Alþýðublaðið - 13.08.1969, Blaðsíða 12
12 Alþýðublaðlð 13. ágúst 1969
LEEDS !
STERKASTA!
□ Englandsmeistararnir Leeds United virðast svo j
sannarlega vera í æfingu nú.í upphafi keppnistíma-
bilsins. Eins og skýrt hefur verið frá, sigruðu þeir j
Tottenham á laugardag með 3 mörkum gegn 1 og j
sigurinn var svo sannarlega sannfærandi. 36 milljón .
króna maðurinn Allan Clarke skoraði eitt af mörkun-
um. Leeds sigraði í síðusíu keppni með 67 stigum, sem I
er frábær árangur. Skozki landsliðsmaðurinn Billy I
Bremner skoraði fyrsta mark leiksins og það var eina
markið í fyrri hálfleik. Skömmu eftir leikhlé skoraði
Clarke og írski landsliðsmaðurinn Johnny Giles bætti
þriðja markinu við. Tottenham skoraði úr vítaspyrnu |
skömmú fyrir leikslok. . I
Mancheíater Utd. gskik ekki
sem bezt í laknaim við nýtlið
ana í I. deild, Crystal Paiace
og tiviívegis hafði Palace ytfir-
höndina í leifcnum. Líeilknum
lau!k þó með j'afntefli 2 geign
2. Lailkvauguil nn var troð-
fulllur og lögreglan átti fullt
í fangi með að verjia aðgömgu
dyrnar fyrir aðgangshörðum
áhorfendium.
'Bilkarmeiisltararnir Man-
chesfer Clíty áttu eklki í nein-
uim vandræðum m!eð Sheffeld I
Wednesdlay, en City er talið i
annað bezta llð Bnglands í í
augnalblildnu á eftir Leeds.
Lökatölurnar voru 4:1. Sýn-
inigiarleifcur.
Það er sötmíui sögu að segja
ifrá Liverpool, þeir 'átbu elkki!
í neinucm vandræðum með
Gheilsea, sem lók án Peiter
Osgood og Jdhn Hollis. Liver
Framh. á bls. 11
þér
aðsegja
□ Sovézfci lyif'tnigamaður-
inn Jain Talts seitti nýtt héims
met í pþessu, þungaviigt um
hielgina, lyfti 190 kílóum.
Gamla mletið var 188 kílá. —
■ □ Norcfcia knatt.spyrnan er
haf n að lclkinu sumarfríinu.
Rosenk'erg heiíur forystuna,
er með 19 stig, næst ksimair
S&ösnsfóulsét 16 stiig og
Fredrifcstad er í þniðja sæti
með 14 og Skeid er einnig
með 14 st g. —
□ Eévind Petersen setti nýtt
d'ins'kt msit í 100 m. b'ák-
sundi í Álab’or.g á sunnudag,
syntii á 1:01,2 miín. ■— Noveliá
Galligaris ítiahiu satti Evrópu
m'S't í 8C0 m skriðsundi í
NapcCi, symti á 9:38,0 mín. —•
Islendingar leika landsleik í bandknattle ik við Norðmenn hér heima í haust. Nerð
menn hafa tekið miklum framförum í handknatíleiksíþróttmni undanfarið og
í fyrravetur unnu þeir marga góða sigra, sigruðu m a. bæði Dani og Svía. Þessi
mynd er frá norska meistaramótinu í útihandknattleik, sem nú stendur yfir.
Satbæk og Nornen eru að leika, og fyrr nefnda liðið vann 12:10. Stabæk er þar
með komið í undanúrslit. Á myndinni sést Christopher Miirer skora, en hann
gerði mörg mörk í leiknum.
wa’ssy.sa hnæavjia —BB
Svar Daníels Daníels-
sonar til sjúkrahúss-
stjórnarinnar á Húsavík
□ í dagblaðinu Tíminn þ. 7.
ágúst s.l. birtir stjórn S. H. það
sem hún kallar: „Leiðréttingu
. . vegna skrifa minna. Eftir
lestur greinarinnar virtist mér,
að yfirskriftin; „Rangfærslur
vegna skrifa D.D.“ væri meira
réttnefni. í upphafi greinarinn-
ar segir, að ég „blandi saman
s j úkr ahússt j órn og störfum
fréttaritara Tímans á Húsa-
vík“. (sic).
Þótt sleppt sé að ræða hina
óvenjulegu meðferð íslenzks
máls í þessari setningu, mun
lesendum mega ljóst vera, að
hér játar sjúkrahússtjórn, að
ágizkun mín sé rétt, sem sé, að
frétt Tímans frá 27. júní sé í
raun fréttatilkynning sjúkra-
hússtjórnar, sem formaðurinn
og fréttaritarinn ber að sjálf-
sögðu höfuðábyrgð á, enda þótt
hann kunni að hafa falið öðr-
um að lesa fréttina fyrir blaða-
mann Tímans.
Þá ber stjórnin til baka um-
mæli formanns um „þrýsting
utan frá“. Ekki fæ ég séð,
hvernig allir stjórnarmenn
geta vitnað um ummæli, er
formaður viðhafði á fundi,; þar
sem aðeins þrír af sjö stjórn-
armönnum voru viðstaddir.
Þessi viðbrögð stjórnarinnar
gera það hins vegar óhjákvæmi
legt að rifja upp óvenjulegar
aðfarir stjórnarinnar sumarið
1968.
Þ. 17. júlí 1968 hringdi for-
maður sjúkrahússtjórnar til mín
til Svíþjóðar, til þess að til-
kynna mér, að ég fengi ekki
til afnota yfirlæknisbústað
þann, er sjúkrahúsið hafði
keypt með ríkisstyrk. Skyldi
ég í þess stað flytja með 6
manna fjölskyldu inn í tveggja
herbergja íbúð. Ca. 6 mán. áð-
ur hafði hinn sami formaður
tilkynnt mér símleiðis, að þenn
an bústað fengi ég til umráða,
er heim kæmi, svo sem lög
mæla fyrir um .Er ég æskti
skýringa kom svarið: „Þetta
hefur verið samþykkt ,og því
verður ekki breytt og N.N.
(bæjarráðsmaður) situr hérna
hjá mér“. Viðbrögð mín voru
að sjálfsögðu þau að óska úr-
skurðar landlæknis í málinu,
sem felldi þegar úrskurð í
samræmi við sjúkrahúsalög.
f lok júnímánaðar 1988 barst
mér síðan bréf frá formannin-
um, þar sem hann reyndi að
afsaþa þessa samþykkt með
því að.lýsa fyrir.mér við hversu
erfiðar aðstæður sjúkrahús-
stjórn hefði að búa vegna þrýst
ings frá ákveðnum ráðamönn-
um Húsavikurbæjar og sem
dæmi þar um sendi hann mér
orðrétta tillögu bæjarstjórans
á Húsavik frá því í sept. 1967,
þar sem lagt var til, að mér
yrði sagt upp starfi.
Er ég eftir heirnkomu mína
á s.l. hausti í lok framkvæmda-
ráðsfundar, er haldinn var í
húsakynnum Samvinnutrygg-
inga á Húsavík, lagði þá spurn
ingu fyrir framkvæmdaráðs-
menn, hvað hefði getað fengið
þá til að samþykkja það, að
maður með 6 manna fjölskyldu
flytti inn í tveggja herbergja
ibúð, vitandi það og, að þeir
væru að brjóta lög, kom svar-
ið frá formanni; „Það var
vegna níanaðkomandi i þrýst-
ings.. Við gátum ekki annað“.
Vil ég að óreyndu fremur
kenna um gleymsku formanns,
að hann nú neitar að hafa við-
haft slík ummæli, heldur en
því, að hann skorti kjark til að
standa við það, sem hann hef-
ur látið sgr um munn fara.
Það var ekki fyrr en löngu
eftir heimkomu mína, að ég
fékk upplýsingar um, að sam-
þykkt þessi í húsnæðismálum
minum, hefði verið gerð á bæj-
arráðsfundi, þar sem sjúkra-
hússtjórn hefði fyrirvaralaust
verið kvödd á þing og henni
þröngvað til að fallast á þess-
ár aðgerðir.
Það er .rétt hermt hjá sjúkra-
hússtjórn, að á meðan ég var
erlendis, lét ég í ljós undrun
yfir ótta framkvæmdaráðs um
ósamkomulag á milli okkar
læknanna, er ég komi heim, en
upplýsingar um þennan ótta
bárust mér í bréfi stjórnarfor-
manns. Þá höfðu nánast engar
viðræður farið fram milli okk-
ar iæknanna um samstarfstil-
högun, og hafði ég því mjög
óljósa vitneskju um þær furðu-
legu hugmyndir á rekstri heil-
brigðismála, er skotið höfðu
-rótum í þingeyskri mold.
Að því er varðar ásakanir
stjórnarinnar í minn garð um
skort á lipurð og samstarfsvilja
get ég getið þess, að allt þar
til fulltrúar frá sjúkrahússtj órn
voru kvaddir til Reykjavíkur
af „þrýstingsöflunum“ til að
semja margnefnda reglugerð,
áttu stjórnarmenú naumast í
fórum sínum nægilega sterk
orð til að lýsa óbilgirni collega
minna hér í Húsavík, er þeir
ræddu þessi mál í mín eyru.
Grein stjórnarinnar er ó-
neitanlega skemmtilegt við-
fangsefni málfræðingum okk-
ar. Þannig segir t. d. „ . . . hóf
framkvæmdaráð sampingavið-
ræður á milli læknanna“.
Sannleikurinn í þessu atriði
er sá, að aðstoðarlæknarnir
sögðu upp starfi, ánþess. að
minnast nokkru sinni á það við
mig, að þeir væru, óánægðir
með sinn hlut á sjúkrahúsinu.
.i.J ismóiiB ihiiíjl x 'LBsrij
'■ í :dá k hlrtfinu'i'5
--- i.i'íisi >!ru:o ,>, í
nj in.:V, Of. öj.íJOj enia6i> iJtii
83jT6ivBgnifuue3 (irr 'ianöieðild
xiHri ihm Ob
a 1s;íIb1 öcjaa •iixni.srjdasi 'iill>;
't i i IX iS n >í :jci 1 ’ití ð oða 'í.IJ •j'.Hfj
ml KÖos’i i'A'A') i'iuní j.v.aou
-i'cAa íiiiGfi 6s iahg‘jii.tö9 'gy IsT
;.iignef!"Jau
iij )/!8 .hx: 'íioa öe.ia
ítiu ifcþ<?l8 í'ilc i fto»4 huíjl