Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1985, Blaðsíða 15

Frjáls verslun - 01.05.1985, Blaðsíða 15
Reynt að sporna við samningum „Sá hópur innan verkalýðs- hreyfingarinnar sem leggur meira upp úr baráttu og fórnum, en minna upp úr raunverulegum árangri, reyndi að sporna viö samningum, þannig að við sáum okkur ekki annað fært en að slita viðræðunum. Þessi viðræðuslit höfðu hins vegar þau áhrif að hin hógværari öfl innan forystu verkalýðshreyfingarinnar óskuðu viðræðna á ný og leiddu þær við- ræður til samninga," sagði Magnús. -Hver er að þínu mati helsti ávinningur þessara samn- inga? „Með þessum samningum tryggjum við vinnufrið á markað- inum á meðan við vinnum að ýmsum málum með sérsam- þöndunum. Einnig verður rætt við stjórnvöld um efnahagsstefnuna á næstunni. Með þessum samn- ingum vinnst einnig það að verð- þólgan verður minni i lok ársins en hún var í upphafi þess,“ sagði Magnús. „Ég hef þá trú að þessir samn- ingar geti skapað okkur það umhverfi sem ætti að gera öllum velviljuðum mönnum kleift að semjatil lengri tima. Ég vona að við getum notað vinnubrögð lik þeim sem við nú notuöum við að undirþyggja lang- timasamninga á milli aðila vinnu- markaðarins. Bæði Alþýðusam- band íslands og Vinnuveitenda- samband Islands hafa tekið tölv- una i þjónustu sina og með notkun og þróun ákveðinna módela getum við fengið betri yfirsýn yfir það hvernig þróunin veröur og einnig svarað vissum spurningum um þróunina miðað við tilteknar aðstæður. Staö- reyndin er sú að i nútima þjóðfé- lagi ættu menn að nýta sér nýja tækni til þess að spá i framtið- ina,“ sagði Magnús. Ekki endanlegt jafnvægi -Hvert verður siðan áframhald- ið? „Um þessar mundir er verið að ganga frá samingunum og byrjað verður i næstu samninga- lotu svo fljótt sem auðið verður. Við munum ræða við landssam- böndin og auðvitað er æskilegast að við verðum búnir að finna lausn á málunum áður en samn- ingarnir renna út. Þegar að þessu kemur verðum við helst að geta litiö það hvernig heildarþróunin verður, þvi samningar byggjast á ákveðnum forsendum og því verða menn að geta spáð i næstu framtíö og séö hvernig þróunin veður. Ef svona vinnuþrögö standast og menn geta áttað sig á þróun mála eitthvað fram í framtíðina, ætti að vera unnt að gera samninga til lengri tima,“ sagði Magnús. „Með þessum samningum erum við ekki búnir að ná þeim endanlega jafnvægissemningi sem æskilegastur væri. Vuð get- um litið til nágrannalandanna, þar sem aðilar vinnumarkaðarins takast á um 1-2%, eins og i Noregi. Þar sættust menn á að semja ekki um neinar kauphækk- anir, vegna þess að ekkert meira vartil skiptanna. Háar prósentur einskis virði Verðmætasköpunin i islensku þjóðfélagi er ekki það mikil að hún réttlæti tuga prósenta launa- hækkanir á hverju ári. Okkar raunveruleiki er allt annar og miklu lægri. Við þurfum að aðlaga okkur aö því sálrænt að þessar háu prósentur eru einskis virði, þvi það standa engin raunveruleg verðmæti að baki þeirra. Við verðum að feta okkur niður úr þessum óraunsæja draumaheimi hægt og bitandi og inn í annan eðlilegri heim. Atvinnureksturinn stendur ekki undir gífurlegum kauphækkunum og einungis er unnt að hækka laun ef raunveru- leg aukning hefur orðið i verð- mætasköpun og þar með sé einhverju meira til að skipta," sagði Magnús Gunnarsson að lokum. Hafnar- kaffi MATUR Hamborgarar Kjúklingar Kaffi Öl Sælgæti Pylsur GISTING Opið alla daga og öll kvöld Hafnarkaffi Hafnarstræti 1 Þingeyri Sími 94-8151 15
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.