Frjáls verslun - 01.03.1965, Blaðsíða 22
Af erlendu??i vettvangi:
Kðmmúnisminn víkur fyrir heilbrigðri skynsemi
Einkaíramtakið, „óvinur fólksins", leysir nú margan vanda kommúnistaríkjanna
Kosygin, forsætisráðherra Sovétríkjanna, lýsti því
yfir nýverið að „það sem væri gott fyrir þjóðfclag-
ið og neytandann væri gott fyrir framleiðsluna og
framtakið“. Aður var þessu öðruvísi farið í heimi
kommúnismans — það sem var dæmt framleiðslunni
nauðsynlegt var nógu gott fyrir neytandann, og
ef neytandinn felldi sig ekki við það, var það verst
fyrir hann sjálfan. . .
En heimur kommúnismans er að breytast, og í
engu breytist hann hraðar en á sviði efnahagsmála.
Mikil umhugsun og endurmat á staðreyndum leið-
ir nii ekki aðeins til mikilla breytinga á skipulagi
iðnaðarins, heldur hefur þetta einnig orðið til þess
að nýtt viðhorf hefur skapazt gagnvart neytand-
anum — þessari Oskubusku kommúnismans allt
frá rússnesku byltingunni til dagsins í dag.
Umhyggja fyrir neytandanum er nú nánast orðin
tízka í Sovétríkjunum og ríkjum Austur-Evrópu.
í sumum hinna síðarnefndu er jafnvel verið að
losa eilítið um bönnin gegn einkaframtaki í smá-
um stíl til þess að koma á aftur nauðsynlegri þjón-
ustu við neytendur. Þegar kommúnistar tóku yfir
verksmiðjur og námur, liófu þeir að útrýma þeim
greinum iðnaðarins, sem báru í sér einkaframtak
þar heit sín við ættjörðina. Og ég veit, að hin unga
sveit myndi við slík tækifæri björt og upplitsdjörf
bregða sverði sögunnar og láta skáldhörpu íslands
hljóma. Æska lands vors mun valda hvorutveggja.
Ég vil nú, fyrir hönd Braga, færa þakkir hinum
mörgu, sem hafa lagt hönd að verki við gerð þessa
minnismerkis. Skal fyrst þakkað listamanninum,
Ásmundi Sveinssyni myndhöggvara, sem gefið hef-
ur steininum líf af neista listar sinnar. Borgarstjór-
anum í Reykjavík og nánustu samstarfsmönnum
hans, er sýnt hafa máli þessu mikinn velvilja og
áhuga, skal sérstaklega þakkað. Reykjavíkurborg
hefur séð um uppsetningu minnismerkisins, og stað-
ið að þeim framkvæmdum af miklum myndarbrag.
Ég vil og færa þakkir Eimskipafélagi Islands fyrir
drengilegan stuðning, og skylt er og ljúft að þakka
hinu brezka fyrirtæki, Morris Singer Company í
Lundúnum, er steypt hefur mynd skáldsins í var-
anlegt efni. Þá vil ég þakka hinum áhugasama
framkvæmdastjóra Braga, Þóri Ólafssyni hagfræð-
ingi, fyrri störf hans, og ég vil að lokum þakka öll-
um þeim fjölmörgu, sem hafa á margan veg lagt sig
fram um að gera aldarafmæli Einars Benedikts-
sonar sem eftir minnilegast.
„Þú gafst oss allt þitt líf og voldugt verk.
— Guð verndi list vors máls og íslands heiður.“
Svo kvað Einar Benediktsson um annað íslenzkt
stórskáld, Matthías Jochumsson. Sú viðurkenning,
sem vér skuldum Einari sjálfum, verður naumast
orðuð betur. — Það minnismerki, sem hér er reist,
er áfangi í ræktarsemi íslendinga við eitt af stór-
mennum þjóðarinnar. Minnismerkinu bæfir það
svið, scm stjórn Reykjavíkurborgar hefur valið því
í stærsta skrúðgarði höfuðborgarinnar. Bragarlaun-
in frá 1897 eru goldin.
Vér óskum þess, að minnismerki Einars Bene-
diktssonar megi um ókomnar aldir minna íslenzku
þjóðina á allt hið göfugasta og uppbyggilcgasta í
sögu hennar og menningu. En þó umfram allt á
skuld hennar við ættjörð sína.
Ágæti borgarstjóri, Geir Hallgrímsson: Mér hlotn-
ast nú sá heiður, að biðja yður að veita viðtöku
fyrir hönd Reykjavíkurborgar, minnismerki Einars
Benediktssonar til ævarandi eignar og varðveizlu.
22
FR.TÁUS VERZLUN