Frjáls verslun - 01.04.1952, Qupperneq 24
Stjórn Landsbankans ákvað að skreyta veggi í af-
greiðslusal og ganga með myndum úr atvinnusögu
þjóðarinnar. Var Kjarval falið að mála á veggina.
Vann að þessu meðan starfsfólk bankans var enn við
vinnu. Stöldruðu margir hjá listamanninum, horfðu á
vinnubrögð hans, og ræddu við hann. Fannst sumum
erfitt að átta sig á gerð myndanna, að minnsta kosti
framan af. Þá var það, að einn bankamaðurinn, sem
hafði horft á Kjarval mála um hríð, segir:
— Hvað á þetta nú að vera hjá þér?
— Ég er að mála togara, segir Kjarval.
— Nú, ég sé engan togara, segir maðurinn.
— Það er ekki von ,væni minn, þú ert sjálfur í
lestinni, svaraði Kjarval.
„SATT OG tKT“
•
Sá gcrir minnst, sem cddrei hefur tíma til neins.
LICHTENBERG.
— Talar þú frönsku?
— Nei.
— Talarðu þýzku?
— Nei.
— Nú, en í glugga verzlunarinnar stendur skýrum
stöfum: — Franska og þýzka töluð hér.
— Hver talar þessi mál ?
— Viðskiptavinirnir.
„MANDENS BLAD“
•
Hvað sto'fiar þolinmœfii, þegar þú grípur aldrei til
liennar, er mest rífiur á.
ÞÝZKUR MÁLSHÁTTUR.
— Er nokkuð verra til en að vera gamall og bog-
inn?
— Já, vera ungur og niðurbrotinn.
Ef einhver gerir afieins þafi, sem krafist er af hon-
um, er hann þræll. En ef hann gerir meira heldur en
krafizt er af honum, þá er hann frjáls mafiur.
A.W. ROBERTSON.
— Mamma, hvenær get ég rakað mig eins og pabbi?
— Nógur tími til þess að hugsa um það síðar. dreng-
ur minn.
— En hvers vegna má ég ekki raka mig núna. Ég
kann öll orðin, sem pabbi notar á meðan hann rakar
sig.
•
Á botni pokans finnur þú alltaf reikninginn.
HOLLENZKUR MÁLSHÁTTUR.
•
Einstein, hinn heimsfrægi eðlisfræðingur og vís-
indamaður, ferðaðist eitt sinn með járnbrautarlest til
Chicago til þess að vera viðstaddur fund vísindamanna
þar í borg. Á leiðinni til borgarinnar varð hann svang-
ur og fór því inn í matsöluvagninn. Þjónninn sýndi
honum matseðilinn, en þá uppgötvaði hinn frægi próf-
essor, að hann hafði gleymt gleraugunum í klefa sín-
um. Við næsta borð sat svertingi, og bað Einstein
hann vinsamlega að lesa fyrir sig matseðilinn.
Svertinginn brosti og svaraði: „Mér þykir fyrir því,
en ég er líka ólæs!“
•
Karlmafiur, sem fœr konu til þess afi hlusta á sig,
gerir þafi venjulega á þann hátt afi tála vifi einhvern
annan en hana.
FRANKLIN P. JONES.
„Frjáls Verzlun“
Útgefandi: Verziunarmannafélag Reykjavíkur.
Formafiur: Guðjón Einarsson.
Ritstj.: Gunnar Magnússon og Njáll Símon-
arson.
Ritnefnd: Birgir Kjaran, form., Einar Ásmunds-
son, Geir Hallgrímsson, Gunnar Magnússon
og Njáll Símonarson.
Skrifstofa: Vonarstræti 4, 2. hæð, Reykjavík.
Sími 5293.
BORGARPRENT
52
FRJALS VERZLUN