Frjáls verslun - 01.08.1950, Side 8
Fiðurhelt léreft frá 0.30
Dagtreyjusirz frá 0.35
Misl. og hv. gardínuefni frá 0.18
Borðvaxdúkur, al. frá 0.35
Dömuklæði frá 1.25
Hv. og misl. flonell frá 0.22
Dregill frá 0.15
Millumpils frá 1.10
Misl. silki í svuntu 3.38
Svart silki í svuntu 6.08
Misl. silki 22" hr. al. frá 0.75
Misl. flauel 21" br. al. frá 0.74
Misl. og hv. skinnkragar frá 0.50
Svarlar úrkeðjur 0.40—1.50
Regnhlífar 1.50—12.00
Vergarn, í svuntu 0.84
Saumavélar á tréfæti frá 27.00
Samkeppni er ómöguleg.
Allir velkomnir að koma og skoða vörurnar.
Ekki fara margir tómhentir út, sem koma inn.
EGILL JACOBSEN.
SKIN OG SKÚRIR.
Egill Jacobsen, kaupmaður, gerði mikið af því að
kynna vörur þær, er hann hafði á boðstólum, fyrir
viðskiptavinunum með blaðaauglýsingum. Verzlun
hans varð brátt landskunn, og naut Jacobsen trausts
og virðingar sem góður og gegn kaupsýslumaður.
Hingað til lands fluttist hann frá Danmörku árið
1902. Vann hann fyrst um skeið við Brydes verzlun,
en Guðrún systir hans var kvænt Herluf Bryde, syni
J. P. T. Bryde. Þá vann hann einnig um tíma við
verzl. Th. Thorsteinsson.
Árið 1906 hóf svo Egill Jacobsen eigin verzl-
unarrekstur eins og áður greinir. Var verzlunin
fyrst til húsa í Ingólfshvoli, en flutti síðar í Ausl-
urstræti og var þar um skeið, eða þar til það hús-
p.æði eyðilagðist í brunanum mikla 1915. Þá flutti
verzlunin aftur í Ingólfshvol, þar sem hún var óslitið
fram til ársins 1921, er hið tignarlega verzlunarhús
í Austurstræti 9, sem Egill Jacobsen hafði látið byggja,
var tekið í notkun. Var verzlunin þar á tveimur hæð-
um og ein sú stærsta sinnar tegundar á landinu á þeim
fmSami
fiH.L.JAC;
MOON'ú
Hluti af afgreiðslusal verzlunarinnar í hinum nýju húsakynnum.
112
FRJÁLSVERZLUN