Frjáls verslun - 01.04.1952, Blaðsíða 4
ekki rekin sem fjandsamleg athöfn gagnvart þegnun-
um. Allar skattareglur þurfa að vera í föstu og ákveðnu
formi og gerðar almenningi vel ljósar og kunnar. Smá-
munasemi og fiparðalíningur skattyfirvaldanna þarf að
hverfa. Skattheimtumennirnir þurfa helzt að koma
fram á eins hlutlausan hátt og hægt er. Þeir þurfa jafnt
að vera á verði um rétt skattþegnanna sem skvldur
þeirra.
Það ber að stefna að því, að eyöslusemi verði skatt-
lögð, en ekki nýtni og sparsemi. Persónufrádráttinn
þarf að sjálfsögðu að endurskoða árlega í samræmi
við verðlag í landinu. Skattalöggjöfin þarf umfram
allt að hvetja menn til sparsemi, en ekki eyðslusemi.
Á þetta grundvallaratriði hefur áreiðanlega skort mik-
ið í skattalögum okkar undanfarið.
Loks má benda á það, að skattinnheimtan þarf að
vera miklu einfaldari heldur en nú tíðkast. Og löggjaf-
inn verður um fram allt að hætta að reyna að slá ryki
í augu manna með því að kalla skattana nýjum og
nýjum nöfnum.
Magnús Víglundsson, rœðismaður:
Ég er þakklátur FRJÁLSIII
VERZLUN fyrír að hafa gefið
mér kost á að segja í örfáum orð-
um álit mitt á núgildandi skatta-
löggjöf, og hverjar breytingar á
henni mér virðast mest aðkall-
andi að gerðar verði. Mun ég þó
í þessu sambandi einkum hafa í
huga sjónarmið verksmiðjuiðn-
aðarins, en vandamál hans, og
þá einnig þau sem tengd eru skattamálum, eru mér
kunnari en hliðstæð dagskrármál annarra atvinnuvega.
Segja má, að brýna nauðsyn beri til að leggja ríka
áherzlu á að lagfæra tvö atriði í sambandi við skatta-
mál iðnaðarins, en þau eru:
1) Að felld verði niður útsvarsálagning á veltu iðn-
aðarfyrirtækja. Hefur þetta útsvar komið mjög þungt
niður á iðnaðinum, þar sem við ákvörðun þess er ckk-
ert tillit tekið til raunverulegrar rekstrarafkomu fyrir-
tækjanna, og gjald þetta lagt á engu að síður, þótt um
taprekstur sé að ræða. í mörgum tilfellum kemur því
veltuútsvarið fram sem ranglátur og þungbær eignar-
skattur.
2) Að fallið verði frá innheimtu á söluskatti af inn-
lendum iðnaðarvörum, þá er þær eru seldar til verzl-
ana, en þessi skattur er nú 3%. Óvinsældir þessa skatts
má einkum rekja til þess, að hann er hlutfallslega miklu
hærri á innlendum iðnaðarvörum heldur en hliðstæð-
um erlendum iðnaðarvörum innfluttum. Kemur því
skattur þessi fram sem ósanngjarn og lítt skiljanlegur
verndartollur fyrir útlendar iðnaðarvörur, og verður
þessi skattheimta til að torvelda innlendum iðnaði
samkeppni við innflultar iðnaðarvörur. Munu ekki víða
finnast þess dæmi, að þjóðfélagslega þýðingarmikill
atvinnuvegur, en um þriðjungur landsmanna lifir af
iðnaði, sé látinn sæta slíkum afarkostum.
Ekki mun auðvelt að benda á hjá öðrum þjóðum
dæmi um jafnháa skattlagningu iðnaðarfyrirtækja og
tíðkast hjá okkur. Þannig hef ég fyrir því heimildir, að
á þeim tíma, er Finnar áttu við hvað mesta örðugleika
að búa af völdum vonlausrar styrjaldar við margfallt
ofurefli, hafi skattar af iðnaðarfyrirtækjum til finnska
ríkisins aldrei numið meiru en 53% teknanna, en út-
svör allt að 12%. Urðu Finnar, svo sem alkunnugt er,
að láta af hendi við Rússa borgir og lönd og síðan
sjá því fólki, er þaðan var flutt á burt, en það voru
um 750 þúsund manns, fyrir nýrri staðfestu.
Nú, er Finnar sjá fyrir endann á greiðslum stríðs-
skaðabóta til Rússa og uppbyggingarstarfið er komið
vel á veg, hafa þeir aftur lækkað ríkisskatta af iðnað-
arfyrirtækjum, þannig að nú fara þeir aldrei fram úr
28% teknanna.
Skattalöggjöf okkar verður að gera atvinnufyrir-
tækjum landsmanna mögulegt að styrkja aðstöðu sína
og efnahag í þeim mæli, að þau geti staðið af sér af-
leiöingar af illu árferði og margvíslegum erfiðleikum
öðrum, er jafnan skjóta upp kolli, án þess aö komast í
þrot. Því aðeins að þessi verði niðurstaðan í skattamál-
um, getur þjóðin gert sér vonir um betri tíma og
batnandi hag.
Olaíur I. Hannesson, stud. jur.:
Mér er það fullkomlega ljóst,
að ég er enginn maður til þess
að gera tillögur um breytingar
á gildandi skattalöggjöf, en þó
ætla ég nú samt að verða við til-
mælum FRJÁLSRAR VERZL-
UNAR og hrijra niður nokkur
atriði, sem ég álít. að ekki verði
hægt að komast hjá að laka til
yfirvegunar af nefnd þeirri, sem
nú situr á rökstólum og endurskoðar skattalöggjöfina.
Þar sem ég geri ráð fyrir, að þaö séu eingöngu beinu
skattarnir, sem séu til umræðu hjá milliþinganefnd-
inni, þá mun ég aðeins snúa mér að þeim og þó rétt
32
FRJÁLS VERZLUN