Frjáls verslun - 01.08.1950, Qupperneq 21
Innflutningur landsins frá Banda-
ríkjunum féll úr 164,5 millj. $ á
síðasta ársfjórðungi 1949, tiiður í
149,4 millj. $ á fyrsta ársfjórðungi
þessa árs. Sömu sögu er að segja af
innflutningnum frá Kanada, hann
féll úr 190,4 miilj. $ niður í 119,9
millj. $
I
Ástralía er nú bezti bifreiðamark-
aður Breta. Um 40% af bifreiðaút-
flutningi þeirra fyrstu 3 mánuði árs-
ins fór til Ástralíu. Aiis nam útflutn-
ingurinn á þessu tímabili 100.886
fólksbifreiðar að verðmæti næstum
29,9 millj. £, þar af fóru 40.628 bif-
reiðar til Ástralíu að verðmæti 12y4
millj. £. Einnig voru fluttar út
33,710 vörubifreiðar að verðmæti
14,3 millj. £, þar af fóru 13.219 bif-
reiðar að verðmæti 4.8 millj. £ til
Ástralíu, eða 39% af útflutningnum.
i
Bifreiðaframleiðsla landsins á
fyrra árshelmingi 1950 nemur
262.500 fólksbifreiðar og 135.000
vöru- og strætisbifreiðar. Er þetta
um 100 þús. bifreiðum fleira en á
sama tíma 1949.
Stálframleiðsla landsins í júlí s.l.
nam næstum 14,4 millj. tonnum og
er það mesta magn í einum mánuði
í sögu stáliðnaðarins. I sama mán-
uði 1949 nam stálframleiðslan 12,7
millj. lonnum.
Bandaríkin.
Kóreustyrjöldin hefur orðið til
þess að eftirspurn eftir bifreiðum
hefur aukizt gífurlega. Hefur salan
aukizt frá 20 og upp í 50%. Er jafn-
vel komið svo í mörgum borgum.
að bifreiðasalar eru komnir með
langa biðlista, eins og þegar eftir-
spurnin var mest eftir síðu=tu styrj-
öld. Kapphlaupið um bifreiðarnar
er orðið það mikið, að þegar er tal-
ið að svartur markaður með bifreið-
ar hafi myndazt í mörgum borgum,
þar sem bifreiðaverksmiðjurnar
geta ekki sinnt eftirspurninni.
Stálskortur háir nú einnig banda-
ríska bifreiðaiðnaðinum og kemur
til með að hafa áhrif til muna á
framleiðslugetu iðnaðarins, það sem
eftir er af árinu. Ef fjöldi fyrir-
tækja fær nú pantanir á brvndrek-
um og öðrum hernaðartækjum, eins
og Cadillac-verksm. hafa þegar
fengið, er víst, að útlitið verður í-
skyggilegt hvað snertir framleiðslu
fólksbifreiða.
Bifreiðaiðnaðurinn notar nú 5.
hluta af allri stálframleiðslu lands-
ins.
Má telja fullvíst, eins og málum
er nú háttað, að bifreiðaframleiðend-
ur verða að endurskoða framleiðslu-
áætlun iðnaðarins, en í henni var
gert ráð fvrir að framleiða 6,6 millj.
bifreiða á þessu ári.
Á árinu 1949 voru 2/3 hlutar af
gúmmínotkun Bandaríkjanna hrá-
gúmmí, en 1/3 hluti gerfigúmmí.
Utflutningur landsins í júní nam
samtals 875,9 millj. $, eða 51,4 millj
$ meira en í maímánuði. Innflutn-
ingurinn í mánuðinum nam saintals
685,6 millj. $, og jókst um 26,7
millj. $ frá því í maí.
Fvrirtæki eitt í Bandarikjnnum,
Heering Milliken & Co, í South
Carolina, hefur um langt skeið feng-
izt við tilraunir við að auka hlýleika
á ýmsum tegundum vefnaðar, án
þess að þyngd vefnaðarins aukist að
sama skapi. Ilafa tilraunir þessar
þegar borið þann árangur, að tek-
izt hefur að framleiða ým.sar teg-
undir vefnaðar, sem eru gegnum-
dreyptar aluniiníumblöndu. Þrátt
fyrir þessa málmmeðhöndlun heldur
efnið eiginleikum sínum hvað gljúp-
leik.a snertir, þannig að útgufun f i í
líkamanum kemst í gegvium það sem
í öðrum vefnaði. En í köldum veðr-
um kemst líkamshitinn ekki í gegn-
um það, og er þar falinn lcyndar-
dómur málmblöndunnar. Það varn-
ar einnig miklum hita utar. frá að
komist í gegn.
Málmblöndunaraðferð þessi nefn-
ist Milium.
Rannsóknir hafa leitt í ljós, að
rayon t. d. blandað með þessari nýju
aðferð er næstum 15% blýrra en ef
það væri óblandað. Sérfræðingar
fullyrða, að aðferð þessi sé mjög
þýðingarmikil fyrir alla vefnaðar-
framleiðslu í framtíðinni.
Belgía.
Framleiðsla á hreinsuðu gulli í
Belgíska-Kongó nam á s. 1. ári
10.149 kg., en árið áður 9.149 kg.
Þess má geta, að gullframleiðslan
árið 1940 nam 18.580 kg.
Útflutningur landsins á fyrra árs-
helmingi þessa árs nemur að verð-
mæti 38.930 millj. frönkum, á móti
42.235 millj. frönkum á sama tíma
í fyrra.
Þessi lækkun á útílutningsverð-
mætinu stafar aðallega af verðlækk-
un á járni og stáli. Eftirtektarvert
er, að útflutningurinn til landa á
sterlingsvæðinu og Norðurlanda
minnkaði mest á þessu tímabili.
t
Holland.
Fyrstu 6 mánuði þessa árs nem-
ur innflutningurinn 3.755 millj.
gyllin, en útflutningurinn 2.323
millj. gyllin. Á sama tíma í fyrra
nam innflutningurinn 2.668 millj.
gyllin, en útflutningurinn 1.708
millj gyllin.
Verið er að reisa nýja stálverk-
smiðju í Ijmudien, sem á að geta
séð fyrir allt að helming af járn- og
stálnotkun landsmanna. Er verk-
smiðja þessi reist fyrir Marshallfé
og mun kosta um 23,5 millj dollara.
Mun verksmiðjan veita um 2 þús.
manns atvinnu, þá framleiðslan er
komin í gang.
Kolaframleiðslan í júlí nam rúm-
um 1 millj. tonnum. Auk þessa var
töluvert magn flutt inn og megnið
af því frá Þýzkalandi eða 325,1 þús.
tonn. Frá Bretlandi voru flutt inn
38,3 þús. tonn og frá Belgíu og
Frakklandi 37,5 þús. tonn.
Hollendingar hafa nú að mestu
stöðvað kolakaup í Bretlandi, þar
sem þeir telja verð það, sem stjórn-
arnefnd þjóðnýttu brezku kolanám-
anna krefst, of hátt. Segjast þeir
kaupa kolin þar sem þau eru ódýr-
ust, en það sé þessa stundina í
Þýzkalandi.
FRJALS VERZLUN
125