Alþýðublaðið - 06.08.1969, Page 3
A'lþýðu'Maðið 6. ágúst 1969 3
Bohrngarvík er bær nýrra hú ;a.
□ Mövgum ferðamanninum finnst leiðin fyrir Ós-
hlíð til Bolungarvíkur ekki árennileg. Þegar komið
er fram hjá Hnífsdal, blasir við þeim skilti, sem á er
letrað eitthvað á þessa leið. Óshlíð. 6 km. Hætta á
grjcthruni. Akið viðstöðulaust.
Okkur er sagt, að margir skelfist þessa áletrun og
snúi hið snarasta við og fari hvergi. Aðrir aki við-
stöðulaust og það jafnvel hr.ðar, en með góðu móti
er hægt, því segja verður eins og er, að vegurinn er
ekki gerður til hraðaksturs, þó ekki teljist hann eftir
aívikum slæmur. En skiltið lýgur engu.
Sex kílómetrar er vegurinn og
víða mátti sjá þess merki að
hrunið hafði á veginn og það
ekki smásteinar. En á blind-
beygju, skömmu áður en komið
er til Bolungarvíkur gefur að
líta kross og ef menn þora að
stanza augnablik, má lesa á stalli
hans þessa áletrun — Góður guð
verndi vegfarendur —. Og víst
er það, að Bolvíkingar eru ó-
hræddir að fara veginn og segja,
að síðan krossinn var þarna sett
ur og vígður, af þáverandi bisk-
up, hafi ekkert óhapp hent veg-
farendur undir Óshlíð og oft sé
þó í misjöfnu veðri farið.
Það þarf auðvitað ekki að
taka fram, að við komumst
klakklaust fram og til baka og'
gáfum okkur meira að segja
tíma til að stanza og taka mynd.
MIKIL VELMEGUN
Ekki hefur maður lengi ekið
um Bolungarvík, þegar það verð
ur séð, að þar hefur ríkt mikil
velmegun á undanförnum árum
og gerir aflaust enn. Um það
bera bezt vitni hin fjölmörgu
nýju og glæsilegu einbýlishús,
já og jafnvel villur, sem þar gef
ur að líta. Enda var okkur sagt,
að frá árunum fyrir 1950 hafi
hreinlega verið skipt um hús
í Bolungarvík. Eitt er það, sem
ókunnugir taka fljótt eftir, en
það eru hin mörgu hvít og
grænmáluðu hús. Þau eru í
eign Einars Guðfinssonar og
sona hans og ef marka má gaml
an mann sem við tókum tali
á götu úti, þá hefur Einar Guð
finsson dugað Bolvíkingum bet
ur en enginn.
Útgerðin er niulirstaðan.
Vegurinn á lÓshlíð.
LÖGREGLUSTJÓKINN
GAMALL VALS-
MAÐUR .
En það er fleira merkilegt
við Bolungarvík. Einn af þrem
mönnum í landinu, sem bera
titilinn lögreglustjóri, situr í
Bolungarvík og gegnir jafn-
framt störfum sveitarstjóra og
til hans leitum við til að íá
fréttir af staðnum. Heitir hann
Þorkell Gíslason, maður lið-
lega þrítugur og fyrrum knaft-
Framliald á his, U...
I
1