Frjáls verslun - 01.04.1952, Síða 14
Ný
pappírslökkunarvcl
í Lithoprent.
Um þessar mundir eru fimmtán ár
liðin síðan Einar heitinn Þorgríms-
son stofnsetti fyrirtækið Lithoprent í
Reykjavík, sem var fyrsti vísir að virki-
legri ljósprentun hér á landi.
Ritstjóri FRJÁLSRAR VERZLUNAR átti þess ný-
lega kost, að heimsækja fyrirtækið og forstjóra þess,
Jakob Hafstein, sem komst m. a. svo að orði um starf-
semi Lithoprents:
Fyrirtækið reis upp af litlum grunni, því í byrjun
var aðeins um eina litla vél að ræða, sem á engan
hátt gat fullnægt þeim verkefnum, er biðu ljósprent-
unarinnar og því síður athafnaþrá stofnandans. En með
dugnaði og trú á þessa grein prentunar óx fyrirtækið
jafnt og þétt í höndum Einars heitins, og skömmu áður
en hann féll frá, hafði hann margfaldað afkastamögu-
leika Lithoprents með kaupum á einni hinni fullkomn-
ustu myndatökuvél, sem fáanleg var. Auk þess hafði
hann keypt stóra og fullkomna prentvél, og árið 1946
bættist fyrirtækinu önnur prentvél, svo þær eru nú alls
þrjár.
Nýlega hefur Lithoprent svo tekið í notkun nýja
þýzka vél, sem er hin eina slíkrar tegundar hér á landi.
Er þetta lökkunarvél, sem getur gengið frá öllum
pappírsumbúðum þannig, að þær verða endingabetri,
áferðarfallegri og um leið mun snyrtilegri að öilu
leyti. Vélin setur þunna lakkhúð yfir hinn prentaða
flöt, sem gerir það að verkum, að allir litir fá á sig
djúpan og fallegan blæ, og kemur lakkhúðin í veg fyrir
að litirnir upplitist eða fölni. Að því er snertir hrein-
læti í meðferð pappírsumbúðanna hefur þessi meðferð
mikla þýðingu.
Um margra ára skeið hefur það verið mikið áhuga-
mál allra þeirra, er nota litprentaðar pappírsumbúð-
ir um framleiðslu sína, hvort sem um hefur verið
að ræða fiskumbúðir, niðursuðuvöruumbúðir, skraut-
öskjur, sælgætisumbúðir, bókakápur eða tímaritskáp-
ur, að hægt yrði hér á landi að lakkbera pappírinn
og gera hann gljáandi, svo sem alsiða er erlendis. Er
það von Lithoprents, að með þessari nýju vél sé stig-
ið eitt merkilegasta sporið í starfsemi fyrirtækisins,
og það geti hér eftir fullnægt ýtrustu kröfum við-
skiptavina sinna.
Lithoprent hefur á starfsferli sínum ljósprentað
margar merkilegar og fágætar hækur, svo sem Árbæk-
ur Espólíns, Fjölni, Norðurfara og margar fleiri. Um
þessar mundir vinnur fyrirtækið að undirbúningi á
ljósprentun orðabókar Sigfúsar Blöndal. Gert er ráð
fyrir að þessu mikla verki verði lokið í haust.
42
FRJÁLS VERZLtJN