Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1952, Side 1

Frjáls verslun - 01.04.1952, Side 1
14. ÁRG. 3.-4. HEFTI — Atvinnuvegir lctndsmanna hafa löngum verið taldir of fábrotnir, og í því sambandi hafa komið fram ýmsar tillögur um að auka á fjölbreytnina með því að fara inn á nýjar leiðir. Einn er sá atvinnuvegur, sem margar þjóðir hafa drjúgar gjaldeyristekjur af, þó við íslendingar höfum litla rœkt lagt við hann fram að þessu. Er hér átt við ferðalög útlendinga. Ýmsar Evrópuþjóðir leggja mikla áherzlu á að laða sem flesta ferðamenn til sín og verja stórum fjárupphœðum árlega í það að auglýsa á erlendum vettvangi það bezta, sem þcer hafa upp á að bjóða. Við íslendingar erum langt á eftir nágrannaþjóð- unum í þessum efnum. Hið opinbera hefur ekki sýnt ferðamálunum þcmn sldlning sem skildi, og er því enn langt í land, að ísland geti talizt í tölu þeirra landa, sem samkeppnisfœr eru um að bjóða erlendum ferðamönnum heim. Hér hefur á undanförnum árum verið starfrœkt ferðaskrifstofa á vegum ríkisins, en hlutverk hennar hefur að nokkru leyti verið að stuðla að land- kynningu erlendis. Samkeppni um landkynningarmál er œskileg, því það myndi án efa hafa jákvœð áhrif og skapa aukinn áhuga fyrir að gera erlendar ferðamannaheimsóknir að arðbœrum atvinnuvegi fyrir þjóðarheildina. Mikill áhugi er ríkjandi hjá ýmsum aðilum um ferðamálin. Menn eru óð- um að komast að raun um það, að erlendir ferðamenn myndu skapa hér nýja og frjósama tekjulind fyrir þjóðarbúið, ef möguleikar vœru fyrir hendi að taka sómasamlega á móti því fólki, sem fýsir að kanna lítt þekkt lönd og kynnast einhverju óvenjulegu. ísland hefur upp á margt að bjóða fyrir ferðamanninn, sem fá eða engin önnur lönd i Evrópu geta boðið. Stórbrotin náttúrufegurð, þœgilega milt sumarveður, hverir og hveraböð, góður og nógur matur svo eitthvað sé nefnt, allt er þetta vatn á millu okkar í sambandi við heimsóknir erlendra ferðamanna. En þetta er bara eklá nóg. Við Islendingar erum ekki undir það búnir að fá mikinn straum ferðamanna inn í landið. Hér eru of fáir boðlegir gististaðir og hér vantar það frjálsrceði í áfengislöggjöfinni, sem er að finna hjá þeim Evrópuþjóðum, er hagnast mest af ferðamönnum. Hið opinbera verður að stuðla að bœttum aðbúnaði í gistihúsamálunum og stefna ber að því að leysa þau önnur vandamál, er í dag standa nýjum og arðvcenlegum atvinnu- vegi fyrir þrifum. Við íslendingar höfum ekki efni á því að láta tœkifcerin ganga okkur úr greipum. Við erum komnir inn á þjóðbraut, sem er fjölfarin, og hingað myndi marga fýsa að koma í sumarleyfum sínum. Þess vegna eigum við að stefna að því marki að vera undir það búnir að taka á móti erlendum gestum til heilla fyrir þjóðarbúið.

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.