Frjáls verslun - 01.08.1970, Síða 8
6
FRJALS VERZLUN'
3 C
Innlegg
. _ er G5D
aSangt Cö
/<*<? <Wuqiyti þuuttttá
VÖXTUM EB EF'í'ITi STTTTAN' TlMA OKtíTN.N (JILUl'K SJÓUUK
o ___________________________________________________________d
INNL.# 1 ÁR 2 ÁR 5 ÁR 10 ÁR
Kr. 100,00 1.259,00 2.630,00 7.532,00 19.120,00
— 200,00 2.517,00 5.261,00 15.064,00 38.241,00
— 500,00 6.293,00 13.151,00 37.659,00 95.602,00
— 1000,00 12.585,00 26.303,00 75.318,00 191.203,00
— 1500,00 18.578,00 39.454,00 112.976,00 286.804,00
— 2000,00 25.170,00 52.606,00 150.636,00 382.406,00
• TAFLAN SÝNIR JÖFN MÁNAÐARLEG INNLEGG í 1 TIL 10 ÁR
W 3SLM^3IE)©
Ostaðfestar fregnir
A FLAKKI
Verstöðvun á næstunni?
Þótt litlar spurnir fari af hinum leyndardóms-
fullu viðræðum aðila að vinnumarkaðnum og
ríkisstjórnarinnar um bætta sambúð og aukna
samvinnu um hagsmunamál þjóðarbúsins, hefur
verðstöðvun skyndilega sprottið fram á varir
ýmissa manna, sem gerst vita hvað fram fer bak
við leiktjöldin. Verðstöðvun mun sem sé vera
eitt þeirra úrræða, sem helzt er rætt um til
stöðvunar þeirri verðþólguöldu, sem nú rís æ
hærra yfir hausamótunum á okkur eyjarskeggj-
um.
Brotizt úr böndunum?
Það hefur vakið athygli að undanförnu, að
aðalverktaki við byggingar Framkvæmdanefnd-
ar byggingaáætlunar í Reykjavík (Breiðholti),
Breiðholt hf., hyggst nú byggja heljarstórt fjöl-
býlishús á eigin spýtur, þar sem seldar verða
ódýrar íbúðir. Slíkt framtak í húsnæðismálum
hefur vart mátt minnast á fremur en manns-
morð til þessa, og ekkert hefur verið gert til
að lyfta undir slíkt. Nú lítur út fyrir að Breið-
holti hf. takist í framhaldi af hinu mikla við-
fangsefni sínu fyrir hið opinbera, að brjótast úr
böndum. Þetta framtak er vegvísir á lausn hús-
næðisvandans, staðlaðar stórframkvæmdir, sem
myndu fljótlega fullnægja eftirspurn og færa
húsnæðiskostnaðinn í eðlilegt horf. En slæmt
væri það vissulega, ef sumir sæu á eftir þeim
verðbólgudraug fyrir ætternisstapann, sem hús-
næðisvandinn er.
Þráskák hjá Frjáislyndum
Það er hermt upp á forustulið Hannibalista
í Reykjavík, að það bítist harkalega innbyrðis.
Er það kallað litla Viet-Nam stríðið, og álitið
að teflt sé um það, hvort verkalýðssinnar eða
menntamenn eigi að skreyta hattinn í næstu
kosningum. Eru þar nefndir á öndverðum meiði
þeir Hannibal og prófessor Bjami.
Steingrímur forstjóri
Tveim dögum eftir borgarstjórnarkosningarn-
ar í vor mun frambjóðandi Sósíalistafélagsins,
Steingrímur Aðalsteinsson bílstjóri, hafa lagt
inn stöðvarleyfi sitt og gerzt forstöðumaður
heildverzlunar.