Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1945, Qupperneq 18

Frjáls verslun - 01.01.1945, Qupperneq 18
veldis, 17. júní, — merkustu tímamótum í sögu þjóðarinnar. Hafði stjórn félagsins, með auglýsing- um í dagblöðum og útvarpi, hvatt félagsmenn til þátttöku í hinni almennu skrúðgöngu hér í bæ 18. júní, kl. 1 e. h. þann dag. Fyrir forgöngu V. R. og Verzlunarráðs íslands, söfnuðust félagsmenn og aðrir verzlunarmenn og kaupsýslumenn saman fyr- ir framan byggingu félagsins, með mikilli þátttöku, og fylktu sér í raðir, í eina stóra fylkingu, undir fána félagsins og ísl. fánanum, er voru bornir í broddi fylkingar. Var þaðan gengið suður að Há- skólanum og sameinazt hinni almennu skrúðgöngu, er fór síðan gegnum bæinn, fram með Alþingishús- inu, þar sem hinn nýkjörni forseti stóð á svölum úti og var hylltur af mannfjöldanum með ferföldu húrrahrópi, og að stjórnarráðshúsinu við Lækjar- torg. Kl. 3.30 síðd. komu félagsmenn og gestir þeirra saman að félagsheimilinu, er þá var opnað að nýju, eftir að málun og önnur standsetning á því hafði farið fram, og þar minnzt lýðveldisstofn- unarinnar. Var þar húsfyllir og komust færri að en vildu. Formaður ávarpaði samkomuna með nokkr- um orðum, en Vilhjálmur Þ. Gíslason skólastjóri flutti ræðu í tilefni af hátíðahöldunum, tónleikar voru fluttir og ættjarðarljóð sungin. Var þessi at- höfn mjög hátíðleg. — Kl. 5 þennan sama dag heimsótti form. félagsins hinn nýkjörna forseta ís- lands, hr. Svein Björnsson, sem tók á móti heim- sóknum þennan dag í Háskóla íslands, og færði honum fyrir hönd félagsins, árnaðaróskir, er forseti þakkaði með hlýjum orðum og kveðju til félagsins. Frídags verzlunarmanna, er bar upp á 7. ágúst að þessu sinni, var minnzt á sama hátt og undanfar- in ár, þ. e. í Ríkisútvarpinu og með dansskemmtun að Hótel Borg. I útvarpið flutti form. félagsins ávarp, Baldur Pálmason verzlm. erindi, „Minni verzlunarstéttarinnar", Konráð Gíslason kaupm. er- indi, „Minni íslands", en frú Elísabet Einarsdóttir söng einsöng, og hljómsveit útvarpsins veitti að- stoð sína með því að spila nokkur lög á undan og eftir ræðunum. Ber að þakka útvarpsráði fyrir veitta aðstoð, fyrr og nú, til handa V. R. á frídegi verzlunarmanna. Að Hótel Borg flutti form. stutt ávarp, en Ludvig Hjálmtýsson erindi, og var síðan stíginn dans til kl. 3 um nóttina. Fór þessi kvöld- skemmtun að öllu leyti vel fram og var fjölsótt. Eins og fundarmönnum er kunnugt, var á síðasta starfsári stofnaður sjóður innan félagsins, er ber nafnið „Námssjóður Thors Jensen", reglugerð um hann samin og stjórn hans skipuð. í aðalstjórn eru: Haukur Thors framkvstj. formaður, Hallgrímur Benediktsson stórkaupm., Adolf Björnsson banka- maður, Stefán G. Björnsson fulltrúi og Hjörtur Hansson. En varamenn þeirra eru: Jóhann Haf- stein, Sveinn M. Sveinsson, Egill Guttormsson, Þórarinn Björnsson og Óskar Á. Gíslason. Stjórn sjóðsins hélt sinn fyrsta fund miðvikudaginn 9. febrúar þ. á. og skipti með sér verkum þannig; Formaður Haukur Thors, gjaldkeri Hallgrímur Benediktsson, ritari Adolf Björnsson, vararitari Stefán G. Björnsson og meðstjórnandi Hjörtur Hansson. Hefur stjórnin haft með sér tvo fundi síðan. — Sjóðstjórnin festi í vor kaup á 4y2% skuldabréfum ríkissjóðs fyrir kr. 30.000,00, á nafnverði, sem þá buðust af sérstökum ástæðum. Annars var lítið framboð af ríkisskuldabréfum eða bréfum með ríkisábyrgð í sumar, og frestaði því stjórnin frekari ráðstöfun á fé sjóðsins; en nú er ákveðið að kaupa um næstu áramót 4% skuldabréf Sogsvirkjunarinnar, með ábyrgð ríkissjóðs, og enn fremur að ráðstafa á sama hátt 1.000 krónum af vöxtum þessa árs. — Hins vegar var sjóðstjórnin sammála um, að ekki væri unt að veita styrk á þessu ári, þar sem séð væri, að til úthlutunar kæmi eigi sú upphæð, er til verulegs styrktar getur talizt, svo sem er tilgangur sjóðsins. Formaður sjóðsins, hr. Haukur Thors, hefur gefið sjóðnum forkunnarfagra, vandaða og myndarlega gerðabók. Er bókin bundin í alskinn, með merki félagsins á forhlið, þrykktu með gylltum lit. Einnig er nafn sjóðsins áletrað á kjölinn með gylltu letri. Stjórn sjóðsins ætlar að láta sérprenta eða fjöl- rita reglugerð sjóðsins og senda eintak til kaup- sýslumanna bæði hér og víðs vegar um land, með tilmælum um, að þeir leggi í sjóðinn eitthvert til- lag á minnisstæðum dögum, t. d. afmælisdögum fyrirtækja o. s. frv. Ennfremur verður þess farið á leit við skólastjóra Verzlunarskólans, að nemendur skólans skrifi reglugerðina í vélritunartímum, svo að þeir kynnist starfi og tilgangi sjóðsins og muni betur eftir honum. Jafnframt verður leitað til nem- enda Verzlunarskólans um að leggja eitthvað af mörkum til sjóðsins á ári hverju, án þess að í- þyngja að nokkru nemendum og öðrum sjóðum þeirra. Á fyrri hluta starfsársins var á tveim fundum í félaginu rætt um og endanlega gengið frá fram- komnum óskum um breytingu á lokunartíma sölu- búða. Náðist samkomulag í þessu máli við hinar ýmsu sérgreinar verzlunarstéttarinnar, fyrir milli- göngu V. R. og Verzlunarráðs íslands. Afgreiðslu- tíminn í sölubúðum var styttur um 2 klst. á viku, yfir sumarmánuðina. 2. apríl þ. á„ í skólahléinu milli kennslu og prófa, bauð stjórn V. R. 4.-bekkingum Verzlunarskóla ís- lands til kynningar- og skemmtikvölds að heimili félagsins. Voru þar samankomnir um 40—50 nem- endur, er voru að ljúka burtfararprófi. Form. lýsti fyrir nemendum starfsemi V. R. og rakti í stuttu máli feril þess, tilgang og framkvæmdir. Voru þeim einnig sýndar myndir þær, er hanga á veggjum stjórnarherbergisins, af hinum ýmsu brautryðjend- FR.TÁLS VER'ZLÚN 18

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.