Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1985, Blaðsíða 45

Frjáls verslun - 01.05.1985, Blaðsíða 45
Farið er fram á að nemandinn skili vinnuframlagi eins og hver annar starfsmaður. Og að þessu loknu er nemandinn kominn með mikla þekkingu og góða reynslu sem komið getur að góðum not- um við vinnu i og við rekstur tölvudeilda i meðalstóru fyrirtæki. Ólík starfssvið - ólík reynsla En eins og fyrr segir voru það mörg og ólik fyrirtæki sem buðu upp á starfsnám i vetur. Má þar nefna flugfélög, bifreiðaumboð, olíuinnflutningsfyrirtæki, trygg- ingarfélög, stóriðjuver og fleira. Af þvi leiðir að hver nemandi situr eftir með mjög ólíka upplifun og reynslu og gerir þetta einnig starfsnámið aðlaðandi fyrir fleiri einstaklinga en ella. Reynslan af þessu námi i vetur er góð og haldið verður áfram á sömu braut. Reynslan frá síðast- liðnum vetri sýnir reyndar að þörfin er brýn og áhugi mikill. Þvi komast færri að en vilja og um- sóknir að jafnaði mun fleiri en þau tækifæri sem i boði eru. Þegar Verslunarráð íslands var stofnað, settu menn það sem eitt af verkefnum þess að efla menntun og þekkingu þeirra er starfa i þágu viðskiptalifsins. Má segja að starfsnámið sé eitt skrefið á þeirri braut. En heyrum aö lokum umsögn tveggja nem- enda og forráðamanna þeirra fyrirtækja er þeir sóttu starfsnám sitttil. „Ég var ekki með mjög fast- mótaðar hugmyndir um eftir hverju ég væri að sækjast, en þetta gekk allt vonum framar og kom mér reyndar á óvart hvað allt gekk vel,“ sagði Örn Þór Árna- son sem stundaði starfsnám hjá Flugleiðum. Örn hafði lokið eins árs námi í viðskiptafræöi en hugur hans beindist að námi við tækniskóla í Danmörku, þar sem lögð skyldi aðaláhersla á viðskipta- og tæknifræðinám út frá rekstrar- legu sjónarmiði. „Ég hafði þetta á bak viö eyrað allan tímann og reyndi aö nýta mér námið eins og unnt var meö hliðsjón af því námi sem ég er að fara út i. Áður hafði ég litið kynnst skrifstofustörfum eða rekstri fyrirtækja en þarna fékk ég mjög yfirgripsmikla kynningu þar sem um svo stórt fyrirtæki var að ræða.“ „Það hjálpaði mjög hversu áhugasamir starfsmenn fyrirtæk- isins voru. Það voru allir mjög jákvæöir. Ég er sannfærður um að þessi dvöl min á eftir að skila sér margfalt í minu námi og starfi í framtíðinni. Ég er ekki farinn að leggja niður fyrir mér að hvaða starfsvettvangi ég mun beina augum að námi loknu, en vissu- lega hefur þetta starfsnám gert flugrekstur og allt það sem hon- um tilheyrir enn meira spennandi eri ella.“ Og með þaö kvaddi Örn, steig upp i flugvél og til Danmerkur þar sem hann hyggst eyða sumrinu við dönskunám áður en að alvör- unni kemur við tækniskólann i haust. „Okkur þótti þessi hugmynd góð þegar i upphafi og vorum til- búnir til að taka þátt i framkvæmd hennar. Það hefur ekki verið neitt á boðstólum hér i likingu við þetta og því sjálfsagt að gera slika til- raun“, sagði Már Gunnarsson, starfsmannastjóri Flugleiða. Það fyrirtæki tók einn starfsmann, Örn Þór Árnason, siðari hluta vetrar. „Það er Ijóst að nám af þessu tagi kemur bæði starfsnemanum og fyrirtækinu til góða. I sumum tilfellum gæti orðið um fram- haldsstarf að ræða, ef ekki strax þá jafnvel siðar meir. Starfsnem- inn á eftir að Ijúka námi og/eða finna sér starfsvettvang þar sem persónuleg tengsl sem skapast hafa í starfsnáminu gætu átt eftir að skila sér, báðum aðilum til hagsbóta. En fyrst og fremst er 45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.