Frjáls verslun - 01.06.1969, Blaðsíða 15
FRJÁLS VERZLUNf
15
FÉLAGSMÁL
MANNÚÐARMÁL OG ÁHUGAEFNI
SAMEINAST í STÖRFUM HJÁLPAR-
SVEITAR SKÁTA
Sveitin hefur rekstur verzlunar.
Hjálparsveit skáta er meðal
virkustu áhugamannasamtaka i
Reykjavík. Starf og samhugur er
með eindæmum, og félagsmenn
verða hver og einn að vera sér-
staklega vel búnir undir starfið,
stöðugt í góðri líkamlegri þjáií-
un og viðbúnir erfiðum aðstæðum
Aðdragandinn að stofnun Hjálp-
arsveitar skáta var það starf, er
skátar inntu af hendi á Alþingis-
hátíðinni 1930 að beiðni stjórn-
enda hátíðarinnar. Þar aðstoðuðu
þeir almenning og voru óþreyt-
andi að liðsinna í einu og öllu,
þegar á þá var kallað. í framhaldi
af starfinu á Þingvöllum 1930 kom
fram hugmynd um, að rétt væri
og mikil þörf fyrir, að stofnuð yrði
sérþjálfuð sveit, sem sinnti sér-
staklega hjálparstörfum, og var
sveitin formlega stofnuð skömmu
síðar. Auk þess að vera leitarsveit,
sinnti hópurinn einnig blóðgjöfum.
Blóðbanki var þá ekki kominn til
sögunnar, og skipulag blóðsöfnun-
ar ekki komið á núverandi stig
Var Hjálparsveit skáta árum sam-
an eini fasti hópurinn, sem unnt
var að leita til um blóðgjafir í
neyðartilfellum.
Blóðgjafir urðu síðar meir
áhugamál fleiri hópa þjóðfélag's-
ins en skáta, og hjálparsveitin tók
að einbeita sér í auknum mæli a?
ýmsu öðru og ekki sízt sérþjálf-
un í leitarstörfum og aðstoð við
almenning á ferðalögum. Miðast
kröfurnar, sem gerðar eru til
væntanlegra félaga í hjálparsveií-
inni einkum við þessi tvö viðfangs-
efni.
Þess vegna liggur raunar í aug-
um uppi, að félagar Hjálparsveit-
arinnar verða að hafa mikinn á-
huga á ferðalögum. Þeir verða
einnig að vera gæddir góðum lík-
amsstyrk og hafa nokkuð sjáli-
stæðan vinnutíma. Einnig eru
gerðar kröfur til þeirra um marg-
víslega undirstöðuþekkingu, sem
kemur að gagni við leitarstörf og
aðstoð við fólk á ferðalögum. Lág-
marksaldur félaga Hjálparsveitar-
innar er 17 ár.
Sta.rfið. Sveitin leitast við að
auka þekkingu sína, reynslu og
þjálfun með skipulögðum æfing-
um. Á hverju hausti er lögð fram
þjálfunartafla fyrir veturinn.
Sveitin æfir sig ýmist í flokkum
eða öll saman. Æfingar fara fram
bæði að nóttu og degi. Þeim fylgja
ósjaldan ferðalög, einkum göngu-
ferðir, sem eiga að venja hjálpar-
sveitarmenn við hinar margvis-
legu aðstæður í leit að týndu fólki.
Hliðstæð þjálfun í aðstoð við fólk
á ferðalagi fer einnig fram. Til
skáta er oft leitað til að halda uppi
röð og reglu á mannamótum, veit i
sjúkraaðstoð og sitthvað annað.
Við þessu vilja skátar í Hjálpar-
sveitinni ætíð vera viðbúnir, í sam-
ræmi við þörfina og kjörorð allra
skáta: Ávallt viðbúinn.
Starfið er mjög mikið, eins og
sézt bezt á því, að einstaklingar
verja allt að 700 klukkustundum
á ári eða rúmlega tuttugu sóiar-
hringum eingöngu í störf sín í
þágu Hjálparsveitarinnar. Leitir
að týndu fólki eru fleiri eða færri
ár hvert. Sjúkraþjónustan hefur
verið vaxandi þáttur í starfsemi
sveitarinnar. Á sl. ári nutu um
3000 manns aðstoðar Hjálparsveit-
arinnar vegna slysa eða óhappa
og vegna ýmissa annarra ástæðna
á ferðalögum, og einkum á manna-
mótum.