Frjáls verslun - 01.04.1952, Page 7
ísleiidingarnir bjuKffii á Hólel Mosltva.
nema til 10. apríl, en ráðstefnan var framlengd um
tvo daga, svo fulltrúunum gæfist tími til að athuga
sýnishorn og verðtilboð í vörur, sem ýmsir höfðu haft
meðferðis. Þá voru einnig gerðir viðskiplasamningar
milli nokkurra sendinefnda, t. d. undirrituðu brezku
og kínversku nefndirnar gagnkvæman samning um við-
skipti til ársloka 1952 að upphæð £10 milljónir. —
Fundir voru haldnir í svonefndum súlnasal í húsa-
kynnum rússnesku verkalýðssamtakanna. Efnahags-
ráðstefnuna sóttu 471 fulltrúar frá 49 þjóðum, en að-
alritari hennar var kjörinn Robert Chambeiron frá
Frakklandi. Á fundunum voru notuð jafnhliða sex
tungumál, þ. e. enska, franska, rússneska, spánska,
þýzka og kínverska, og voru ræður fundarmanna
þýddar jafnóðum á þessi mál. Þeir sem tóku til máls
virtust sammála um, að núverandi fyrirkomulag á
verzlunarviðskiptum milli þjóða væri fjarri því að
vera eins golt og menn æsktu. Möguleikar væru á
stórauknum viðskiptum, og í því sambandi ætti ekki
að skipta neinu máli við hvaða þjóöfélagsskipulag eða
hagkerfi viðkomandi ríki byggju. Virtust menn yfir-
leitt þeirrar skoðunar, að kapítalismi og kommúnismi
gætu unnið saman að þessu marki. Skoðun mín er sú,
bætir Magnús við, að halda beri verzlun og viöskipt-
um fyrir utan alla pólitík, enda hefur aldrei farið vel
á því að blanda þesum málum saman.
Gafst erlendu fulltrúunum, sem sóttu ráðstefnuna,
ekki tœkifœri til að kynna sér eitthvað
af framleiðslu Rússa?
Jú, við heimsóttum vöru- og iðnsýningar í Moskvu.
Virðast Rússar vera komnir all langt í framleiðslu ým-
iskonar véla. M. a. sáum við mikið af landbúnaðar-
vélum og tækjum, sem virtust vera vel úr garði gerð.
Þá framleiða Rússar orðið talsvert af bifreiðum, og
hafa þeir flutt eitthvað af smærri gerðum til Norður-
landa.
Teljið þér, að við íslendingar gœtum keypt
eitthvað af vörum frá Rússlandi, ef verð
þeirra vœri samkeppnisfœrt?
Eftir því, sem ég gat kynnt mér á meðan ég stóð
við í Moskvu, þá geta Rússar selt timbur, sement,
bílagúmmí, bómullarvörur, skófatnað, kornvörur,
salt, landbúnaðarvélar og eflaust sitt hvað fleira. Hvað
viðvíkur verði á þessum útflutningsvörum, þá lýsti
Nesterov, formaður rússneska verzlunarráðsins, því
yfir í ræðu, um leið og hann óskaði eftir auknum
viðskiptum við aðrar þjóðir, að verð á rússneskum
vörum myndi verða sama og heimsmarkaðsverðið væri
á hverjum tíma. Annars álít ég, að við íslendingar
gætum selt talsvert magn af saltsíld til Rússlands, ef
viðski])ti kæmust aftur á milli landanna.
Voru ekld einhverjar ályktanir gerðar
á ráðstefnunni?
Jú, m. a. var samþykkt áskorun til Sameinuðu
þjóðanna um að þær hlutist til um, að sem fyrst verði
haldin ráðstefna með stjórnarfulltrúum allra þjóða
Alþjóða cfnaliagsráðstefn-
una í Moskvu sóttu 471
fulltrúar frá 49 þjóðum.
Á myndinni sjást þeir á
fundi í húsakynnum rúss-
nesku vcrkalýðssamtaiv-
anna (t.v.). Robert Cham-
beiron frá Frakklandi set-
ur ráðstefnuna (t.h.).
fRjALS VKRZLtJN
35