Fregnir - 01.12.1991, Síða 6
-6-
NORDINFO VERKEFNIÐ - NORRÆNT SR-NET
í flestum löndum Evrópu og í Norður-Ameríku eru í dag
mismunandi tölvunet. Mörg af þessum netum eru tengd saman á
ýmsa vegu. Netin bjóða einnig upp á ýmsa þjónustu s.s. tölvupóst,
flutning á skrám, leitir í gagnasöfnum o.s.frv. Sum af þessum atriðuin
byggja á alþjóðlegum stöðlum.
Innan bókasafns- og upplýsingafræða voru samþykktir vorið
1991 alþjóðlegir staðlar um leitir og heimtur á bókfræðiupplýsingum
(SR) og fyrir millisafnalán (ILL).
Á markaðnum er mikill Qöldi upplýsingakerfa. Flest þeirra hafa
þróað sitt eigið leitarmál. Mjög margir bókaverðir og ýmsir aðrir hafa
þörf á þvi að leita I öðrum gagnasöfnum en sínum eigin í tengslum
við dagleg störf. Besta hugsanleg aðstaða væri sú að hægt væri að leita
í hinum ýmsu gagnasöfnum sem þau væru manns eigin. Tilgangur
ISO staðalsins "OSI-protocoll R" (OSI = Open Systems
Interconnection; SR = Search and Retrieve) er einmitt að gera þetta
mögulegt.
Tilgangur NORDINFO verkefnlsins "NORRÆNT SR-NET' er
tvíþættur;
- að gera það mögulegt fyrir notendur (á Norðurlöndum) að
sækja upplýsingar í norræn gagnasöfn, evrópsk gagnasöfn
almennt og i gagnasöfn i Norður-Ameriku í gegnum sitt eigið
bókasafnskerfl
- að auka þekkingu innan bókasafnsheimsins á Norðurlöndum
um OSI-samskiptareglur almennt og sérstaklega þær OSI-
samskiptareglur sem snerta bókasafns- og upplýsingafræði.
Til að ná þessum markmiðum er áætlað að gera tvennt:
- flmm gagnasöfn í íjórum af löndunum munu tengjast
samkvæmt ISO-staðli um SR-samskiptareglur
- LANI verður notað með SR-samskiptareglum og þannig
ljölgar þeim gagnasöfnum sem notendur geta náð frá sínu
ícerfl.
Þátttakendur eru bókasafnsyfirvöld á hinum Norðurlöndunum
ásamt netkerfum háskólanna. ísland tekur ekki að fullu þátt í þessu
samstarfl, en undirrituð er áheyrnarfulltrúi.
Verkefnið er fjármagnað að mestu leyti af NORDINFO, en
bókasafnsyflrvöld á hinum Norðurlöndunum og netkerfl háskólanna
styrkja verkefnið einnig. Hver þátttökustofnun styður það síðan með
vinnuframlagi.