnarfirði hafa
Zimsenarnir einnig rekið verzlun. ,,Frjáls
verzlun“ snéri sér til Helga Helgasonar verzl-
unarstjóra og fékk hjá honum eftirfarandi
upplýsingar varðandi störf Zimsenanna og
verzlunarrekstur þeirra:
Upphafið er að maður að nafni Christen
Zimsen fluttist ásamt fjölskyldu sinni til
Reykjavíkur til að takast á hendur verzlunar-
stjórastörf við verzlun N. Chr. Havsteen, en
kona Zimsens var fædd á Hofsós og var syst-
ir Havsteens kaupmanns. Knud Due Christian
Zimsen, sonur Christen Zimsen, fluttist með
föður sínum hingað til lands og var hann þá
14 ára gamall. Árið 1866 réðist hann til Hafn-
arfjarðar og stjórnaði þar verzlun P. C. Knut-
zons, en stofnsetti síðan sjálfur verzlun þar og
síðar með Jóni Norðmann undir nafninu Zimsen
& Norðmann. Nieljohnius bróðir Christian Zim-
sen var franskur konsúll í Reykjavík og dó
hann veturinn 1893—1894. Varð það úr að
Christian fluttist frá Hafnarfirði til Reykja-
víkur og tók að sér konsúlsstörfin, en setti
jafnframt á stofn dálitla verzlun. Konsúlats-
störfin voru umfangsmikil, því hér kom þá
aragrúi af frönskum skútum og voru hér
stundum í einu 60—70 fiskiskip, sem komu á
tímabilinu frá miðjum marz og fram til loka
maímánaðar. Var töluverð verzlun í sambandi
við skipin. Þessi skútuöld hvarf smátt og smátt
upp úr aldamótunum, þegar togararnir komu
til sögunnar.
Fyrsta sumarið störfuðu feðgarnir Christi-
an og Christen yngri einir að verzluninni og
konsúlatsstörfunum, en um haustið 1894 eða
nánar tiltekið 15. okt. kom Helgi Helgason
núverandi verzlunarstjóri til Zimsens og hefir
4
Frásögn
Helga Helgasonar
verzlunarstjóra
hann starfað þar óslitið síðan. Mun það vera
nálega algert einsdæmi að sami maður vinni
svo lengi óslitið í einum stað.
Zimsen verzlaði með allskonar vörur, svo
sem nýlenduvörur, búsáhöld og jafnvel vefnað-
arvöru, og auk þess allsk. járnvöru, smíðatól og
byggingarvörur. Ennfremur var eins og víðast-
hvar annars staðar selt vín. Var verzlunin í
Hafnarstr. 23. Á þessum fyrstu árum voru lítil
peningaráð meðal almennings, en þó var pen-
ingaverzlun í byrjun. Töluvert kom af peningum
í sambandi við verzlunina við frönsku skúturn-
ar og einnig var töluverð verzlun við ensk her-
skip, sem voru hér tíðir gestir. Fyrir þessa pen-
inga keypti svo verzlunin erlendar vörur. —
Lítið var um að vörur væru sendar heim til
kaupenda. Fólk kom með klúta og körfur og
flutti sjálft vörurnar með sér. Bréfpokar og um-
búðapappír var að komast í notkun á seinasta
tug aldarinnar.
Opnað var venjulega kl'. 8 á morgnana.
Sumstaðar var þó opnað kl. 7. Lokað var kl. 8
á kvöldin og var þá eftir að ganga frá í búð-
inni og var það annaðhvort gert eftir lokun
eða áður en opnað var á morgnana. Vinnu-
tíminn var því langur.
Verzlunin gekk vel og árið 1896 kom Jes
Zimsen, sonur Christian Zimsen, heim frá
Danmörku, en hann hafði verið á verzlunar-
skóla í Kolding. Jes Zimsen fæddist í Hafnar-
firði 13. apríl 1877 og er faðir hans tók að sér
afgreiðslu Sameinaða gufuskipafélagsins að
Óla Finsen póstmeistara látnum, þá tók Jes
við verzluninni og keypti hana 1903. Það var
ekki fyrr en 1914 að verzluninni var skipt í
járnvörudeild og nýlenduvörudeild og hefir
járnvörudeildin ætíð verið í sama húsinu þar
sem hún er nú, en nýlenduvörudeildin hélt
áfram að vera í Hafnarstræti 23. Engilbert
FRJÁLS VERZLUN