Frjáls verslun - 01.01.1945, Side 3
Magnús Kjaran:
Alþjóðaráðstefna Kaupsýslumanna.
Kafli úr erindi, fluttu 22. jan. s. 1.
Kæru félagar!
Ég hafði í gleðivímunni yfir því að vera kom-
inn heim dregizt á það við formann félagsins,
að segja ykkur lítið eitt frá Alþjóðaráðstefnu
kaupsýslumanna, sem haldin var í Rye í New
York-fylki dagana 10.—18. nóv.
Ég gerði þetta meðal annars vegna þess, hve
langan tíma mér virtist ég hafa til undirbúnings.
En þegar ég svo sá fundinn auglýstan, brá mér
í brún. Dagarnir höfðu liðið, án þess að ég
FRJÁLS VERZLUN
myndi eftir þessu loforði eða gæfi mér tíma til
að sinna því- Ég er því hræddur um, að þið
verðið öll vonsvikin, en ég þó mest sjálfur, því
að vissulega voru þetta ánægjulegir og viðburða-
ríkir dagar fyrir okkur fulltrúana, [þó að flest
af því, sem á dagana dreif, sé varla í frásögur
færandi og hafi lítið gildi fyrir áheyrendur.]
Nú gæti ég þó að sjálfsögðu sagt ykkur all ítai'-
lega frá þinginu og störfum þess, en það yrði
svo þurt og líflaust, að ég legg ekki út í það.
Ég hefi því kosið þá leið, að segja ykkur
stutta ferðasögu og flétta inn í hana því helzta,
er mér virtist máli skipta á fundunum og þeim
ályktunum, er þingið gerði.
Fljúgðu, fljúgðu klæði.
Laugai'daginn 21. október lögðum við Eggert
Kristjánsson, Haraldur Árnason og ég af stað
héðan frá Reykjavík kl. 6 til flugvallarins. Við
gistum um nóttina á Hotel De Gink, sem frægt
er orðið, því þar hafa gist mörg stórmenni, t. d.
Vilhelmína Hollandsdrottning, Pétur Jugoslava-
konungur o. fl., enda er það full boðlegur dvalar-
staður hverjum þjóðhöfðingja. Eftir að hafa
neytt hinnar beztu máltíðar og kvatt vin okkar,
Valdimar Björnsson, sjóliðsforingja, sem fylgdi
okkur þangað, gengum við til hvílu. En mér varð
ekki svefnsamt, hvort sem það nú var af eftir-
væntingu eða ég hefi haft það á tilfinningunni,
að okkur yrði ekki lengi svefns auðið. Kl. 3 er-
um við vaktir til árdegisverðar, og kl. 4 er lagt
af stað út í kolsvart náttmyrkrið. Flugvélin er
ekki af verri endanum, 4 hreyfla „Skymaster“,
luxus-skip, eins og Ameríkumenn kalla það. Dóri
Hjálmarsson, ofursti, sem var okkur samferða,
hafði séð um það. Við erum 28 farþegar, en 6
3
I