Alþýðublaðið - 16.07.1969, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 16.07.1969, Blaðsíða 2
2 Alþýðublaðið 16. júlí 1969 Emil við stjórnbcrðið þar sem eftirlit er haft með því, að öll tæki starfi jrétt og séu í lagi. ÐAGLEGT LÍF Á VATNSENDA Það má með sanni segja, að ®kki er veðráttunni á þessum hólma okkar treystandi frekar en öðru, — það er ekki einu- sinni hægt að treysta því að hann rigni. Ég ek austur úr bænum í þeim erindagerðum að fá efni í grein um rigning- una, sem hefur hrjáð okkur svo undanfarið, að þess eru fá dæmi. En í því að ég renni faratækinu austur Breiðholts- veg hregður svo við, að það styttir upp! — Breiðholtsvegurinn ligg- ur í boga sunnan við Breið- holtshverfið, breiður malarveg ur, meira að segja tvískiptur. En von bráðar mjókkar hann aftur og verður venjulegur ís- lenzkur vegur, en þá hefur hann líka skipt um nafn, nefn- ist nú Útvarpssiöðvarvegur og liggur upp á Vatnsendahæð. Við enda Útvarpsstöðvarvegar er lágreist, hvítt hús, umkringt háum möstrum, á vinstri hönd er annað hús, einnig umkringt háum möstrum, og í fjarska á hægri hönd er enn eitt hús, og ekki eru möstrin færri né lægri þar. í húsinu til vinstri var eitt sinn sendistöð Rikisútvarpsins, en þar er nú radíótalsamband til Vestmannaeyja. I húsi því sem sést á hægri hönd, á Rjúpnahæð, fara fram öll sím- töl við útlönd og samtöl í sam- bandi við flugumferðina. ÞAÐAN KEMUR HLJÓÐIÐ Ég hef stöðvað bílinn við fyrstnefnda húsið, en í því er séð um að allar útsendingar Útvarps og Sjónvarps komist til fólksins. Það er sjaldan minnzt á þetta hús né það sem þar gerist, en eigi að síður er það undirstaðan undir því að við fáum að heyra og sjá það sem sent er út í loftið frá þess- um fjölmiðlum. Þar sem rigningin brást þótti mér upplagt að líta inn í stöðv- arhúsið á Vatnsenda og vita hvort þar væri ekki einhver, sem væri til í að spjalla ofur-. lrtið um gang mála þar. Það er Emil Sigurðsson, sem tekur við mér og hann er strax reiðubúinn að sýna mér ailt og leysa frá skjóðunni, — og fer meira að segja að hita kaffi. — Hvað eruð þið margir hérna á vakt í einu, Emil? — Það er bara einn vakt- maður, sem er hérna sólar- hring í einu, kemur klukkan 12 á hádegi og i'er á hádegi daginn eftir, en í allt eru hérna 4 vaktmenn, serri skiptast á. I SÓLARHRING í EINU — Hvernig er vöktunum skipt? — Við erum á vakt annan hvorn sólarhring í eina viku, mánudag, miðvikudag og föstu- dag.Síðan höfum við frí fram á næsta íimmtudag' og erum síðan laugardag, sunnudag og til hádegis á mánudag og síð- an þriðjudag til miðvikudags, en síðan frí til mánudags. Helg- arvakt lendir á okkur þriðju hverja helgi. Á meðan vatnið í kaffi'ð er að hitna göngum við inn í her- bergið þar sem móttakan fer fram. BEXRI TÓNN Á FM — Hérna er FM móttakari, sem tekur við dagskránni neð- an af Skúlagötu 4. Hérna er líka FM sendir, sem nær til alls nágrennis Reykjavíkur, eða um það bil til sama svæðis og sjónvarpið nær til á SV- landi. FM sendirinn nær líka vestur á Snæfellsnes, til mót- takara, sem er þar. — Það er ástæða til að benda fólki á, að það fást miklu betri tóngæði á FM bylgjunni en langbylgj- unni, og mörg útvarpsviðtæki hafa einmitt þessa bylgju. — Aðal sendirinn er geysimikið verkfæri, 100 kw að stærð og er staðsettur í stórum sal. Þar er fyrst og fremst sveifluvaki. Hann myndar bylgjuna, sem magnast upp og ber útvarps- bylgjuna út í loftið. — Þegar okkar bylgja er orð in full mögnuð fer hún í mót- arann, sem blandar henni við útvarpsbylgjuna og síðan fer hún út í loftnetið og út í loftið. ÞEGAR VIÐ SJÁUM HLJÓÐIÐ Við göngum að geysimiklu stjórnborði, sem stendur gegnt sendinum. Það minnir einna helzt á stjórnklefa í rafstýrðu. skipi, en það er þarna, sem eftirlit er haft með því, að öll tækin séu í lagi. Ef eitthvað fer úr skorðum kvikna aðvör- unarljós, en jafnframt hringir bjaila, óg þarf þess vegna ekki alltaf að sitja við borðið. — Á miðju borðinu er merkilegur hlutur, en það er lítill skerm- ur, þar sem sjá má hljóðöldurn ar, þær sem þjóta um loftið, meira að segja bæði burðaröld- una og útvarpsölduna, og það er furðulegt að horfa á þetta fyrirbrigði, hvernig það liðast eftir skerminum á leið sinni út í loftið. Þarna á borðinu er einnig sími, sem er í beinu sam- bandi við útvarpsstöðina á Skúlagötunni. — Þeir hi-ingja neðan úr út- varpi á hverjum morgni til að fullvissa sig um að við séum vaknaðir. Við sofum nefnilega frá hálf tvö, þegar við erum búnir að slökkva á stöðinni, þangað til útsendingarnar hefj- ast að nýju. — Þetta er dálítið erfitt fyrir einn mann, en það var miklu léttara áður fyrr, þegar það var útvarpað frá hálf níu til níu, tólf til kortér yfir eitt, hálf fjögur til fimm og hálf átta til ellefu. !': GERFILOFTNETIÐ LAK — En sjónvarpið, hvernig gengur það fyrir sig? — Sjónvarpssendirinn er Framhald á bls. 11.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.