Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1952, Blaðsíða 11

Frjáls verslun - 01.04.1952, Blaðsíða 11
kominn út til íslands. — Árið 1822 voru tveir menn sendir frá Kaupmannahöfn til Reykjavíkur og vildu grípa Kjartan hvar sem hann hittizt.1) — Þeir sneru sér til Moltke stiftamtmanns og beiddust aðstoðar hans til þess að geta náð skuldum hjá Kjartani, en hann vísaði þeim austur á Eskifjörð og þar skyldu þeir lögsækja hann á varnarþingi hans, en samkvæmt landslögum gæti hann ekki látið taka hann fastan, þó að hann skuldaði þeim. — Þeir fengu sér þá hesta og fylgdarmann og riðu alla leið austur á Eskifjörð til þess að lögsækja Kjartan, en sú ferð varð þeim frekar til skapraunar en fjár, því að ekkert höfðu þeir út úr Kjartani. Þeir sigldu svo aftur um haustið úr Reykjavík, sneiptir og gramir yfir málalokum. — Kjartan bjó á lítilli jörð á Eskifirði, sem hann kostaði miklu upp á og kom í góða rækt.2) Á síðari árum sínum hafði hann ráðskonu, er kölluð var Ma- dame Andersen. — Hún eignaðist þrjú börn í vistinni og voru þau kennd sitt hvorum, en allir voru þess full- vissir, að þau væru börn Kjartans.3) Það voru Lára, er giftist Voigt sýslumanni á Ketilsstöðum, Pétur, kenndur Brandt og Edward, sem fór til Danmerkur og ílengdist þar.4) 1) L 65 1288 410. 2) Sýslumannaæfi IV, 761. 3) Séra Einar J.: Þættir Austfirðinga 5014. 4) S. st. Kjajrtan dó á Eskifirði 24. júlí 1845. og hafði áður þjáðst af langvinnu máttleysi. — Þjóðarbúskapur okkar í dag Framliald af bls. 37. ferð staðreynda. Slíkir menn, sem hafa á sér yfirskin fræðimennsku og vísinda en afneita þeirra krafti, eru hættulegir, enda hafa þeir, sumir hverjir, ágæta að- stöðu til að villa almenningi sýn, vegna þess sætits, sem þeir skipa og vegna þess að menntun þeirra vekur traust hjá alþýðu manna. Ólafur Björnsson bregst ekki því trausti og sézt þar munur hans og sumra hinna. Ég tók fram hér á undan, að ef til vill hefði engin einstök stétt manna öllu meiri fróðleik um eigin mál að sækja í bók próf. Ólafs, en þeir, sem fást við verzl- un. Þetta mun vera rétt, enda býst ég við, að þeir verzlunarmenn, sem kynnast bókinni, vildu ekki hafa af henni misst. Bókin er nauðsynleg hverjum verzl- unarmanni, sem vill vita deili á mörgum málum, sem starf hans varða, eins og þeim er háttað í aðalatriðum í dag. En jafnframt því er bókin líka sjónarhóll, með víðri útsýn yfir allan okkar búskap, enda getur engin ein grein hans verið vel skoðuð, nema allar hinar séu nokkuð vel þekktar um leið. Einar Ásmundsson. FRJÁLS VERZLUN 39

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.