Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1945, Side 8

Frjáls verslun - 01.01.1945, Side 8
Louis Zöllner Iíd/in undadist u<5 heiniili sínu, Lijndhurst Whitlcjj ISuij, Nortlmmberlund, 20. jun. sif>- nstl., læplegu 01 árs nT> nldri (f. 17. upril 185i). Zöllner vur fæddur i Dunmörku, uf dönsku foreldri, en fluttisí uni tvítugs uldtir til Englands og dvuldi þar æ siöun, fgrst í Manchesier, en frá því uni 1880 i Neivcaslle. ViSskipti huns viö íslund liófust 188). Á þeini sex árutugum, sem síöan eru liönir, hcfir engiau ú.tlendingur, hafl meiri kijnni né álwgu á vifireisiiarmálum íslendinga, auknu verziunarfrelsi og verklegum fram- kvæmdum. Um líf og sturf þessa merka manns visast til rilgeröur þeirrar, er Árni Jónsson frr. Múlu Iiefir sumiö um hunn. Hufa nokkrtr kuflur þegar birzl hér í blaðinu, en ullmarg- ir cru óliirtir, niunu þcir væntunlcga birtasl í „Frjálsri verzlun“ næstu mánuöi eflir því sem rúni legfir nieS tillili til ulmenns efnis blnösins. Mgndinu hér iiö ofun tók Egjólfur Jóns- son, Ijósmgndari (bunkastjóri) á SegSis- fir'öi og er Zöllner þá tæplegu sertugur. Árið 1938 er Desemberhefti brezka taflblaðsins Chess, sem gefið er út í London, að miklu leyti helgað Louis Zöllner. Ilann var þá kominn hátt á 85. árið. Greininni fylgdi heilsíðumynd af Zölln- er, sú hin sama, sem birtist með fyrsta kafla þessarar ritgerðar hér í blaðinu. Auk þess voru svo rúmar 4 síður með skákum sem Zöllner hafði teflt fyrr og síðar. Greinin er tekin hér upp í heild sinni og auk þess nokkur skákdæmi, og þá auðvitað fyrst og fremst hin fræga skák við heimsmeistarann Aljekin. Greinin ber ekki með sér, hve margar fjöískákir Aljekin tefldi samtals á þessum „tourné“ í Englandi. Mig minnir hann hafi þá teflt alls um 350 skákir víðsvegar um England- Af 350 andstæðingum hans höfðu að- eins 7 mátað hann, einn þeirra hálfníræður öld ungur, Louis Zöllner. — Greinin liljóðar svo: „Þegar Louis Zöllner, formaður skáksambands Norðymbralands, hafði mátað heimsmeistar- ann, dr. Aljekin í fjölskák, er hann tefldi nýlega í Newcastle, mælti hann: „Ég er hræddur um, að> ég eigi ekki oftar eftir að tefla". Ilann fór að segja frá ýmsum taflköppum fyrri ára og nefndi margt nafn, sem nú má heita að komið sé í helgisögur: „Það er sextíu og eitt ár síðan ég tefldi fyrst við Steinitz í Strand í London“. Mr. Hawks segir frá þessu öllu í New- castle Chronicle, mjög innilega, eins og honum er lagið: „Gamli maðurinn hélt áfram hugleiðing- um sínum, minningarnar streymdu fram og það var ekki alveg laust við söknuð, það var eins og hugsunin um „síðasta taflið“ bryti hlekk í löng- um og glæsilegum ferli“. Louis Zöllner fæddist í nágrenni Kaupmanna- hafnar 17. apríl 1854. Verzlunarháskólinn gaf honum þann vitnisburð, að hann væri gáfaðasti nemandi, sem þar hefði verið, árum saman. Árið 1869 réðst hann til skipaútgerðarféags í Hels- ingjaeyri, og lærði þar mannganginn í tafli. Hann var, eins og hann segir sjálfur, „fimmta flokks taflmaður“ þegar hann kom til Manchest- ir árið 1875 og tók við þýðingarmikilli stööu. Þar bjó hann hjá fjölskyldu George W. Wright, sem seinna varð taflmeistri Manchester. Var Wright persónulegur vinur J. H. Blackburn og fékk hann oft í heimsókn. Það liggur nærri að segja að Zöllner hafi orðið fyrsta flokks taflmaður á einni nóttu. Ekki átti fyrir honum að liggja að hafast til langframa við í Manchester. Eftir fjögur ár fór hann til Newcastle. Hann varð brátt leiðtogi tafl- manna þar um slóðir og hefir setið í foringja- sessi við einróma viöurkenningu lengra tímabil, en æviskeið margs manns. Taflfélag bæjarins hafði „fáa meðlimi og engan ákveðinn samastað; FRJÁLS VERZLUN 8

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.