Frjáls verslun - 01.01.1945, Page 19
um félagsins, formönnum og heiðursfélögum, og
skýrði form. það helzta, sem sagt varð um hvern
mann fyrir sig. 4 af nemendunum héldu ræður og
mæltu fyrir minni V. R., verzlunarstéttarinnar og
Verzlunarskólans. Mæltist þessum ungu mönnum
ágætlega. Þökkuðu þeir stjórn V. R. boðið f. h.
bekkjarins. Dans var stiginn til kl. 1 e. miðn.
Skemmtinefnd félagsins hefur að mestu annazt
þær skemmtanir, er haldnar hafa verið í félaginu
á starfsárinu. Munu þær vera 13 að tölu að undan-
skilinni afmælishátíðinni, er félagsstjórnin sá um.
Mun form. nefndarinnar, Jóh. Möller, gefa skýrslu
þar að lútandi á fundinum.
Ýms mál hafa verið tekin fyrir, bæði á stjórnar-
og félagsfundum. Reyndir voru möguleikar fyrir
því, að stofnað yrði söngfélag innan vébanda fé-
lagsins. Mál þetta fékk ekki þær undirtektir, sem
búizt var við í jafnstóru félagi, er telur hátt á 12.
hundrað meðlima og hefur áreiðanlega mörgum
góðum söngmönnum á að skipa. Vænti ég samt
sem áður, að vonir mínar í þessu efni megi verða
að veruleika með tíð og tíma og treysti hinum
mörgu, áhugasömu, ungu mönnum innan félagsins
til að hrinda máli þessu í framkvæmd, sem áreiðan-
lega getur orðið stór lyftistöng fyrir félagslífið.
Endurvakið hefur verið að nýju og rætt á félags-
fundum, frumvarp það „Um verzlunarnám og at-
vinnuréttindi verzlunarfólks“, er samið var fyrir
mörgum árum og tvívegis sent Alþingi til fyrir-
greiðslu. Var á þingi skipuð nefnd í málið, en það
dagaði uppi í bæði skiptin. 28. febr. þ. á. var á
fundi skipuð nefnd, er yfirfæri frumvarp þetta,
með tilliti til breyttra tíma, ef vera kynni, að það
þyrfti einhverra breytinga við, og skyldi hún gera
sínar tillögur þar að lútandi. — Þá hefur lítillega
verið komið inn á launamál verzlunarfólks, með
hliðsjón af væntanlegum launalögum fyrir starfs-
menn ríkisins, sem nú liggur fyrir Alþingi, og á
síðasta félagsfundi var samþykkt tillaga, er fól í
sér að skipuð yrði 5 manna nefnd, er vinni að undir-
búningi þessa máls og taki um leið til athugunar
áðurnefnt frumvarp ,,Um verzlunarnám og atvinnu-
réttindi verzlunarfólks".
Rætt hefur verið um stofnun málfundafélags inn-
an félagsins og skipuð nefnd i þaö. Hefur nefnd sú
haft mál þetta til meðferðar, með þeim árangri, að
á síðasta félagsfundi voru samþykktar tillögur og
gjörðir nefndarinnar og henni falinn allur undir-
búningur að stofnun málfundafélagsins og fram-
kvæmdir þar að lútandi, enda mun nefndin þegar
hafa undirbúiö mál þetta svo, að slíkir fundir geti
hafizt nú þegar.
Stofnað hefur verið til happdrættis fyrir hús-
byggingarsjóð félagsins. Er happdrætti þetta ein-
stætt í sinni röð, þar sem hér er um að ræða vinn-
ing, sem er ferð kringum hnöttinn fyrir tvo. Hefur
húsnefndin átt frumkvæðið að þessu merkilega
happdrætti, en nefnd sú, sem hefur það með hönd-
um, er skipuð mönnum úr stjórn og húsnefnd, en
formaður nefndarinnar er einn af húsnefndarmönn-
unum, Oddur Helgason. Er happdrætti þetta í full-
um gangi, og hefur happdrættismiðum, sem eru 60
þúsund að tölu og kosta 5 krónur hver, verið dreift
út á meðal félagsmanna til sölu, og einnig víðs
vegar út um land. Hefur happdrættisnefndin góðar
vonir um að allir miðarnir seljist upp fyrir þann
tíma, er dregið verður, en það á að gerast á af-
mælisdegi félagsins, þann 27. janúar n. k. — Á
nefnd þessi miklar þakkir skilið fyrir sínar fram-
kvæmdir á þessu sviði og alla þá miklu vinnu og
fyrirhöfn, er hún þegar hefur fórnað og á eftir
að láta í té, þar til markinu er náð, sem er sala
allra miðanna. — Fari svo, sem við vonum, að
fyrirætlanir nefndarinnar nái þeim árangri, sem
hún hefur vænzt, bætir hún þar með stórum hag
húsbyggingarsjóðs og stuðlar þannig að því, að
rætzt geti óskir okkar um stóra framtíðarbyggingu,
þar sem verzlunarstéttin, og hinar ýmsu sérgrein-
ar hennar, getur komið saman og haft aðsetur sitt
og unnið að áhugamálum sinum, í góðri samvinnu
og einingu, til bættrar afkomu og átaka fyrir til-
veru sinni sem frjálsborin, sjálfstæð stétt í þjóð-
félaginu.
Þann 9. október s. 1. barst stjórn félagsins bréf
frá Verzlunarráði íslands, þar sem að því var spurt,
hvort V. R. vildi á einhvern hátt hagnýta sér för
þeirra manna, er á vegum Verzlunarráðsins færu
til Bandaríkjanna, til að sitja ráðstefnu kaupsýslu-
manna þar, sem halda á í nóvembermánuði þ. á.
Var þessu boði Verzlunarráðsins vel tekið af stjórn-,
inni. Ritaði hún Verzlunarráðinu svarbréf þ. 17.
okt. og óskaði, ,,að sendinefndin hlutaðist til um
og rannsakaði möguleika fyrir því, hvort ekki
mundi vera hægt að útvega ungum og efnilegum
verzlunarmönnum, er lokið hafa námi við Verzlun-
arskóla íslands, eða sem fengið hafa sambærilega
menntun, stöður hjá stærri verzlunarfyrirtækjum í
Bandaríkjunum, til framhaldsmenntunar í hinum
mismunandi greinum verzlunar og viðskipta, um
lengri eða skemmri tíma.“ Tækist nefndinni að
koma þessum málum í framkvæmd, væri æskilegt
að annaðhvort Verzlunarráð íslands eða Félag ísl.
stórkaupmanna hefði mál þessi með höndum í
framtíðinni, í samstarfi við V. R.
Hefi ég nú í aðaldráttum skýrt frá því helzta,
er hefur við borið í félagslífi voru þetta starfsár.
Kem eg þá að blaðaútgáfu félagsins.
Eins og getið var um á síðasta aðalíundi, sagði
þáverandi ritstjóri blaðsins „Frjáls verzlun“ upp
starfi sínu vegna annríkis. Eftir að stjórn félags-
ins, í byrjun þessa starfsárs, hafði skipað nýja rit-
nefnd fýrir blaðið, fór sú nefnd strax á stúfana í
FRJALS VERZLUN
19