Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1952, Síða 12

Frjáls verslun - 01.04.1952, Síða 12
9> Uið söknudum saltfisksins Spjallað við Conrado Bergling, spánskan kaupsýslumann. Viðskipti okkar við Spánverja hafa aukizt til muna síðustu tvö árin eftir að þau höfðu legið niðri um margra ára skeið. Borgarastyrjöldin og síðan heims- styrjöldin lokuðu þessu gamla viðskiptalandi okkar íslendinga, en til Spánar seldum við, sem kunnugt er, mikið af saltfiski fyrir stríð. Seinni hlula ársins 1950 hugðum við íslendingar svo 'til hreyfings hvað snertir viðskipti við Spán. Eftir að viðski])tasamningur komst á milli Islands og Spánar, fóru ýmsir hérlendir kaup- sýslumenn þangað suður í leit að vörum, sem heim- ilað var að kaupa samkvæmt samningnum. Eins og gengur og gerist, þá voru innkaupin upp og ofan, og sala varanna hér heima gekk ekki alveg hljóðlaust fyrir sig. Minna hefur aftur á móti kveðið að heimsóknum spánskra kaupsýslumanna til íslands eftir stríð. Fyrir nokkrum dögum hitti þó ritstjóri FRJÁLSRAR VERZLUNAR sölustjóra Sambands gúmmívörufram- leiðenda á Spáni, Conrado Bergling að nafni, en hann hefur dvalið í Reykjavík að undanförnu í viðskipta- erindum. Við notuðum tækifærið og spurðum Bergling frétta frá gamla viðski])talandinu okkar, hinum suð- ræna og rómantíska Spáni. Á hvaða ferðalagi eruð þér, senjor Bergling? Ég er hingað kominn á vegum þess fyrirtækis, sem ég starfa hjá sem söluforstjóri, en það nefnist Con- sorcio Fabricantes Artículos Caucho og er Samband gúmmívöruframleiðenda á Spáni með aðsetri í Madrid. Mun ég athuga hér frekari sölumöguleika á fram- leiðslu okkar og reyna að kynna mér um leið eftir föngum óskir ykkar og þarfir á hinum ýmsu gúmmí- vörum, sem við framleiðum. Er þetta í annað skipti, sem ég kem hingað til lands, en ég var hér á ferð í fyrra um svipað leyti og þá sömuleiðis í verzlunar- erindum. Hvað getið þér sagt okkur um fyrirtœki yðar? Eins og ég sagði áður, þá er fyrirtæki það, sem ég starfa hjá, Samband gúmmívöruframleiðenda á Spáni. I sambandi þessu eru 260 framleiðendur, sem tekið hafa höndum saman um samræmdan útflutning og isameiginleg innkaup á hráefnum, sem koma aðallega frá Singapore. Hefur hvert fyrirtæki sinn ákveðna innflutningskvóta, sem hafður er undir opinberu eft- irliti. Sambandið hefur nú starfað um sex ára skeið, og aukast viðskipti þess stöðugt. Annars er tiltölulega stutt síðan við Spánverjar fórum að flytja út gúmmí- vörur. Hvaða gúmmívörutegundir framleiðið þið aðallega og hver eru helztu viðskiptalöndin? Við framleiðum svo til flestar tegundir gúmmívara nema hjólbarða. M. a. flytjum við mikið út af gúmmískófatnaði, og hafið þið íslendingar keypt talsvert af þessari framleiðslu okkar. Auk íslands, þá verzlum við mikið við löndin fyrir botni Miðjarðar- hafsins, Sýrland, Lebanon, Trans Jórdaníu, Tyrkland, Grikkland og Egyptaland. Ennfremur flvtjum við ú't til Kanada., Suður- og Mið-Ameríku. Áður en ég kom hingað til íslands, var ég t. d. nýlega búinn að vera i viðskiptaerindum suður í Egyptalandi, Lebanon og víðar við Miðjarðarhaf, en þar eigum við marga góða viðskiptavini. Hverjar fréttir hafið þér svo að segja okkur af verzlun og framleiðslu Spánar almennt? Verzlunin við útlönd hefur aukizt mikið eftir stríð- ið og má nú heita komin á all þolanlegan grundvöll. Eins og kunnugt er, þá er spánski vefnaðarvöruiðnað- urinn gamal þekktur, enda er ekki annar iðnaður í landinu honum fremri. Varla þarf að taka það fram 40 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.