Fregnir - 01.12.1991, Síða 3
-3-
Beðið er eftir útgáfu skýrslu Maurice Line um starfsemi háskóla-
og sérfræðisafna með nokkurri eftirvæntingu. Vísast getur hún hvatt
til umræðu í löndunum og ætlunin var að niðurstöður hennar vísuðu
veginn í sambandi við menntun stjórnenda stórra bókasafna.
Þá er á döfinni ráðstefna um skylduskil, aðstoð við
Eystrasaltslöndin og nokkur önnur verkefni eru þegar komin á skrið.
Mati á IANI- forritinu er nú að ljúka í öllum löndunum. Þrír
íslendingar tóku þátt í því, Halldóra Þorsteinsdóttir á Hbs., Jón
Erlendsson Upplýsingaþjónustu HÍ og Sólveig Þorsteinsdóttir á Lsp.
Opinberar niðurstöður eru væntanlegar í febr./mars. Þá er verið að
ræða framtíð bæði NOSP og SCANNETS í ljósi nýrra tækniframfara.
Út er komin skýrsla um NOSP þar sem tillögur eru gerðar um
breytingar á núverandi fýrirkomulagi og svo getur farið að NOSP
verði lagt niður í núverandi mynd.
Áfram er mikill áhugi á að sinna verkefnum sem í eðli sínu
krefjast stöðugrar athygli, s.s. menntunarmálum, útgáfu og
ráðstefnuhaldi. Á öðrum stað í Fregnum segir frá Engil-norrænu
námstefnunni 1991 sem haldin var í Kaupmannahöfn. Sú næsta
verður að vori í Englandi og mun fjalla um áhrif varðveislu efnis á
segulmiðlum á starfsemi rannsóknarbókasafna.
Þá hefur NORDINFO-nytt breytt um yfirbragð á árinu og er nú
mun líflegra og betur úr garði gert en áður. Starfsáæílun fyrir
tímabilið 1991-94 birtist í 1. hefti 14. árg. 1991. Tímaritinu er
ennþá dreift ókeypis frá skrifstofu NORDINFO.
Tengsl við Evrópubandalagið
Allt árið hefur töluvert verið rætt um hvernig
Norðurlandaþjóðirnar jgeti tekið þátt i verkefnum á vegum
Evrópubandalagsins. Akveðið er að skrifstofa NORDINFO verði
tengiliður og áhersla lögð á samnorræn sjónarmið en ekki hagsmuni
einstakra landa. Skrifræði er mikið í kringum þessi verkefni og enn
sem komið er hafa ekki aðrir en Danir komið nálægt þeim.
Skrifstofan fylgist þó vel með gangi mála og næsta hefti NORDINFO-
nytt verður helgað þessu efni.
Þátttaka íslendinga á árinu
Mikilvægt er að sem flestir íslendingar tengist starfinu. Þegar
litið er um öxl kemur í ljós að við höfum átt fulltrúa í ýmsum
vinnuhópum um einstök verkefni þó að þátttaka okkar sé oft bréfleg.
Nokkrir hafa farið á námskeið eða ráðstefnur og þar hafa Islendingar
einnig átt fyrirlesara og sumir hafa skrifað greinar. Við tókum á móti
Maurice Line s.l. sumar og var ekki annað á honum að heyra en
honum hefið líkað dvölin vel. Einnig má nefna að þrir íslendingar
taka þátt í að meta LANI.
Úndirrituð spjallaði um norræna samvinnu á sviði bókasafnsmála
á fundi með bókasafnsfræðinemum í nóvember. Þar kom í ljós að
allir höfðu að minnsta kosti heyrt getið um NORDINFO.
Kristín Indriðadóttir