Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1952, Síða 3

Frjáls verslun - 01.04.1952, Síða 3
unum. íslendingar byggja lítt numið en erfitt land, en óleyst verkefni óteljandi. Fjárhagsgeta þjóðarinnar er mjög lítil og fjármyndun einstaklinga óhugsandi undir núverandi skattaáþján, enda er nú svo komið, að öllum öðrum en því opinbera er ógerlegt að ráðast í fjárfrekar framkvæmdir. Ríki og bæjarfélög eru meir og meir að seilast yfir á verksvið einstaklinga og ráð- ast í framkvæmdir, sem með eðlilegum hætti ættu að vera í höndum einstaklinga. Má öllum hugsandi mönnum vera það ljóst, að ef ekkert verður að gert, hlýtur hráðlega að vera komið hér á algjört sósíalist- iskt þjóðskipulag. Þessi þróun er óhjákvæmileg eins og nú háttar hér, og er mér nær að halda, að menn geri sér ekki grein fyrir þessari hættu, en ef svo er, þá sýna skattþegnarnir ótrúlegt langlundargeð. Neðantalin atriði álít ég að leggja beri áherzlu á að sett verði í lög: 1) Samanlagðir beinir skattar og útsvör mega ekki fara fram úr helming tekna skattgreiðenda. 2) Eignaskattar verði algjörlega felldir niður og forboðið með öllu að leggja á skatta, sem virka aftur fyrir sig. 3) Skattar og útsvör skuli frádráttarhæf við fram- tal. 4) Fellt verði niður það ákvæði útsvarslaganna, sem heimilar að leggja útsvar á, „eftir efnum og ástæð- um,“ og komi í staðinn fastur útsvarsstigi. 5) Einstaklingum, jafnt sem hlutafélögum, skuli heimilað að mynda varasjóði. 6) Fellt verði niður veltu- og eignaútsvar. 7) Allur isambærilegur atvinnurekstur skuli hlýta sömu reglum um skattlagningu. 8) Persónufrádráttur hækkaður verulega og fari stighækkandi eftir barnafjölda. 9) Skattayfirvöldum og þó einkum ríkisskaltanefnd skal gert að skyldu að rökstyðja úrskurði sína á sama hátt og dómstólum landsins. 10) I þeim tilfellum, er skattayfirvöld telja framtöl manna röng, skal yfirvöldunum óheimilt að breyta þeim, án þess að fyrir liggi skýlausar sannanir, enda skal sönnunarábyrgðin hvíla á skattayfirvöldunum, og með þessi mál farið sem um skattsvik væri að ræða. Hér hefur að sjálfsögðu verið stiklað á helztu atrið- unum, en skattamálin í heild eru annars svo yfirgrips- mikið mál, að engin leið er að gera þeim veruleg skil í stuttri grein. Eflaust munu valdhafarnir spyrja: Hvar eiga ríkið og bæjarfélögin að fá fé til sinna þarfa, ef skera á niður beina skatta svo sem hér er bent á? Þessi mótbára heyrist oftast, þegar talað er um að lækka þurfi skatta, en hinsvegar heyrist sjaldan eða aldrei nefnd sú sjálfsagða leið að færa saman rekstur hins op- inbera og gæta yfir höfuð ýtrustu varfærni í meðferð opinbers fjár. Auk þess álít ég rétt, að tekjur ríkisins verði sem mest teknar í óbeinum sköttum, þ. e. a. s. með hátollum á lítt eða ónauðsynlegum varningi, og verði þeir tollar hækkaðir verulega frá því sem nú er, en tollar lækkaðir eða jafnvel felldir niður með öllu á brýnustu lífsnauðsynjum. Yfir höfuð ber að stefna að því, að skattar verði sem mest teknir af eyðslu, en hverskonar fjármyndun eða spörun verði ívilnað í sköttum. — Jón Helgason, kaupmaður: í þessu greinarkorni ætla ég ekki að ræða hinn óbærilega skatt- þunga, sem er að sliga allt fram- tak í þessu landi, og sem aðeins verður ráðin bót á með því að draga mikið úr reksturskostn- aði hins opinbera. Ég ætla að minnast hér lítillega á aðra hlið skattamálanna. Menn eru yfirleitt sammála um, að skattalöggjöf okkar Islendinga sé mjög ábóta- vant og munu almennt fagna því, ef hún verður færð í betra horf. Almenningur þarf að geta treyst lögunum, hvort heldur skattalögum eða öðrum; að þau séu sanngjörn og gangi jafnt yfir. Það er fyrsta skilyrði til þess, að þeim verði hlýtt og að þau komi að haldi. En allir heiðarlegir íslendingar óska þess að geta hlýtt lands- lögum. Því er ekki að neita, að sú skoðun er nokkuð rík hér á landi, að menn svíki almennt undan skatti, svo sem mögulegt er. Engum getum skal leitt að því hér, hvort eða að hve miklu leyti þessi skoðun hefur við rök að styðjast. Hinsvegar munu menn almennt líta svo á, að lagasetning Alþingis um skattamál beri keim af þessari skoðun. En slíkt er alveg fráleit for- senda fyrir lagasetningu. Engin lög má miða við annað en að þeim beri að hlýða. Og öll lög verða að sjálf- sögðu að mótast af heilbrigðri réttarvitund almennings, skattalög eins og önnur. Skattalöggjöfin þarf að vera skorinorð. Það er óþarfi að hún bjóði upp á krókaleiðir og undanbrögð. En hún þarf að vera hispurslaust sanngjörn gagnvart öllum, sem engra bragða óska að neyta. Skattalöggjöfin á að miðast við þjóðarhag en ekki pólitíska hagsmuni. Okkur er öllum ljóst, að ekki verður hjá því komizt að greiða skatta og skyldur til bæja og ríkis. Og það er „praktískt“ fyrir ríkisvaldið, að skattheimtan sé FRJÁLS VERZLUN 31

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.