Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1952, Blaðsíða 9

Frjáls verslun - 01.04.1952, Blaðsíða 9
Þjóðarbúskapur okkar í dag Þegar leita á upplýsinga um margt, sem varðar ís- lenzka landshagi, er oft og tíðum bæði örðugt og tímafrekt að fá greið svör við mörgum spurningum. Svörin eru á víð og dreif í sundurlausum skýrslum eða reikningum, sem tafsamt er að leita uppi. Það er þess vegna stórkostlegur vinningur að bók próf. Ól- afs Björnssonar um þjóðarbúskap okkar*) Vitaskuld er hér ekki um tæmandi heimildarit að ræða, en bók- in gefur mjög glöggt og víðtækt yfirlit um helztu þættina í Btarfsemi landsmanna. Bókin greinist í 9 kafla og eru þeir þessir: Landið. Fólkið. Landbúnað- ur. Fiskveiðar. Iðnaður. Verzlun og samgöngur. Pen- inga og verðmál. Fjármál. Opinber fjármál. Eins og sézt á þessari upptalningu á köflum bók- arinnar kemur hún víða við, enda er bókin 420 síður í allstóru broti og mikið mál á hverri síðu. Til þess að gefa nokkra hugmynd um hvernig höf- undurinn vinnur úr efninu er rétt að rekja, tii dæm- is aðal þættina í kaflanum um verzlun. Þessi kafli hefst, eins og aðrir þættir bókarinnar, á stuttum sögu- legum inngangi, þar isem gerð er grein fyrir helztu atriðum verzlunarsögu landssins. Er ]rar stiklað á stóru, enda á þetta sögulega yfirlit ekki að vera annað en stuttur inngangur til aukins skilnings á ástandinu í dag, en um það snýst allt meginefni bókarinnar. Næst tekur svo höf. til meðferðar verzlunina við önn- ur lönd og verzlunar- og greiðslujöfnuð. Er gerð grein fyrir verzlunarjöfnuðinum, eins og hann hefur verið á síðustu áratugum, og afstöðu innflutnings og útflutn- ings, fjármagnshreyfingum til og frá útlöndum og vísitölum verðs og vörumagns, og fleira sem máli skiptir í þessu sambandi. Síðan er rakin skipting út- og innflutnings eftir notkun og vinnelustígi vöru, við- skiptum við einstök lönd og stuttlega skýrt frá skipt- ingu verzlunarinnar á hafnir innanlands. Loks er all- langur kafli um verzlunarstéttina, tölu verzlana og starfsfólks og um samvinnuverzlanir og er þar skýrt frá sérstöðu þeirra og sérréttindum. í kaflanum um landbúnað er gerð grein fyrir verzlunar- og verðlags- *) Ólafur Björnsson: Þjóðarbúskapur Islendinga. HlaðbúS 1952. málum landbúnaðarins, og í kaflanum um fiskveiðar og iðnað er að finna margt í sambandi við verzlun með afurðir þeirra atvinnugreina. Síðan er að sjálf- sögðu í köflunum um peninga- og verðlagsmál og op- inber fjármál að finna fjölmargt, sem snertir verzlun og hverskonar viðskipti. Þó bókin sé fróðleg fyrir alla þá, sem láta sig varða hag landsins, munu þó fáir græða meira á lestri hennar en þeir, sem fást við verzlun og viðskipti, enda býst ég við, að hún verði mikið lesin og notuð einmitt af þeim mönnum. Það hlýtur að vera hverjum manni ljóst, sem les bók próf. Ólafs, að fádæma elju og nákvæmni hefur þurft til að semja hana. Höfundur gerir ráð fyrir því í eftirmála, að villur kunni að hafa slæðzt inn í bók- ina, því ekki sé ætlandi einum manni að semja svo víðtækt yfirlitsrit öðru vísi en að missagnir komi fyrir- Það má vel vera að slíkt geti borið við, en þá kem ég að því, sem ég tel höfuðkost bókarinnar, en liann tel ég þann, að öruggt er að höfundur vill alltaf hafa það sem sannara reynist, og fyrir lionum vakir ekkert annað en að skýra satt og hlutdrægnislaust frá stað- reyndum. Öllum, sem lesa bókina og nota, er óhætt að treysta því, að þar er „sagt satt eitt og ekkert undan dregið“ af því sem höfundur veit og snertir viðfangs- efni bókarinnar. Hér er ekki um áróðursrit að ræða, heldur safn og flokkun staðreynda, sem eru settar fram á isvo Ijósan hátt, sem bezt verður kosið. Öll snertir bókin dagsins mál en óhlutvandir menn, sem skarta með sérfræðingsnafnbótum, hefðu haft yfir- taks gott tækifæri til að gera slíkt efni að pólitískum áróðri, hefðu þeir ráðizt í samningu bókar eins og þessarar. Slíkir menn hefðu vafalaust fallið fyrir þeirri freistingu að hagræða tölum á þann hátt, sem hentaði stefnu þeirra og markmiði, fella undan það, sem þeim féll miður, en gera úlfalda úr þeim mýflugum, sem þeir gátu fundið þeim máfetað, sem þeir flytja, til framdráttar. En hjá próf. Ólafi er ekkert slikt að finna. ÖIl meðferð hans er fullkomlega „objektiv“ og fer hann allt aðrar gölur en þeir „gerfi-fræðingar“, ef svo má kalla þá, sem láta mikið að sér kveða í stjórnmála- áróðrinum og skeita ekki um skömm né heiður í með- Framhald d bls. 39. FRJÁLS VERZLUN 37

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.