Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1941, Qupperneq 25

Frjáls verslun - 01.07.1941, Qupperneq 25
Nottingham og spurði um verð þeirra. Það var hátt, miklu hærra en hann vildi greiða. Hann fór því með næstu lest til Liverpool og heimsótti forstjóra Ogden. Þeir tóku tilboði hans, en vildu þó leita samþykkis hluthafanna. Þá urðu allir brezkir tóbakskaupmenn skelkaðir. Þeir slóg'u sér saman í enskan hring, Imperial Tobacco Company, og buðu Ogden hærra verð, en Duke hafði gert. En forstjórar Ogdens stóðu við orð sín og seldu Duke, en þá hófst stríðið fyrir fyrir alvöru. Ensku fyrirtækin beindu nú skeytum sínum að Ogdens-verksmiðjunum. Stórkaupmenn og smásalar útilokuðu vörur þeirra, en blöðin þrumuðu um ,,svikin“ og hvöttu hvern föður- landsvin meðal reykingamanna til að hjálpa til við að sigra Bandaríkjamanninn. En hann hopaði hvergi, enda þótt umsetning Ogdens- verksmiðjanna minnkaði um 50%. Hann lét það ekki á sig fá, en það var einmitt um þetta leyti, að Duke-pakkarnir fóru að innihalda smágripi af ýmsu tagi. Margar þessara gjafa kostuðu jafnmikið og sigaretturnar og verðið fór niður í næstum ekki neitt. Pakkinn kostaði aðeins 10 aura eða jafnmikið og sumar ódýrari sigaretturnar núna. Hver dagur þessarar sam- keppni kostaði 3000 dollara. En áður en árið var á enda, var Duke búinn að sigra. Honum fannst þó hyggilegra að selja Imperial Tobac- co Co. eigur fyrirtækis síns í Englandi með margra milljóna hagnaði, en stofnaði bráðlega British-American Tobacco Company og náði valdi á útflutningi enska hringsins, svo að hann varð mestur valdamaður í tóbaksfram- leiðslu heimsins. Bretar sigruðu þó að lokum, því að Duke eignaðist fjandmann í föðurlandi sínu, stjórn- ina í Washington, sem öfundaði hringana fyrir auð þeirra og völd og fékk hún samþykkt rót- tæk lög um starfsemi þeirra. Það varð því að leysa hring Dukes upp í marga smáhluta, og afleiðing þess var sú, að fjölda hlutabréfa var dembt á markaðinn, en Bretar keyptu þau, því að ríkisstjórn þeirra lét þá alveg afskipta- lausa. Fyrir bragðið varð American Tobacco Company fremur enskt fyrirtæki en ameríkst, en Duke réði því ennþá, þótt það missti mik- inn hluta viðskipta sinna. Fyrir einveldi Am- eríkumanna, var ameríkst tóbak mest notað, en Englendingar byrjuðu að nota kínverskt, tyrkneskt og egipzkt tóbak. James Duke, sem var jafnframt forstjóri British-American Tobacco Co. var oftast í ferðalögum. Hann hafði eigi að síður áhuga FRJÁLS VERZLUN fyrir fylki því, sem hann fæddist 1 — Norður- Carolina — og sömuleiðis systurfylki þess, Suður-Carolina. Hafði hann á prjónunum mikl- ar ráðagerðir um iðnaðarþróun þeirra og var mörgum þeirra hrundið í framkvæmd. En hann náði að lokum þeim aldri, þegar mestu dugnaðargarpar vilja njóta hvíldar. Síð- ustu árin starfaði hann lítið og lézt í október 1925, 68 ára að aldri. Hann hafði gefið um 40 milljónir auðæfa sinna til trúarlegra stofnana og menntamála. Þrátt fyrir það lét hann eftir sig margar milljónir og erfði Doris dóttir hans þær. Sovéi-verzlun. Framh. af bls. 10 verzlun nr. 7 í Leningrad, starfa 12 menn við afgreiðslu. Þessari verzlun er ,,stjórnað“ af íorstjóra, varaforstjóra, þrem deildarstjórum og tveim varadeildarstjórum, eða með öðrum orðum, að þessir 7 menn stjórna 12 afgreiðslu- mönnum. Það má skilja það á ,,Pravda“, að þetta ástand einkennir margar verzlanir. I matvöruverzlunum í sumum hverfum Lenin- grad eru hinsvegar 4—5 afgreiðslumenn fyrir hvern stjórnarmeðlim. í Moskva er það hins- vegar þannig, að stjórnendur verzlananna eru tvisvar eða þrisvar sinnum fleiri en afgreiðslu- mennirnir. Yfirleitt er þetta ástand að kenna hinni slælegu skipulagningu starfsmannahaldsins. Sökina bera hinar æðstu ríkisstofnanir, því að þær setja verzlununum reglurnar. Skort- urinn á skipulagningu vinnunnar erjafnmikili í verzluninni sem í iðnaðinum og vöntun veru- lega lærðs starfsfólks gerir illt verra. Þar við bætist, að enginn vill bera ábyrgð á nokkrum sköpuðum hlut. Hver og einn reynir að velta ábyrgðinni á aðra. Það er mjög venjuleg skoðun, að hægt sé að auka afköstin með fjölda ,,sérfræðinga“, forstjóra og stjórnenda. En þessir menn hafa oft ekkert til brunns að bera, fá stöður sínar vegna þess að þeir eru pólitískir gæðingar valdhafanna, en ekki vegna kunnáttu sinnar eða kosta. Ef menn hafa í fórum sínum fé- lagsskírteini flokksins, þá er hægur vandi að komast í þægilega stjórnaraðstöðu. Að lokum má benda á þá villu valdhafanna, að hægt sé að leysa þetta stax-fsmannavanda- mál á sama hátt og svo mög önnur, með áróðri. Það er fásinna og ekkert annað. (Handelsarbetaren.) 25

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.