Frjáls verslun - 01.01.1945, Page 13
Hjörtur Hansson ráðinn
framkvæmdastjóri V. R.
Hjörtur Hansson.
Sú nýbreytni var upp tekin um áramótin s. 1., að
Verzlunarmannafélaginu var ráðinn framkvæmda-
stjóri. Er það Hjörtur Hansson stórkaupm., fyrrv.
form. félagsins.
Það hefur alllengi verið við orð innan stjórnar
V. R., að þörf væri á, að félagið réði til sín mann,
sem hefði á hendi yfirumsjón með daglegum
rekstri. Störf stjórnar og nefnda eru orðin það
margþætt og umsvifamikil, að ókleift er lengur að
sinna þeim sem skyldi í algjörri íhlaupavinnu.
Því ákvað félagsstjórnin að auka starfslið félags-
ins með ráðningu framkvæmdastjóra. Svo heppi-
lega tókst til, að Hjörtur Hansson var fáanlegur
til starfsins, en hann er manna kunnugastur öllum
starfsháttum félagsins og mikill vildarmaður þess.
Hjörtur mun starfa fyrir félagið 3 klst. á degi
hverjum. Hann mun sitja fundi með stjórn og
nefndum, gefa þar skýrslur um félagsrekstur og
taka á móti fyrirmælum um framkvæmdir.
Stjórn V. R. væntir hinnar beztu samvinnu við
hinn nýja framkvæmdastjóra og er þess fullviss,
að starf hans muni verða félaginu giftudrjúgt og
til gengisauka.
„Frjáls verzlun" óskar Hirti til hamingju með
starfið.
Árshátíð
V. R.
Egill Gultormsson.
54. afmæli V. R. var hátíðlegt haldið að Hótel
Borg laugard. 27. jan. s. 1.
Hófinu, sem hófst með borðhaldi kl. 7,30, stýrði
form. félagsins, Oddur Helgason.
Margar ræður voru fluttar meðan setið var að
matborðum. Fyrstur ræðumanna var Erlendur Ó.
Pétursson, fulltrúi, sem mælti fyrir minni verzlun-
arstéttarinnar. Var ræða hans sköruleg og mergjuð
einlægum hvatningarorðum til verzlunarmanna.
Því næst flutti Pétur Ólafsson, forstjóri, ræðu
fyrir minni íslands. Minntist hann einkum sjálf-
stæðisbaráttu íslenzku þjóðarinnar og lét í ljós ósk
um, að hún fengi lengi að njóta frelsisins.
Guðmundur Guðmundsson verzlunarm. mælti fyr-
ir minni kvenna. Talaði hann hreint út úr pokanum
um kvenþjóðina, bæði í gamni og alvöru, og var
gerður góður rómur að máli hans.
Þá tilkynnti form. veizlugestum um höfðinglega
gjöf, sem félaginu hefði borizt þann sama dag frá
Guðbrandi Jónssyni prófessor. Er það höfuðbók
forn, frá verzlunartímum Aldinborgarmanna í Nes-
vogi við Stykkishólm árið 1585. Form. las bréf, sem
fy.lgdi bókinni frá gefanda, þar sem hann telur, að
þetta muni vera elzta verzlunarhöfuðbók á Norður-
FRJÁLS VERZLUN
13