Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1952, Qupperneq 22

Frjáls verslun - 01.04.1952, Qupperneq 22
Nokkrctr leiðbeiningar fyrir vélritara Framhald a>f bls. 44. Strokleðursagnir, ryk og of mikil olía eru venju- lega orsök þess, að ritvélin verður stirð og þung í notkun. Ef nauðsynlegt er að stroka í burtu villu, þá rennið vagninum út til annarra hvorra hliðar, svo að strokleðursagnirnar, óhreinindi og pappír falli ekki niður í vélina sjálfa, heldur fyrir utan hana. Notið olíu sjaldan og ineð varkárni. Aðeins brautar- spor vagnsins og stafahaldararnir þurfa olíudropa af og til. Renna skal vagninum nokkrum sinnum fram og til baka, svo að olían dreyfist um sporin. Aðra hluti ritvélarinnar á aðeins að smyrja eftir ráðleggingum viðgerðarmanns. Valsinn og gúmmíhnúðana á pappírs- haldaranum á að þurrka yfir með spritti við og við, til þess að fyrirbyggja að pappírinn renni til í vélinni. Losið pappírshaldarann frá valsinum og breiðið yf- ir ritvélina, þegar hún er ekki í notkun. Ef þið þurfið að skipta um liturband, þá athugið fyrst vel hvernig það er þrætt í gegnum litabandsstýringuna, áður en Iþið losið það gamla úr. Þegar nýja bandið er þrætt í vélina, þá setjið litabandsstillinguna á hæstu stillingu (litavísirinn á rautt) og færið svo tvo leturstafsarma saman upp að bandstýringunni. Á nokkrum tegundum ritvéla mun nægileg hæð fást með því að þiýsta á skiptilásinn. (Kontorfunktionæren). cr.'P''?1-' r- Frá borði ritstjórnarinnar Framhald af bls. 47. Söluturnafyrirkomulagið þýðir minnkandi verzlun fyrir smákaupmenn, því að þegar fólk veit, að það getur hlaupið út í næsta söluturn fram að miðnætti og keypt þar tóbak, sælgæti o.fl., þá kaupir það síður umræddar vörur að deginum til. Og fyrir verzlunar- fólk er þetta mjög hættuleg ráðstöfun og stefnir at- vinnu þess í voða, því að samdráttur í viðskiptum hjá kaupmanna- og kaupfélagsverzlunum bæjarins minnk- ar óneitanlega atvinnumöguleika þess. Eigendur eölu- turnanna ætla sjálfir ásamt venzlaliði að annast alla afgreiðslu í turnunum, og verzlunarfólk fær hvergi að koma þar nærri. Mál þetta verður að taka sterkum tökum, áður en það verður um seinan. Samtök kaupsýslumanna og V. R. verða að mótmæla þessari fyrirætlun enn einu sinni við bæjaryfirvöldin og leiða þeim fyrir sjónir, að að afkomumöguleikar verzlunarfólks og smákaup- manna mega síður en svo við því að rýrna frá því sem nú er. Afmœlisdagabókin Framhald af bls. 48. Ásgeir Eiríksson kaup- mabur á Stokkseyri varð sextugur 27. apríl s.l. Hann er fæddur á Djúpavogi árið 1892, en fluttist til Stokks- eyrar um fermingaraldur og hefur dvalizt þar síðan. Ás- geir stundaði nám við Flens- borgarskólann, en að námi loknu hóf liann verzlunar- störf, fyrst sem annarra þjónn, en síðar fyrir eigin reikning. Samfara verzlun- arrekstrinum hafa hlaðizt á hann mörg trúnaðarstörf fyrir sveitarfélag sitt og önnur félög. Hann gegndi oddvitastörfum í Stokkseyrarhreppi um langan tíma, og í sýslunefnd Árnessýslu hefur hann átt sæti um tuttugu ára skeið, svo að nokkuð sé nefnt. Mikið starf hefur hann einnig innt af hendi í sam,- bandi við félagsmál Sjálfstæðisflokksins í sýslunni. Ásgeir er greindur maður vel, athugull og gætinn, og má í engu vamm sitt vita. Hann hefur ekki sótzt eftir mannaforráðum, en sökum mannkosta sinna hef- ur hann ekki komizt hjá þeim. Hvert það starf, sem hann hefur tekið að sér, hefur hann leyst af hendi með trúmennsku og skyldurækni. Árnar FRJÁLS VERZLUN honum allra heilla með afmælið. Orðsending Vegna síaukins kostnaðar við útgáfu blaðsins sér ritnefndin sig tilneydda til að hækka áskriftargjaldið um kr. 5,00. — Verður því áskriftargjaldið fyrir yfir- standandi árgang kr. 35.00. Reyk, hósta og ást er ekki hœgt að leyna fyrir neinum. ÍTALSKUR MÁLSHÁTTUR. Bezta leiöin til aö drepa tímann er vinna. Þeir ótrúu þekkja gleöi óskarinnar, en þaö eru aS- eins þeir trygglyndu sem þekkja sorgurhliöina. — — OSCAR WILDE. • Sé bókin auglýst, fœst hún í bókabúö Lárusar Blön- dals. 50 FRJÁLS ver*lun

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.