Frjáls verslun - 01.08.1970, Blaðsíða 27
fyrirtækja standa í fremstu röð.
Ráðgert er að iðnaðarhverfi
verði á Kársnesi norðanverðu
og á svæðinu austan núverandi
byggðar, við Reykjanesbraut-
ina, sem verið er að byggja frá
Elliðaárvogi. Eru hverfi á þess-
um stöðum hentug fyrir margs
konar iðnað, þar sem sam-
göngur eru góðar að þeim og
frá og fjölmenn byggð við þau.
En þess er vart að vænta, að
iðnfyrirtæki frekar en annar
atvinnurekstur sæki mjög í
Kópavog nema bæjaryfirvöld
geri átak í að iaða þau þang-
að, enda hefur þjónustu af
þeirra hálfu verið ábótavant til
þessa og þau hafa lagt á at-
vinnureksturinn meiri kvaðir
en gert er í nágrenninu. I
þessum efnum þarf stefnubreyt-
ingu, svo vænta megi verulegr-
ar atvinnuuppbyggingar.
Verzlun. Verzlunarrekstur í
Kópavogi er töluverður, sér-
staklega í sambandi við iðnað-
inn svo og matvöruverzlun. Fá-
einar verzlananna má telja
meiriháttar, en yfirleitt eru
þær smáar. Um skeið hefur
skipulag miðbæjar Kópavogs
verið í undirbúningi, og er nú
á lokastigi. Með uppbyggingu
nítízku miðbæjar, fær verzlun
í Kópavogi örugglega á sig
meiri svip. Og jafnframt má þá
búast við því, að bæjarbragur
skapist, sem varla er um að
tala á meðan miðbæ með
kjarna menningarstarfsemi,
þjónustu og verzlunar er ekki
til að dreifa.
Vaxtarverkir, en góð fyrir-
heit. Upphaf byggðar í Kópa-
vogi, sem sjálfstæðs sveitarfé-
lags, var með nokkuð sérstæð-
um hætti, og vandamálin hafa
því e. t. v. verið öllu meiri og
erfiðari viðfangs, þegar fram í
sótti. Skipulagsleysi framan af
hefur vissulega sett sinn svip á
bæjarmyndina og kallað á sér-
stakar úrlausnir á seinni árum.
Þessi ungi kaupstaður hefur
verið með verulega vaxtar-
verki, sem enn eru ekki um
garð gengnir. En Kópavogur á
sína gullnu möguleika, fyrir-
heitin eru góð. Urslitum ræður,
hvernig tekst að auka atvinnu-
lífið, þá ómissandi undirstöðu
hvers sveitarfélags. Og þar er
nánast um framkvæmdaatriði
að ræða. Kópavogur er í miðri
hringiðu þéttbýlisins.
Hvar tökum viö steypuna ?
Auövitaö hjá Verk.
Því Verk steypt
er vel steypt
Steypustöðin Verk.
Steypustöð — 41480 - 41481
Skrifstofa — 10385 -11380
MÁLNINGARVÖRUR
Bjóðum nú nýja litakerfið
TONALITIR
með 2800 litum og litbrigðum.
Verzlunin ÁLFHÓLL
ÁLFHÓLSVEGI 9 — KÓPAVOGI — SÍMI 41585